Sagnir - 01.04.1987, Qupperneq 12

Sagnir - 01.04.1987, Qupperneq 12
Magnús Stephensen. Tuttugu og eins árs að aldri var hann sendur til að kanna afleiðingar Skaftárelda. en varð að snúa aftur og liggja í norskri höfn um veturinn. Það komst loks til Hafnarfjarðar 16. apríl 1784. Þá höfðu mikil tíðindi og slæm gerst á íslandi. Óhóflegt át og nauðsynjalítið Veturinn 1783-1784 var harður, með hafís norðan og austan. Þá lagðist allt á eitt, heyleysi, jarðbönn og eitursjúkdómar í mönnum og skepnum. Skepnurnar féllu fyrst. Stjórnvöld vöknuðu af dvala sín- um þegar mannfall var hafið og tóku að afla upplýsinga um ástand- ið. Hreppstjórar voru kallaðir sam- an og spurðir í þaula. Þegar komið er fram í desember fá sýslumenn að vita að harðindin hófust um miðjan júní. Hungursneyð er hafin og veru- legt mannfall fyrirsjáanlegt um vorið. Þetta er þó ekki eina áhyggju- efni sýslumanna. Þeir láta sig líka varða sæmilega hegðun mannfólks- ins. Hafa allir þurft að éta hrossa- kjöt, sem það hafa gjört, eður er það einasta af þeim hungur- morða og nauðlíðandi með hófi brúkað?22 Þannig spyr Jakob Jónsson sýslu- maður Vaðlasýslu (Eyjafirði). Fjórir hreppstjórar hafa hreinan skjöld en í Hvammshreppi var hrossakjötsátið „bæði óhóflegt og nauðsynjalítið hjá sumum,”23 að mati hreppstjórans. Engrar líknar að vænta. Hér er ástæðulaust að tíunda hvað fólk lagði sér til munns þegar mat- arforði var upp urinn, en margir kusu að deyja frekar en éta hrossa- kjöt. Hins vegar litu menn vonar- augum til matarforðans í kaup- staðnum, en höfðu nú engan pening- inn að greiða með. Skýrsla úr Eyjafirði er dæmigerð um viðbrögð kaupmanna þennan vetur. Þeir mega í bjargleysi og brauðskorti út af deyja, þar aumingjar og fátækur almúgi, sem standa í skuldum í kaup- staðnum, fá þar engva líkn eður málsverð í hungursnauð til láns, ... eftir sem kaupmað- urinn sem hefur með opnu bréfi auglýst, svo ei dugir þar neinnar líknar að vænta, þó líf manna liggi við.24 Margir höfðu safnað skuldum í und- anfarandi harðæri. Vorið 1783 fengu kaupmenn fyrirmæli um að herða skuldheimtu. Þegar harðind- in gengu í garð, stönguðust þessi fyrirmæli á við tilskipanir konungs um lán á nauðþurftum til fátækra. Kaupmenn höfðu því um tvennt að velja, og þeir völdu sér í hag. Árið 1783 var fólksf jöldi á íslandi nálægt 50 þúsundum, en þrátt fyrir allt fjölgaði þjóðinni um 144 mann- eskjur það ár. Mannfall varð ekki verulegt fyrr en eftir áramót þegar allar birgðir fátæklinganna þraut. Þá „var haldið af stað með heilu fjöl- skyldurnar til sjávarsíðunnar, íbú- um þar til óþolandi byrði og auk- innar fátæktar.”25 Fæstir voru nú aflögufærir. Mjólkurnyt var í lágmarki, ef hún var einhver. Hin undirstöðufæða íslendinga, fiskurinn, var utan seil- ingar. Hafís varnaði sjósóknar á Norðurlandi og hestleysi kom í veg fyrir skreiðarferðir. Þegar engin aðföng voru fáanleg, skildi matar- forði heimilanna milli lífs og dauða. Vergangsfólkið hlaut því víða að koma að lokuðum dyrum og endalok þess urðu oft á víðavangi eða undir bæjarveggjum. Hungrið varð mest á Norðurlandi og skip komu seint vegna hafíssins. Þegar matvæli komu á hafnir varð hestleysi oft til þess að fólk dó án þess að geta nálgast þau. Kaupmenn flyt ja út fisk Árið 1784 fækkaði íslendingum um 4325 manneskjur og stjórnvöld í Kaupmannahöfn fengu ekki vitn- eskju um ástandið fyrr en um mitt sumar. Þá voru loks gerðar ráðstaf- anir sem miðuðust við þarfir allra landsmanna. Skip hlaðið matvælum var sent á Eyrarbakka og með því fyrirmæli til kaupmanna og ís- lenskra embættismanna um tilhög- un hjálparstarfs. Skip þetta fórst við Meðallandssand og fyrirmælin glötuðust. Þegar fregnin af skips- tapanum barst til Kaupmannahafn- ar um haustið var orðið of seint að senda annað skip með ný fyrir- mæli.26 Afleiðingin varð sú að haustið 1784, mitt í hungursneyð- inni, var fluttur út af íslandi álíka mikill fiskur og í meðalári. Hverjum voru þessi afdrifaríku 10 SAGNIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.