Sagnir - 01.04.1987, Blaðsíða 76
Magnús Hauksson
Minnisvarðinn á Þinghól um einveldis
skuldbindinguna 1662.
Einveldissk
Þetta var svosem ekki í fyrsta
skipti sem lítilmagninn varð að láta
kúgun og dólgshátt þeirra stærri og
sterkari yfir sig ganga á þessum
stað. Þarna var þingstaður um aldir,
þriggja hreppa þing, og heimildir
greina m.a. frá því að sakamenn
hafi verið teknir af lífi í nágrenni
við þingstaðinn. í grenndinni eru
nokkrar dysjar sem minna á þessa
skuggalegu atburði. Hjónadysjar
eru rétt austan við Hafnarfjarðar-
veginn milli Kópavogslækjar og
Fífuhvammsvegar, Systkinaleiði
munu nú vera komin undir Fífu-
hvammsveg.1 Það var þarna á
hólnum, þingstaðnum, sem andlegir
og veraldlegir leiðtogar landsins
undirrituðu einveldisskuldbinding-
una svokölluðu 1662.
í kennslubókum og víðar er oft
sagt frá atburðum í Kópavogi á
þann veg að þjóðerniskenndin
hlýtur að vakna við. Lítum á eitt
dæmi, trúlega hið þekktasta. Það er
Jónas Jónsson sem segir frá:
Árni Oddsson lögmaður setti
þingið. Herskip danskt lá þar
örskammt frá vognum, hjá
Bessastöðum. Höfuðsmaður lét
allmikla sveit vopnaðra her-
manna koma á fundinn í Kópa-
vogi og skipaði þeim í hring
utan um þingheim. Lét Bjelke
fyrst vinna konungi hollustueið
og gekk það greiðlega. Að því
búnu dró hann upp einvalds-
skuldbindinguna og þótti þá
þingmönnum vandast málið.
Þegar ég var að hef ja nám við
Menntaskólann í Kópavogi
fór busavígslan þannig fram
að eldri nemendur tóku hvern busa
fyrir sig og smeygðu poka yfir
hann. Til að busarnir gætu séð fót-
um sínum forráð var gat á botni
hvers poka og stóð höfuð busans þar
út um en hendurnar voru fjötraðar í
pokanum. Eftir að allur mannskap-
urinn hafði verið þræddur upp á all-
langan streng var trossan dregin í
lögreglufylgd niður að Þinghól.
Þinghóll er fyrir botni Kópavogs,
norðan við Kópavogslækinn og
vestan við Hafnarfjarðarveginn.
Þarna við hólinn varð hver busi að
bergja á miði sem sérstaklega hafði
verið bruggaður af þessu tilefni.
Hafði verið séð fyrir því að föng
þryti ekki og dugðu ekki minni ílát
en allstórar tunnur. Eins og gefur að
skilja sætti fólk sig misvel við með-
ferðina, sumir meira að segja
frekar illa, og sýndu mótþróa eftir
mætti en voru ofurliði bornir. Virt-
ist ofbeldi eldri nemenda engin tak-
mörk sett því þeim busum sem létu
ófriðlega var stungið í tunnurnar,
öfugum.
Erfðahyllingin í Kaupmannahöfn 18. október 1660.
74 SAGNIR