Sagnir - 01.04.1987, Blaðsíða 71

Sagnir - 01.04.1987, Blaðsíða 71
SumariÖ 1809: Það er stríð í Evrópu, breskur kaupmaður siglir til íslands og þótt hann hafi verslunarleyf er öllum sem skipta við hann hótað lífláti. Kaupmaðurinn lætur handtaka stifl- amtmanninn og gerir danskan skósvein sinn að kóngi yflir íslandi. Hvemig brugðust íslensku embættis- mennimir við valdaráninu? Hver var afstaða háyfiirdómarans og etatsráðsins Magnúsar Stephensens ? Æra hans beið hnekki þetta sumar. En var hannsekur? sins svo var þó aldeilis ekki. ísleifur Einarsson dómari í Landsyfirrétt- inum er gegndi störfum stiftamt- manns í fjarveru Trampes, bannaði Bretunum að versla.4 Orðtakið „nauðsyn brýtur lög” átti ekki upp á pallborðið hjá ísleifi. Skipið var í eigu breska kaupmannsins Phelps og ferðin var að öllum líkindum farin fyrir atbeina Josephs Banks, áhrifamanns í bresku stjórninni og íslandsvinar.s Fulltrúar Phelps voru Savignac og Daninn Jörgen Jörgensen. Bretarnir létu þó ekki Jörgen Jiirgensen hundadagakóngur og hæstráðandi til sjós og iands. Stiftamtmaðurinn Frederik Christoffer Trampe greifi. Greiddi fégræðgi Trampes götu Jörundar til valda? deigan síga enda komnir langan veg á skipi, hlöðnu vörum. Úr ráði verður þeir að hertaka skipið Justi- tia, sem hafði komið haustið áður, og vörur úr því, sem hafði verið skipað upp í Hafnarfirði. Að frum- kvæði þeirra Frydensbergs land- og bæjarfógeta og Koefoeds sýslu- manns í Gullbringu- og Kjósarsýslu var gengið til samninga.6 Með samningunum var Bretunum leyfð verslun. Þeir settu upp búð í Reykjavík og var Savignac fyrir henni, en Jörundur sigldi utan til að ná í meiri vörur. Trampe kom til landsins í júní- mánuði á eigin skipi hlöðnu varn- ingi. Hann hafði þá um vorið keypt verslunarhús og vörulager Adzer Knudsens í Reykjavík.7 Aug- ljóst er að stiftamtmaðurinn hefur ætlað að notfæra sér neyðina til að græða sem mest, enda seldi hann dýrar en aðrir og fyrirbauð lægra verð.s Pappírslaus kom hann heldur ekki. í auglýsingu frá kónginum er hann sendi sýslumönnum Suður- amtsins, amtmönnum og landfó- geta, var öll verslun við Breta bönnuð að viðlögðu lífláti. Trampe hafði enga heimild til að senda út þessa auglýsingu, því hún var löngu fallin úr gildi og það vissi hann vel. Tilskipunin sem í gildi var, og Trampe vildi ekki sýna, kvað á um að breskir þegnar skyldu fangels- aðir og eignir þeirra gerðar upp- tækar. Einnig var þess getið að þeir er hefðu samskipti við Breta ættu að fara beina leið í steininn. Hvergi var minnst á dauðarefsingu.9 Var Trampe að vernda eigin verslunar- hagsmuni með þessu uppátæki? Fjórum dögum eftir komu Trampes, sigldi breskt herskip inn á Hafnarfjörð. Tilgangur ferðar þess var að veita verslunarleiðangri Phelps, sem væntanlegur var, her- skipavernd.10 Það lítur út fyrir að bresk stjórnvöld hafi ætlað að brjóta aftur þau verslunarlög er hér giltu. Enda fór svo að Nott skip- herra neyddi Trampe til samninga, þar sem kveðið var á um að breskum þegnum skyldi heimilt að versla á íslandi og hafa þar ból- festu.11 Samningurinn var sendur sýslu- mönnum Suðuramtsins og amt- mönnum, en hann var aldrei birtur opinberlega. Almenningur vissi því ekki betur en fyrri auglýsing væri í fullu gildi.12 SAGNIR 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.