Sagnir - 01.04.1987, Blaðsíða 31

Sagnir - 01.04.1987, Blaðsíða 31
Æviatriði Eggert Ólafsson fæddist árið 1726 í Svefneyjum á Breiðafirði. Hann dvaldist hjá foreldrum sínum til tíu ára aldurs, en síðan hjá frændfólki þar til hann fór í Skálholtsskóla 1741. Árið 1746 fór hann til Kaupmannahafnar og lauk prófi í heimspeki frá Hafn- arháskóla 1748. Eggert hafði einnig mikinn áhuga á náttúrufræði, voru hann og Bjarni Pálsson samtíða við háskólann. Þeir voru sendir saman í rannsóknarleiðangur til íslands 1752-7 og ferð- uðust þeir um landið og rannsökuðu bæði náttúru þess og mannlíf. Um þessar rannsóknir ritaði Eggert Ferðabókina, sem kom út árið 1772. Eggert ritaði fleiri vísindarit, en þekktastur er hann senni- lega fyrir ljóð sín. Hann kom endanlega heim til íslands árið 1766 og ári síðar fékk hann embætti varalögmanns. Sama ár giftist hann, en ári síðar voru þau hjónin að flytjast búferlum er skip þeirra fórst og þau drukknuðu bæði.1 Hannes Finnsson fæddist árið 1739. Hann var sonur Finns Jónssonar biskups í Skálholti. Aðeins 16 ára útskrifaðist Hannes úr Skálholtsskóla og hélt til Kaupmannahafnar til náms við há- skólann. þar dvaldist hann í 12 ár við nám og fræðistörf. Hann lauk guðfræðiprófi 1763, en hann hafði einnig áhuga á mörgum öðrum fræðigreinum. Hann dvaldist á íslandi frá 1767-70 en í Kaup- mannahöfn til 1777. Þá fór hann endanlega heim , þrátt fyrir von um góðan starfsframa í Danmörku. Hann var vígður til embættis aðstoðarbiskups í Skálholti og síðar tók hann við biskupsembætti eftir föður sinn. Hann sinnti áfram fræðistörfum og má m.a. nefna ritið Mannfækkun af hallœrum og einnig Kvöldvökumar sem ætlað var almenningi til skemmtunar og fróðleiks.2 Arið 1780 kom út rit sem varð mjög vinsælt þá og síðar. Nefndist það Atli og var eftir sr. Björn Halldórsson í Sauð- lauksdal. Efnið var sett fram í sam- talsformi. Atli er ungur bóndi sem ræðir við eldri og reyndari bónda og fær hjá honum ráðleggingar varð- andi búskap og fjölskyldulíf. Rit þetta var greinilega undir áhrifum frá búauðgistefnunni (fysiokrati) sem var einn angi upp- lýsingarinnar og lögðu fylgismenn hennar mesta áherslu á framfarir í landbúnaði. Búauðgistefnan var út- breidd á Norðurlöndum. En hvað var upplýsing? Það er ekki auðvelt að skilgreina hana, enda var hún margþætt. Upplýs- ingin er rakin til Frakklands, til manna eins og Voltaire, Montes- quieu o.fl. sem voru aftur undir áhrifum frá Bretunum Locke og Newton. Venjulega er talið að upplýsing- arinnar fari að gæta að marki hér á landi um 1770, en það er hæpið að fastsetja eitt ártal öðru fremur. Á íslandi eru helstu menn upplýsing- arinnar taldir vera Jón Eiríksson, Hannes Finnsson, Eggert Ólafsson, Björn í Sauðlauksdal, Ólafur Ólafs- son (Olavius) og ekki síst Magnús Stephensen. Áhrifa hennar gætti í útgáfu alls konar fræðslurita um atvinnumál en áður höfðu fyrst og fremst verið gefnar út guðsorða- bækur. Forkólfar Hrappseyjar- prentsmiðju höfðu forystu um þessa nýju útgáfu. Ýmis félög voru stofnuð með uppfræðslu og útgáfu að markmiði, t.d. Lærdómslistafé- lagið, Landsuppfræðingarfélagið og Hið íslenska bókmenntafélag. Hinir íslensku upplýsingarmenn höfðu mestan áhuga á atvinnumál- um, fyrst og fremst landbúnaði og voru því margir hlynntir búauðgi- stefnunni eins og Eggert Ólafsson og mágur hans sr. Björn í Sauð- lauksdal. Þessir menn vildu vera sem þjóðlegastir og sækja fyrir- myndir til fortíðarinnar. Aðrir höfðu meiri áhuga á samtímanum og vildu móta framtíðina og fram- farirnar með því að taka allt það besta hvar sem var í heiminum til fyrirmyndar og voru því alþjóðlega sinnaðir. Um þetta er Hannes Finnsson gott dæmi. SAGNIR 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.