Sagnir - 01.04.1987, Blaðsíða 28
TAFLAIII Landskuld og leigur í smjöri
meðaltal meðaltal , ..
1695 -. 1710/12 ., lækkun
a bæ a bæ
Svæði
Eyja- fjarðar- 8952,3 126,1
ísa- fjarðar 11704 106,4
Kostajarðir og kot
Stórabóla hefur haft minni áhrif á
byrðar leiguliða í grösugum Eyja-
firði en við hrjóstrugar strendur
Vestfjarða. Þá liggur fyrir að leita
skýringa á því. Fyrst verður fyrir að
hyggja að stærð jarðanna og mati
þeirra, en jarðamat byggðist á því
hve mörgum kúm jörð gat fram-
fleytt. Líklegasta tilgátan að óat-
huguðu máli er að ásókn sé, að öðru
jöfnu, meiri í að taka á leigu betri
jarðir. Þetta merkir að jarðir Vaðla-
sýslu eru hærra metnar, betri en
jarðir í hreppunum í ísafjarðar-
sýslu. Að réttu lagi ætti að vera auð-
veldara að leigja kostajarðir en kot
er fólki fækkar og eftirsókn
minnkar. Hvernig er þá jarðamat á
þessum tveimur svæðum?
Athugun leiddi í ljós þær niður-
stöður sem sjá má í töflu IV. Jarðir í
hreppunum tveimur í Eyjafirði
voru að jafnaði nær tvöfalt dýrari
en jarðir í hreppunum sjö í ísaf jarð-
arsýslu. Meðfram eru áberandi
færri stórar jarðir á vestara svæð-
inu. Af 110 jörðum eru aðeins þrjár
metnar hærra en til 39 hundraða,
eða innan við þrjár af hundraði. 1
Eyjafirði eru 24 jarðir af 71 dýrari
en 39 hundruð, eða um þriðjungur
jarðanna.
Úr töflu III má lesa að landskuld
og leigur eru um 15 af hundraði
lægri á hverja jörð á vestara svæð-
inu 1695 og í kringum 20% minni er
Jarðabók þeirra kumpána Árna og
7478,7 105,3 16,5%
9034,1 82,1 22,8%
Páls er gerð. Það styður því enn
frekar þá tilgátu að jarðir séu betri í
Öngulstaða- og Saurbæjarhreppum
en í héraði Þorbjargar þeirrar digru
er barg lífi ójafnaðarmannsins frá
Bjargi.
Maklegt er hér að minna á að 12
jarðir eru ekki með í þessum út-
reikningum og meðfram að ekki er
aðeins miðað við jarðabókina frá
1695 heldur tekið tillit til umsagna
leiguliða (í Jarðabók Áma og Páls),
er því meðaltalið fyrir 1695 ekki
samhljóða jarðabókinni frá því ári.
Tölur þær er unnar eru upp úr
seinni bókinni ættu að vera nærri
lagi; þá er munurinn meiri og því
engin ástæða til að efast um gildi
tilgátunnar.
Það hefði mátt ætla að sjósóknin á
TAFLAIV Jarðamat
Vestfjörðum hefði haldið landskuld
og leigum uppi. Hins vegar verður
erfitt að sækja sjóinn þegar mann-
fall verður svo gríðarlegt sem hér
um fjallar. Eftirlifendur hafa haft
nóg með gegningar og varla verið
mannskapur til að róa.
Ályktunin sem af ofansögðu
verður dregin er í stuttu máli sú að
Stórabóla hafi haft minni áhrif á
lífsskilyrði leiguliða er bollokuðu á
slóðum Víga-Glúms en hinna er
byggðu lendur þær er Kolbrúnar-
skáldið eigraði forðum um. Ástæð-
an er að betri jarðir eru á slóðum
Glúms Eyjólfssonar.
Sældarlíf?
Landskuld og leigur lækkuðu um
nálægt 20 af hundraði vegna hins
gífurlega mannfalls er varð í kjöl-
far Stórubólu árin 1707,8 og 9. Hafa
ber þó hugfast að torvelt er að skilja
áhrif bólunnar frá öðrum þáttum er
stefndu til sömu áttar. Síðustu ár 17.
aldarinnar voru Frónbúum þung í
skauti ekki síður en hin fyrstu.
Harðindin hörfuðu síst á nýrri öld
og urðu margir íslendingar þeim
auðunnin bráð hin fyrstu ár þeirrar
aldar sem einna helst er minnst
fyrir franska byltingu og heimspeki
upplýsingar og fræðslu. Ekki er
fjarri sanni að áætla að um sjött-
ungur þjóðarinnar hafi gengið fyrir
ætternisstapann þessi mögru ár.
Bólan kom beint ofan í harðæri.
Samanlagt má ætla að íslendingum
hafi fækkað um þriðjung þessi
hörmungarár. Jarðir gengu úr sér,
heyfengur var svikull, útibeit lítt að
treysta og fiskur sjaldséður. Það má
Svæði fjöldi samtals í meðaltal á
jarða hundruðum jörð
Eyjafjarðarsvæði 70 2144 30,6
ísafjarðarsvæði 108 1729 16,0
Jarðamat samtals á svæðunum í hundruðum og meðaltal á hverri jörð. Ástæðan fyrir því
að einungis 108 (ekki 110) jarðir eru af vestara svæðinu er að mats er ekki getið á tveimur
jörðum, en ekki getið á einni í Eyjafirði.
Landskuld og leiga í hvorri sýslu fyrir sig reiknað i kilóum smjörs til að fá raunverulegan
samanburð. Miðað er við að ein vætt fisks jafngildi 20 álnum sem jafngildi tveim fjórðungum
smjörs eða 9,96 kilóum. Þannig jafngilda 0,498 kg. af smjöri einni alin (sbr. kaupsetninguna frá
1615 í Jón Aðils: Einokunarverzlun Dana á íslandi (Rv. 1971) (ljósprentun) 365-369; íslenzk
orðabók handa skólum og almenningi (Rv. 1983), 214). Leiga eftir hvert ærgildi er 1,67 kg eða 10
kg eftir hverja kú (2 fjórðungar).
Að auki er reiknað meðaltal á hvern bæ, þ.e.a.s. landskuld og leigur samtals á móti f jölda bæ ja í
útreikningum.
26 SAGNIR