Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Side 5
4. HEFTI
II. ÁRG.
ÁRSLOK 1957
Bís.
147 Forspjall
150 Chaucer: Sagan um hanann.
Helgi Hálfdanarson þýddi
155 Halldór Kiljan Laxness: Er gagns-
laust basl að vilja vera þjóð?
158 Sigurður Nordal: Alsnjóa
162 Vilja Danir afhenda handritin?
168 Kristján Karlsson: Geoffrey
Chaucer
172 Karl Strand: Alkohól
190 Undir skilningstrénu
191 Bókmenntir eftir Pétur Benedikts-
son, Sigurð Líndal og Kristján
Karlsson
202 Listir eftir Jón Engilberts og
og Ragnar Jónsson
RITSTJÓRN:
Tómas Guðmundsson
Ragnar Jónsson ábm.
Kristján Karlsson
Jóhannes Nordal
VERÖLDIN er ekki réttarríki, og í alþjóða-
málum er því fallvalt að treysta vernd laga
og réttar. Engu að síður eru smáþjóðir
heimsins ekki með öllu ofurseldar náð og
miskunn voldugra nágranna, og kemur þar
einkum tvennt til. Annars vegar hafa þær á
friðartímum skjól af valdajafnvægi stórveld-
anna, sem hvert um sig reynir að hindra
ásælni og vfirgang annars, en skerist í odda
milli þeirra, er sú vörn fljótt úr sögunni.
Hins vegar hafa stjórnmálakenningar um
sjálfsákvörðunarrétt og lýðræði átt drjúgan
þátt í að skapa almenningsálit í heiminum,
sem þokað hefur fram til sigurs kröfum
fjölda þjóða um frelsi og sjálfdæmi í eigin
málum. Á þeim vettvangi hafa smáþjóðir
þráfaldlega sótt rétt sinn á hendur sér miklu
voldugri þjóðum.
Utanríkisstefna þeirra verður því að
grundvallast á þeirri meginhugsjón að efla
réttlæti í alþjóðaviðskiptum og virðingu
fyrir frelsi og sjálfsákvörðunarrétti annarra.
ÍSLENDINGAR mega minnast þess, hve
mjög þeir eiga sigra sína í sjálfstæðisbarátt-
unni að þakka þessari þróun í réttlætis-
vitund umheimsins og þeirrar þjóðar, sem