Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Page 6

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Page 6
Jafnvægi í byggð landsins Saga eftir Jökul Jakobsson Söngurinn var hljóðnaður, gestirnir farnir, þjónarnir búnir að gera upp og salir hótelsins stóðu kaldir, dimmir og tómir. Það var þögn yfir öllum miðbænum, nema hvað einstaka fylliraftur rak upp öskur ti! að mótmæla því að deginum væri lokið. Það voru allir gengnir til náða í hótelinu nema næturvörðurinn var á stjái og það heyrist hringla í lyklum þegar hann hleypir inn síðbúnum gestum. Það logaði ljós í skonsunni innanvið bak- dyrnar og þar sat maður við skriftir. Hann skaut tungubroddinum útum munnvikin og hnyklaði brýrnar meðan hann dró stafina á blaðið, stórkarlaletur og notaði hvergi upp- hafsstaf. Hann fór sér hægt því hvorttveggja var að maðurinn var ærið stirðhentur og efni bréfsins mikilvægt. Hann var að panta sér legstað. Hann hafði augastað á litlum bletti við norð- austurhom kirkjunnar, skammt þaðan sem mamma hans hafði verið jörðuð. Þá var hann tíu ára og fékk í fyrsta sinn að drekka úr rósóttum bollum sem annars voru eingöngu notaðir þegar heldri menn bar að garði. Og presturinn hafði líka drukkið úr rósóttum bolla og tekið feiknin öll í nefið og sagt í sífellu að hið góða mundi aldrei tæmast þótt gott fólk hyrfi til guðs. Hann mundi að presturinn var rjóður í kinnum og þurrkaði sér oft um ennið með rauðdoppóttum tóbaksklút. 4 Nú var kominn nýr prestur til að sjá um að þetta góða mundi aldrei tæmast, það var þessi prestur sem átti að fá bréfið. Hann hlaut að geta liðsinnt fátækum manni um annað eins smáræði og lítinn blett við norðaustur- horn kirkjunnar. Kirkjugarðurinn var stór og þar hafði verið nóg rúm fyrir nokkrum árum. Hann sá í anda breiðan dalinn þarsem silf- urlit áin bugðaðist milli valllendisbakka og sumstaðar voru sandeyrar útí hana miðja. Þar voru víðáttumiklar jarðir, grösug tún og grænar engjar, fjöllin blá í fjarska og sjórinn í norður- átt einsog leyndardómsfull heimsálfa. Þar voru víðáttur á alla vegu og varla gat annað átt sér stað en einhver leið væri til að útvega manni ofurlítinn blett af öllu þessu landi, ofur- lítinn blett undir norðausturhorni kirkjunnar, einkanlega hlaut að vera erfitt að neita þeirri bón þegar maður hafði átt heinta þarna mest- anpart. ævinnar og meira segja séð dagsins ljós í fyrsta sinn. Til vonar og vara gat verið gott að láta fljóta með álitlega fjárfúlgu, því sá sem á engan að lengur f þessum heimi, hann verður að treysta á það sem menn taka meira mark á en óskum einstæðinga. Þetta voru allt saman fimmkallar og tíkallar og einstaka fimmtíu- kall, stórt brúnt umslag sem bungaði af fimrn- köllum, tíköllum og einstaka fimmtíuköllum. Hann ánafnaði þetta kirkjunni, kannski var DAGSKRÁ

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.