Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Blaðsíða 45

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Blaðsíða 45
Alla ævina. En hann má fyrir alla muni ekki fá ástæðu til að halda, að mig bresti þolin- mæði. Ég sezt varlega á rúmið. Rólega svo ekkert brak fæli hann. Svona sit ég og met að- stæðurnar og geri mína hernaðaráætlun. Ekki nýt ég aðstoðar Napoleons við það. Því hvern- ig er hægt að hagnýta lærdóma Waterloo-or- ustunnar í svefnherbergi mínu? Mér verður Ijóst, að við mennirnir mætum öllum atvikum lífsins óundirbúnir og allt sem við höfurn lesið um reynslu liðinna manna er einskis virði. Jesús, Sókrates, Alexander, Napoleon, þeir eru einskis nýtir. Það eina, sem ég hef við að styðjast, er eðlisávísun mín. Dýrið í mér. Og hvað eru menn svo að hallmæla dýrinu í manninum? Ég ætla að semja nýja hcimspeki. Hún á að heita: „Aftur til dýrsins.“ Ég notfæri mér hina hreinu skynscmi dýrs- ins. Það er augljóst, að ég get ekki farið að elta hann uppi. Ég get farið út í öll hrrn her- hergisins og lamið daghlaðinu. En samt sem áður mun ég ekki hitta hann. Hann cr slung- inn og því meir sem ég lem, því hægar hefur hann um sig. Þv! meir sem ég hamast, þeim mun öruggara fylgsni mun hann finna á bak við bók eða niðri í inniskónum mínum. Og fari ég að bölsótast, brosir hann aðeins hæðn- islega. Nei. Ég verð að lokka hann, svo að hann komi til mtn. En hvað getur þá fengið mýflugu til að nálgast mann? Auðvitað lyktin af blóðheitum líkamanum. En það er líka annað, sem dreg- ur að sér mýflugu. Hvað er leynivopn mitt? Nú veit ég það. Enginn óvinur, ckkert skordýr fær staðizt Ijós. Ég lyfti höndunum hægt og kveiki á les- lampanum yfir rúmi mínu. Ég flyt mig var- lega svo að ljósið falli ekki á mig. Leslamp- inn varpar ljóskeilu á lakið og koddann. Svona upplýstur koddi hlýtur að vera ágætis agn. (Og nú kæri ég mig kollóttan, þótt ég sitji í náttjakkanum einum í upplýstu herbcrgi, því að það er dregið fyrir). Sjáum nú til. Ég sit kyrr. Ég heyri ekkert hljóð. Nokkr- ar mínútur líða. Það líða margar mínútur. Mér verður litið á tóbakspakkann á náttborðinu. Það nær engri átt að reykja. Ég andvarpa í hljóði. Nú reynir einungis á þolgæði og rósemi. Rósemi dýrsins. Ég sit hreyfingarlaus með hönd undir kinn og hálflukt augu. Eini munurinn á mér og „Hugsuði" Rodins er sá, að hann er alveg nakinn, en ég er í náttjakka. Ég þykist vera DAGSKRÁ að hugsa. Kannski mýflugan viti, að ég er rit- höfundur. Þá finnst henni sjálfsagt eðlilegt, að ég sitji þarna á rúmbríkinni og stari út ! blá- inn. Það er vel hugsanlegt, að ég sé að brjóta heilann um viss torræð atriði í Faust. Ég leik hlutverk hugsuðarins af hjartans list. Það ríður á að vekja traust mýflugunnar. Ég veit ekki hversu lengi ég sit þannig. Tíu mínútur. Tuttugu mínútur. Ég sit kyrr. svo að óvinurinn uggi ekki að sér. Heyrðist mér eitrhvað? Nei. Ég kyngi munnvatninu. Nú. F.g gríp andann á lofti. Nú heyri ég í honum. Óvinurinn. Nú kemur hann til mín. Ég finn einskonar rafstraum í kjálkunum, straumur eftirvæntingar hríslast niður eftir hryggnum, hárin rísa í óttablandinni hefnd- argleði. Það er kraftavcrk. Ég hcld niðri í mér andanum. Óvinurinn kemur fram einhversstaðar utan úr tóminu. Suðið eykst. Hann nálgast. Það er líkast því, að spilað sé á sög. Sög lífsins. Sög dauðans. Hann flýgur upp að vitum mér. Ég finn titringinn frá vængjum hans. Ég er grafkyrr. Ég má ekki vekja grun á mér. Mér tekst að heyra, hvar hann sezt. Nú skal til skarar skríða. Fljótfærni, og leikurinn er tap- aður. Ég sný höfðinu varlega, niðursokkinn í djúpar íhuganir. Mýflugan er á koddanum. Ég h't á liana. Svipur minn er alveg tilfinn- ingalaus. Mýflugan er hjólbeinótt. Hún cr áþekk blendingi af spænsku nauti og rókokó- borði, hvorttveggja með óeðlilega langa og mjóa fætur. Hún væri hjákátleg, ef hún væri ekki svona óhugnanleg. Hún er óskapnaður náttúrunnar. Á þessari stund er ég því feginn, hve smár óvinurinn er, að hún skuli ekki vera á stærð við mammút. Mýfhigan stendur á koddanum og nu'stígur af tilhlökkun. Hún tvístígur. Hún getur ekki dulið bráðlæti sitt. Hún heldur að hún eigi alls kostar við mig. Hún veit ekki það sem ég veit. Mýflugan þefar fálmandi út í loftið mcð blóðþyrstu trýni sínu. Hún stefnir broddi sfn- um beint á læri mitt. Það er aðeins í spannar fjarlægð frá henni. Skyndilega verð ég altek- inn af frmnkrafti lífsins, guðs eilífa lögmáli. Ég á við spennu blóðsins. Lífsdýrkendur, skáld eins og Lawrencc og Miller, hafa lýst þessari blóðvitund (ef til vill átti Strindberg við það sama, þegar hann tal- aði um ástar-hatrið?), átökunum milli manns og konu, en án hennar væri sandur í stað mergs 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.