Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Blaðsíða 23
tiltölulega fæstir þeirra í hrunaflekkj-
unum. Er eftir meiru að slægjast í
hinum fáu líkgröfum. í einni þeirra
fundust tvær nælur úr bronzi, sem
eftir legu og stíl að dæma eru frá 6.
öld (sjá mynd nr. 5). í annarri lík-
gröf lágu fimm silfurpeningar með
kúfískum stöfum. Myntfræðingurinn
G. Galster les á einum þeirra: ,,Sa-
manide Ismail Ibn Ahmed. Kalífi
Mutadid Billah. Esch Schasch árið
287.“ En Esch Schasch er gamalt nafn
borgarinnar Taskent í Túrkestan.
Arið 287 hjá Múhammeðstrúar-
mönnum svarar til ársins f)00 eftir
okkar tímatali (sjá mynd nr. 6, um-
ræddur peningur er lengst til vinstri).
Peningarnir segja til um aldurstak-
mark grafarinnar og bera auk þess
vitni sambandi við austrænar þjóðir
á víkingaöld. Tvær líkgrafir aðrar
virðast einnig frá víkingaöld áliðinni.
I annarri fannst Þórshamar (mynd
nr. 7).
Eins og minnzt var á, liggja mann-
vistarlög yfir sjálfum grafreitnum. Á
víð og dreif um þessi lög sást móta
fyrir skurðum, óreglulegum í lögun,
og er óvíst hvaða hlutverki þeir
gegndu, en í þeim fundust viðarkol,
leirkerabrot, molar úr tálgusteins-
íláti, dýrabein, naglar o. fl. Innan um
þessa auðkennalitlu úrgangsmuui
fundu menn 11 peninga. Á þá er, sam-
kvæmt venju, letrað nafn ríkjandi
konungs, myntsláttustaðar og mynt-
Húsgrunnur nr. 1389. (Acta Archeol. 1955, bls. 183)
DAGSKRA
21