Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Síða 15

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Síða 15
Þorkell Grímsson: Gammi og gröf Grafreitur og þorpsleifar frá lokaskeiði heiðins siðar á Lindholm Höje við Limafjörð Heimildargildi greftrunarminja er margvíslegt. Af beinum og beinaleif- um í'áða mannfræðingar líkamsvöxt einstaklinga, kyn, aldur o. fl., en sjálfir legstaðirnir ásamt haugfé, ef eitthvað er, geta frætt okkur um efna- hag og listþroska aldarinnar. um þjóðfélagsstiiðu hinna gröfnu og um ríkjandi útfarar- og greftrunarsiði. Loks áætla menn stundum fólks- fjölda eftir tölu grafinna, en slíkar áætlanir ldjóta að vera lauslegar. Hins vegar getur lega grafahóps sagt til um endamörk byggðarlags og hvar byggð var þéttust. Mikið hefur verið rætt og ritað um lnigmyndaheim for- söguþjóða. Þá er sígild aðferð að bera saman greftrunarminjar þeirra við hliðstæð gögn frá frumstæðum þjóð- flokkum nútímans, en fátt varpar jafn skýru ljósi á lífsskoðanir og Grafreilurinn á Lindholm Höje séður úr lofti 1955. Myndin snýr hornrétt við höfuðáttum. Norður er til vinstri. (Acta Archeologica 1955, hls. 176) DAGSKRÁ einmitt útfarar- og greftrunarsiðir. Þó verður alltaf að gera ráð fyrir, að sið- ir kunni að slitna úr samhengi við þann hugmyndaheim, sem þeir eru sprottnir af. Um almennt heimildagildi þéttbýlis- og borgarrústa þarf varla að fjölyrða. Leifar þéttbýlis finnast á jarðarkringl- unni frá upphafi nýsteinaldar, og slíkar lcifar í allri mynd, húsarústir, húsgrunnar, vatnsból, götur, torg, brýr o.s.frv., eru einhvcr stærsti flokk- ur fornminja. Þéttbýli er alltaf merki um nokkurn þroska í búskaparhátt- um, en það ber auðvitað vitni um fleira.Margir trúarbragðafræðingar sjá aldahvörf í þróun alls átrúnaðar, þeg- ar mannfólkið hefst af stigi veiði- mennsku, hjarðmennsku og frum- stæðrar akuryrkju á stig borgarmenn- ingar. Ilin frumstæðu samfélög trúa á goðmögn og vætti, spegilmynd náttúruafla, en trú á guði er yngri og einkennir borgarmenningu eða menningu frumstæðra samfélaga, sem hafa kynni af borgarmenningu. Þessi 13

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.