Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Page 36

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Page 36
ýmsu því sem efst ev á baugi hvcrju sinni. Dagblöðin eru eins og allir vita öll pólitísk flokksmálgögn, og sitja stjórnmálin þar því í fyrirrúmi, jafn- vel svo mjög að þau móta svipmót blaðanna sýnu meir en eðlilegt getur talizt. Flest vönduð erlend blöð (t. d. skandinavísk) leggja sóma sinn í að halda uppi „menningarsíðum“ þar sem greinum um menningarmál og gagnrýni ýmiss konar cr skipaður sess. Ekki munu þess dæmi að íslenzk blöð hafi haft svipaðan liátt á, en í þeim flestum er aftur á móti svokölluðu skemmtiefni skipað mikið rúm og veg- legt----- og 'er jafnvel orðið aðalefni sumra. Ég er ekki að lialda því fram að íslenzk dagblöð liafi algera fyrir- litning á öllu því efni sem talizt get- ur menningarlegs eðlis, en hinu er sízt að leyna að slíkt blaðaefni hér er í hæsta máta tilviljanakennt og óskipu- legt og oft meira eða minna litað af pólitík eða kunningsskap. F'lest eða öll dagblöðin sjá nú sóma sinn í því að flytja að staðaldri leik- listargagnrýni og láta lielzt enga frumsýningu höfuðstaðarleikhúsanna fram hjá sér fara án þess að henni sé viðeigandi sómi sýndur. En þetta er líka hinn eini þáttur gagnrýni er hlot- ið hefur hæfilegan framgang (hvað sem segja má um gæði þessarar gagn- rýni sem slílcrar). Bókmenntagagn- rýninni er sýnu minni sómi sýndur, aðeins fá blaðanna hafa á að skipa föstum bókmenntagagnrýnendum er að staðaldri rita um nýjar bækur (og verður þó að telja það frumnauðsyn). Og nú er skennnst að minnast þeirra „ritdóma“ með öllu eðli auglýsinga 34 er yfirfylla mörg blöðin í jólakauptíð- inni. Það er bein móðgun við lesendur að bjóða þeim slíkar ritsmíðar undir yfirskini gagnrýni. Um aðrar greinir Iistgagnrýni er tómt mál að tala. Tón- list cða myndlist er ekki títt umræðu- efni á síðuni íslenzkra blaða þótt nokkurrar viðleitni gæti á stundum í þær áttir. Ekki er auðsagt hvað valdi þessu tómlæti, en mér er ekki grunlaust um að hið ríka stjórnmálaeðli blaðanna eigi sinn þátt þar í, allt efni annað en stjórnmál og beinar fréttir sé talið minnstu skipta og blöðin leggi því lít- inn metnað í að vanda til þess. En hvað sem veldur er þetta leiðinlegt og óþarft ástand, og blöðin gætu leyst þarft hlutverk af hendi með því að flytja að staðaldri vandaða gagnrýni og annað menningarlegt efni og vera eftir föngum vettvangur umræðna um þessi mál. Þau yrðu ekki Iélegri flokksmálgögn fyrir það, — þvert á móti væri þeim að því styrkur að sinna einnig efnum utan dægurfrétta og stjórnmálarígs. Þá eru hér gefin út ýmis tímarit er kenna sig við menningarmál, ég man í svipinn eftir fimm tímaritum sem öll eru lielguð bókmenntum og öðrum listum. 011 þessi rit eru lítil, koma út þrisvar eða fjórum sinnum á ári, og útgáfa þeirra er oft harla stopul og óviss. Fjöldi slíkra rita hefur séð dags- ins ljós hér á landi á undanförnum árum og horfið síðan fyrr en varði, samkenni þeirra margra hverra virð- ist hafa verið hæfileikinn til að logn- ast út af og deyja. Því fer fjarri að ég hafi nokkra löngun til að veitast að þessum ritum (enda væri það grjót- DAGSKRÁ

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.