Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Qupperneq 59

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Qupperneq 59
En er kveldið hnígur yndissvalt á urð og lauf- græn börð hcyrast aftur skóhljóð þung í Hlíðarmó. Ekki fer hún Dorothy Parker betur út úr viðskiptunum við Guðmund Frímann. Hún á |irjú Ijóð í bók hans. Eitt þeirra er snoturlega þýtt, en hin afleirlega, einkum ljóðið Epitaph, seni er eitt af fallegustu Ijóðum skáldkonunn- ar. Fjögur fyrstu erindin eru þannig: The first time I died I walked my ways; I followed the file of limping days. I held me tall, with my head flung up But I dared not look on the ncw mcon’s cup. I dared not look on the sweet young rain, and between my ribs was glcaming pain. The next time I dicd, they laid me deep. They spoke worn words to hallow my sleep. I’etta þýðir Guðmundur Frímann svo: Er dó ég fyrra skiptið þá hélt ég mig áfram hér í heiminum sem áður svo tr.rvelt sem það er. Og virðing minni hélt ég bar höfuðið iafnan hátt þótt hræddist ég að líta upp í kveldloftið blátt. Og ekki mátti eg heyra regnsins dropadyn í skóg. Við dyr míns hjarta bjarg eitt var, er sára kvöl mér bjó. Er dó ég öðru sinni var mér sökkt í djúpa gröf með söng og yfirlestri mér leiðst ei stundartöf. Þriðja erindið, með dropadyninn og bjargið við hjartadyrnar, er hörmuleg afskræming, og síðari helmingur fjórða erindis er beinlínis rangfærður. En mest skemmd á þessu ljóði er þó að breyta þess meitlaða formi, sem á einmitt svo vel við heiti þess, og umvenda Ijóðrænu og einfaldleik í losaralega, uppskrúf- aða langloku. Enn eitt lítið dæmi úr ljóði, sem Guðmund- ur Frímann hefur í heild þýtt lipurlega: Ljóð Sten Selanders, Det torra tradet. byrjar svo: DAGSKRÁ Det torra tradet lyfte upp mct himlen den enda kvist som ánnu lyste grön likt cn fakir, vars lama armar stelnat i en förtvivlad bön. Magnús Asgeirsson þýðir Jietta svo: Og tréð hið visna hóf þá grein til himna úr hrjóstri dauðra kvista er ein var græn, sem hefði fakírs aflvana armur stirðnað í örvæntingarbæn. Ilann brýtur dálítið hrynjandina í þriðju línu vegna orðsins aflvana, sem liann kýs held- ur en afllaus, en hann sér það nauðsynlega í að halda myndinni unt hinn hreyfingarlausa fakír, hvcrs armur hefur stirðnað og misst mátt. Guðmundur Frímann þýðir: Það teygir upp þá einu grein sem græn er hið gamla visna skógartré. Það er sem fakírsarmi upp til himna í örvæntingu fórnað sé. Guðnnmdur brýtur hrynjandi frumtextans í tveimtir línum, en hann eyðileggur líka sam- líkinguna við hinn stirðnaða, aflvana arm. Það er aðeins í fáum Ijóðum, sem Guð- mundi Frímann tekst að halda tilætlaðri hrynjandi ljóðið á enda. Við allmörg af þeim Ijóðum, sem hann þýðir, hafa verið samin góð lög, en þau er ekki hægt að nota við þýðing- arnar. I Spelmansvisor eftir Karlfeldt fellir þýð- andinn burt síðari helming ljóðsins, þann sem gefur því dýpt, og raunar fellir þýðandinn einnig burt þá mynd í öðru erindinu, sem gefur ti! kynna, að um er að ræða hina miklu sumarhátíð Svía, mids'-mmarafton. Þetta er ekki að fara vel með nóbelskáldið. Þýðingin á hinu stóra kvæði Gripenbergs, Aköllun, þolir furðu vel samanburð við þýð- ingu Jóns Helgasonar, en hrynjandin gloprast þó niður í einu erindanna. Þýðing Jóns er mun þróttmeiri og persónulegri, en þýðing Guð- mundar liðlegri á köflum. Guðmundur þýðir Ijóð eftir skáldjöfurinn Hjalmar Gullberg, eitt af þeint veigaminni. Hann nær nokkuð vel stemningunni í því. Fjarri lagi er þó að þýða cell (fangaklefi) með kofi, og Ijóðlínan: „æskunnar vegleysur heill- uðu mig,“ kemur eins og fjandinn úr sauðar- leggnum og á sér enga stoð í Ijóði Gullbergs. 57
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.