Félagsbréf - 01.04.1958, Side 16
4
PÉLAGSBRÉF
Það er þetta 'umburðarleysi — ofstæJci, svo að hlutimir séu rétt
nefndir — sem vekur ugg og kvíða. Ekki vegna þess, að illkvittni-
leg skrif skaði yfirleitt svo mjög Indriða Þorsteinsson eða aðra
þá sem fyrir þeim verða. Menn eru orðnir ýmsu vanir í þeim
efnum. Heldur er það af hinu, að langvinn hatursskrif annars
góðra manna um skoðanir hvers annars, leiða til þess eins að
rugla landslýðinn. Hvort tveggja kann þá að henda í senn, að
menn hætta að óttast hina eiginlegu fjendur lýðræðisins, því að
lýðræðissinnum er engu betur lýst. Hví þá að hræðast kommún-
isma, ef hinir eru engu betri? Og svo kunna aðrir að syyrja:
Hvers virði er þetta marglofaða lýðræði, þegar allir flokkar eru
leiddir af hálfgildings gangsterum? Einræðið er þó alltént styrk-
ara þjóðskipulag, þar sem auðvelt er að halda niðri fjárplógs-
mönnum og ræningjum með óbrigðulum aðferðum.
Nú treystum vér því auðvitað, að þessi verði ekki raunin, en
vér megum þó ekki loka fyrir því augum, að á síðustu mánuðum
hefur ófyrirleitnin i innlendum stjómmálaáróðri aukizt geigvæn-
lega, og því miður meir af völdum lýðræðissinna en höfuðfjenda
lýðræðisins af þeirri einföldu ástæðu, að af hálfu þeirra síðar-
nefndu var litlu hægt við að bæta.
Cllilutiiii listainannafjsir.
Eitt þeirra mála, sem ganga á afturfótum á landi hér, er út-
hlutun listamannafjár. Þessi úthlutun fer fram einu sinni á ári,
og má víst nefna hana árleg vonbrigði. Um úthlutunina sér póli-
tískt kjörin nefnd — flest fer eftir þeim leiðum á íslandi — einn
fulltrúi fyrir hvern stjómmálaflokk. Og þegar svo er í pottinn
búið, vill starfið fá pólitískt yfirbragð, að minnsta kosti er auð-
velt að túlka það svo.
Uthlutunarnefnd listamannaf jár er vandi á höndum, en hún
lætur líka undir höfuð leggjast að leysa þann vanda, að því er
bezt verður séð. Síðustu úthlutun er nú nýlokið, og virðist handa-
hófið jafnvel meira en áður. Erfitt er um að segja, hvort hér er
að verki pólitík, kunningsskapur eða eitthvert þriðja afl — list-
rænt mat er að minnsta kosti furðu lítils ráðandi.