Félagsbréf - 01.04.1958, Qupperneq 54

Félagsbréf - 01.04.1958, Qupperneq 54
42 FÉL.AGSBRÉF láta nokkur Grettistök ægja sér. Hún verður í bernsku og æsku fyrir sterk- um og heilsteyptum trúaráhrifum. Köllun lífsins er kvaðning Guðs. En hinar hörðu kröfur til heillyndis, af- sláttarleysis og algerleiks, sem fólgn- ar voru í skapgerð hennar, gerðu henni ekki fært að una neinum brest- um í grunni þeirrar trúarafstöðu, sem allt viðhorf til lífsins byggðist á. Nítján ára gömul, næturgestur að Svínafelli í Öræfum, verður hún frá sér numin. „Tíminn og rúmið hvarf mér, allt nema þessi eina, brennandi þrá að fá að sjá Guð, ef hann væri til. Hún gagntók mig svo algerlega, að ég veit ekki, hvort ég tifði í henni mínútur eða klukkustundir, en ósjálf- rátt varð hún að bæn, fyrstu bæninni, sem ég hafði beðið um andleg gæði: Guð, ef þú ert. til, þá kenndu mér að þekkja þig, láttu það verða, hvað mikið, sem það kostar mig“. Guð bænheyrði hana „á sínum blessaða tíma og á sinn blessaða hátt“, og í ljósi þeirrar bænheyrslu dvínar birt- an yfir þeirri guðsþekkingu, sem hún eignaðist óbeðið þegar í bernsku og skuggarnir vaxa yfir því skeiði æv- innar, þegar trú hennar var aðeins leit eða henni virtist hún kulnuð („Frá myrkri til ljóss“). Og hver fót- festa, sem hún fær í trúarefnum, verður brekkusæknum anda tiennar viðspyrna til þess að klífa áfram. Hinir mörgu sigrar trúarlífsins smækka í minningunni vegna þess að hún „seilist sífellt eftir því, sem framundan er“, eins og postulinn komst að orði, og hún finnur, að þótt hvert spor í rétta átt sé mikilvægt, er enginn andlegur sigur alger eða unninn í eitt skipti fyrir öll. Trúaráhrif bernskunnar móta Ólafíu til frambúðar. En meðan h ' a er enn á þroskaskeiði, fer hún utan og kemst í umhverfi, þar sem meiri hræringar eru í andlegu lífi en hér. Síðan er hún langdvölum erlendis. Hún kynnist og gerist virkur þátt- takandi í starfsemi, sem er alþjóðleg og borin uppi af fólki úr ýmsum kirkjudeildum. Þarna er að leita skýringar á vissum atriðum í trúar- legri mótunarsögu hennar, þótt ein- stakir þættir séu nokkuð á huldu. Menn hafa furðað sig á því og sumum ofboðið, að hún skyldi fá mætur á Kalvín. Hefur sú skoðun raunar komið fram í því sambandi, að hvert frávik frá „lútherskum rétt- trúnaði“ hjóti að vera til sálubóta, jafnvel þótt horfið væri á vald þess voðamennis og „kreddupostula", Kal- víns. Nú er það staðreynd, sem stendur óhagganleg jafnt fyrir því, þótt sjón- deildarhringur nútíma víðsýnis rúmi hana ekki, að Kalvín er í hópi þeirra manna, sem hæst ber í sögu Vestur- landa, og einn sá maður, sem all- margar mestu menningarþjóðir álf- unnar telja sig eiga mest að þakka. Þeirra á meðal eru Skotar og gat Ólafía ekki dvalizt lengi meðal þeirra án þess að verða vör við áhrif hans. En dvöl hennar í Edinborg og kynni við ágætt fólk þar skipar mikið rúm í minningum hennar og fer hún ekki dult með það, að þá hafi trúartil- finningar hennar tekið nýjum þroska. Líklegt má telja, að þau nánu kynni, sem hún hafði þá haft af trúuðu íólki í Vesturheimi, hafi þegar áður komið henni í snei-tingu við Kalvín. Þar þurfti hún ekki heldur víða að

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.