Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Blaðsíða 8
föstudagur 12. október 200710 Fréttir DV
Stríðandi fylkingar
Síðustu daga voru tennurnar dregnar úr borgarstjóra og hatrammar deilur innan Sjálfstæðisflokksins urðu
til þess að hann situr nú einn eftir í minnihluta borgarstjórnar. Tvö lið börðust um völdin, annars vegar lið
Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, og hins vegar lið Geirs. H. Haarde, núverandi forsætis-
ráðherra. Niðurstaðan varð sú að flokkurinn missti völdin í borginni.
TrausTi HafsTeinssOn
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Stríðandi fylkingar innan Sjálf-
stæðisflokksins urðu borgar-
stjórnarflokki hans og Vilhjálmi
Þ. Vilhjálmssyni borgarstjóra að
falli. Meirihlutasamstarf Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
sprakk í gær eftir logandi deilur
borgarstjórnar síðustu vikur um
Reykjavik Energy Invest, REI, og
málefni Orkuveitu Reykjavíkur. Í
hatrammri deilu undanfarið hafa
tvær fylkingar í Sjálfstæðisflokkn-
um togast á, armur Davíðs Odds-
sonar, fyrrverandi forsætisráð-
herra, og armur Geirs H. Haarde
forsætisráðherra.
Geir er legið á hálsi fyrir að hafa
ekki hrifsað til sín völdin að fullu
er Davíð dró sig úr pólitíkinni og
hann á í vandræðum með gömlu
valdaklíkuna í flokknum. Baráttan
um síðasta vígið milli grasrótar-
innar og gömlu flokkseigendanna
stóð yfir og flokkurinn var klofinn
í tvennt þegar kom að málefnum
borgarstjórnar. Baráttan var á milli
liða Geirs og Davíðs og borgar-
stjórnarflokkurinn var óstarfhæfur
sökum innanflokksdeilna. Átökin
urðu til þess að flokkurinn stendur
einn eftir utan borgarstjórnar.
Klofinn í tvennt
Síðustu daga vakti athygli
hversu lítið borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins létu hafa eftir sér
undir nafni sem renndi stoðum
undir þá kenningu að innanflokks-
átök grasseruðu. Þó svo að borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins full-
yrtu að allt væri í góðu var ljóst að
vandinn var flóknari en svo. Bak-
tjaldamakk og valdabarátta inn-
an flokksins var of mikil til þess að
hægt væri að lægja öldurnar. Gras-
rót flokksins var komin í stríð við
leifarnar af flokkseigendafélög-
unum, gamla kol-
krabban-
um. Vilhjálmur borgarstjóri varð
fyrir mikilli reiði og árásum eigin
flokksmanna, opinberlega vegna
hugmyndaágreinings og slælegra
vinnubragða við sameiningu REI
og Geysis Green Energy. Að baki
var þó um að ræða tilraun til að
koma höggi á borgarstjóra og Geir.
Stríð gegn Vilhjálmi er stríð gegn
forsætisráðherra.
Til varnar var Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra
sem spilar hlutverk í átökum líð-
andi stundar og hið sama er sagt
um Styrmi Gunnarsson, ritstjóra
Morgunblaðsins. Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra leiddi hins
vegar baráttuna gegn Vilhjálmi og
hans fulltrúar í borgarstjórn eru
þau Gísli Marteinn Baldursson,
Hanna Birna Kristjánsdóttir og
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
Gagnkvæm óbeit Björns
og Guðlaugs Þórs leynir
sér ekki og hermt er að sú óbeit
komi jafnvel fram á ríkisstjórnar-
fundum.
rei-listi varð ofan á
Úr röðum flestra flokka heyrð-
ust raddir um að Björn Ingi og
Vilhjálmur ættu að axla pólitíska
ábyrgð og segja af sér. Í ljósi þess
hversu fá fordæmi eru fyrir afsögn-
um stjórnmálamanna hér á landi
var talið ólíklegt að sú yrði niður-
staðan. Mun líklegra var talið að
flosnaði upp úr meirihlutasam-
starfinu. Sú varð einmitt raunin
því það var Björn Ingi sem tilkynnti
borgarstjóra slit á meirihlutasam-
starfinu og myndun REI-listans.
Fyrirhugaður var í gær fundur
meirihlutaflokkanna í Höfða þar
sem fara átti yfir málin og ræða
lausnir á þeim vanda sem upp er
kominn. Björn Ingi mætti ekki til
fundarins og út af honum gekk Vil-
hjálmur borgarstjóri eftir viðræð-
ur við samstarfsmenn sína. Í stað
þess að málin væru rædd á fund-
inum er hann sagður undirstrika
enn frekar klofninginn í hópnum.
Vildu velta Birni inga og
borgarstjóra af stalli
Hinn svokallaði Davíðsarm-
ur vildi alls ekki að meirihlutinn
héldi og vildi Björn Inga og Vil-
hjálm borgarstjóra út úr borgar-
stjórn. Dómsmálaráðherra, sem
oftast hefur verið fylgjandi Dav-
íð, var fljótur til að blanda sér í
umræðuna og baðst opinberlega
undan því að vera kenndur við
þau vinnubrögð sem viðhöfð voru
í aðdraganda sameiningar REI og
Geysis Green Energy. Fyrrverandi
aðstoðar-
maður hans í dómsmálaráðuneyt-
inu, Friðjón Friðjónsson, kallaði
borgarstjóra spilltan og flestir við-
mælenda DV telja ljóst að þau skrif
voru runnin undan rifjum ráðherra.
Hann fullyrti jafnframt að Björn
Ingi hefði hótað slitum á meiri-
hlutasamstarfinu og vildi sjá að
tekið yrði upp meirihlutasamstarf
við vinstri græna. Gegn þeirri hug-
mynd að taka upp samstarf börð-
ust hart þeir Geir og Guðlaugur Þór
og vildu frekar annað hvort halda
meirihlutanum eða taka upp sam-
starf við Samfylkinguna. Niðurstað-
an varð sú að Sjálfstæðisflokkurinn
málaði sig út í horn og hinir flokk-
arnir tóku frumkvæðið. Fyrir liggur
borgarstjórn án Sjálfstæðisflokks-
ins sem eftir stendur sár vegna hat-
rammra deilna.
Síðustu daga ���ur
borgarstjórn �ogað
sta�nanna á mi��i og
innan��okksd�i�ur sj�-
stæðismanna spr�ngdu
m�iri��utasamstar�-
ið í borginni. Borgar-
stjóri var rúinn trausti
og �ans �igin sam-
��okksm�nn í borgar-
stjórnar��okknum
börðust g�gn �onum.
Að tja�dabaki má �inna
tvær �y�kingar s�m
b�rjast um vö�din.
Davíðsarmur:
n björn bjarnason, dómsmálaráðherra
n gísli Marteinn baldursson, formaður borgarstjórnarflokks sjálfstæðisflokksins
n Hanna birna kristjánsdóttir, fyrrverandi forseti borgarstjórnar
n Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi
n styrmir gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins (vildi mynda meirihluta með Vg)
n kjartan gunnarsson, miðstjórnarfulltrúi sjálfstæðisflokksins
Geirsarmur:
n guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra
n Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri
n kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
n Jórunn frímannsdóttir, borgarfulltrúi
n bolli thoroddsen, varaborgarfulltrúi
n Marta guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi og formaður Varðar
fiJÓ‹VAKI
Hlutverkaskipti Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var
borgarstjóri og dagur b. eggertsson oddviti stærsta
minnihlutaflokksins. Nú hafa hlutverkin snúist við.
ráðhús reykjavíkur deilur innan sjálfstæðis-
flokksins urðu til þess að fyrstu valdatíð hans í
borginni frá 1994 lauk eftir rúmt ár.