Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Síða 12
föstudagur 12. október 200712 Fréttir DV
TUGIR MILLJARÐA
FARNIRFL Group er einn stærsti hluthafinn í bandaríska flugrisanum American Airlines en bréf í félaginu hafa hríð-lækkað í verði á árinu. Frá því í janúar hafa bréfin lækkað um 50 prósent og hefur það kostað hluthafa í félaginu um þrjú hundruð og tvo milljarða
króna samkvæmt bréfi sem forstjóri
FL Group skrifaði til stjórnar Ameri-
can Airlines. Upplýsingaflæði innan
American Airlines er lélegt og þarf að
taka innra skipulag þess til endurskoð-
unar. Upplýsingafulltrúi FL Group
segir stöðu bréfanna ekki binda hend-
ur félagsins til frekari fjárfestinga.
„Við teljum að það þurfi að upplýsa hluthafana betur og
við teljum að það séu umtalsverð verðmæti falin í þessum einingum sem eru ekki gerð nægilega sýnileg eins og staðan er nú.“
Hlutabréf í bandaríska flugrisan-
um American Airlines Corporation
hafa hríðlækkað á þessu ári. Frá
því um miðjan janúar hefur gengi
bréfa lækkað um fimmtíu prósent.
Fjárfestingarfélagið FL Group er
einn stærsti hluthafinn í Ameri-
can Airlines, með rétt innan við
tíu prósenta hlut. Lækkandi gengi
hlutabréfa í American Airlines
hefur kostað hluthafa þess sam-
tals allt að fimm milljarða banda-
ríkjadollara eða um þrjú hundruð
og tvo milljarða króna samkvæmt
núgildandi gengi. Miðað við þess-
ar forsendur má ætla að FL Group
undir forystu Hannesar Smárason-
ar hafi tapað um það bil tuttugu og
fimm milljörðum króna á þessu ári
með fjárfestingu í bréfum Ameri-
can Airlines. Sjálfur segir Hannes
Smárason í bréfi sem hann skrifaði
stjórn félagsins að gengislækkun-
in hafi kostað hluthafa Í American
Airlines gífurlegar fjárhæðir.
Hvetur til aðgerða
Hannes Smárason, forstjóri FL
Group, hefur gagnrýnt stjórn Am-
erican Airlines og sagt að verð-
mætasköpun þess sé undir þeim
væntingum sem fjárfestar gerðu
sér. FL Group hefur mjög mikla
reynslu af flugrekstri og hefur
meðal annars fjárfest farsællega
í lággjaldaflugfélögunum Easy-
Jet, Sterling Airlines og Finnair að
ógleymdu Icelandair.
Í lok september skrifaði Hannes
bréf sem stílað var beint á stjórn fé-
lagsins þar sem hann hvatti stjórn-
ina til aðgerða strax sem munu
snúa stöðu fyrirtækisins við. Það
er fremur sjaldgæft að stórir hlut-
hafar skrifi bréf með þessum hætti
beint á stjórn félags-
ins líkt og Hannes
gerði. Í bréfinu
segir Hannes
stöðu Am-
erican
Airlines valda vonbrigðum og hún
sé óvænt. Hann sjái sig því knúinn
til þess að skrifa stjórninni beint.
Hannes segir það löngu tímabært
að taka til alvarlegrar endurskoð-
unar hvernig snúa megi stöðu Am-
erican Airlines við. Í stað þess
að kenna utan-
aðkomandi þátt-
um, á borð við
olíuverð og mjög
mikla samkeppni
á markaðnum, um
slæma stöðu fyr-
irtækisins, verði
stjórnendur að
móta sér stefnu til
þess að auka verð-
mæti bréfa í fyrir-
tækinu á ný, svo
hluthafar þess fái
eitthvað fyrir sinn
snúð.
Veldur
áhyggjum
Staða American
Airlines á verðbréfa-
markaðnum hlýtur
að valda stjórnend-
um FL Group nokkr-
um áhyggjum, þar sem
erfitt getur verið að ná fyrirtækinu á
skömmum tíma upp úr þeirri lægð
á mörkuðunum sem það er í núna.
Hvort tveggja kemur til að verð-
mæti bréfanna hefur lækkað mik-
ið og hugsanlegt gengistap vegna
gjaldeyrisviðskipta með dollarann.
Hins vegar eru horfur á verðbréfa-
mörkuðum ágætar nú um stundir
og Dow Jones farið upp á við. Það
var mat þeirra sem DV ræddi við
að staða bréfa í FL Group hefði ekki
mikil áhrif á tækifæri þess til fjár-
festinga á næstunni.
Jón G. Hauksson, ritstjóri tíma-
ritsins Frjálsrar verslunar, varar þó
við því að tala um að FL Group hafi
tapað peningum þar sem fyrir-
tækið hefur ekki enn selt hlut sinn
í American Airlines. „Verðmæti
bréfanna hefur lækkað en þeir
hafa hvorki tapað né grætt neina
peninga fyrr en þeir selja bréfin.
Það er algengt að tala um gróða og
tap um leið og gengi bréfa hækkar
eða lækkar.“
Mikil lækkun
Kristján Kristjánsson, upplýs-
ingafulltrúi FL Group, segir lágt
gengi á bréfum í American Air-
lines ekki hafa áhrif á rekstur eða
framtíðarfjárfestingarmöguleika
FL Group. Félagið vill ekki gefa
upp fyrir hversu mikið það fjárfesti
í American Airlines, en hluturinn
hleypur eins og áður segir á tugum
milljarða króna. „Það er viss ein-
földun að bera saman gengið þeg-
ar FL Group keypti bréfin og gengið
nú um stundir og fá út ákveðna nið-
urstöðu, en það er samt sem áður
ljóst að bréfin hafa lækkað umtals-
vert. Gengi bréfa getur hins vegar
alltaf sveiflast og þetta er ekki tapað
fé í þeim skilningi.“
American Airlines er eitt stærsta
og virtasta flugfélag Bandaríkjanna,
en vandi fé-
lagsins felst eins og áður segir í
innra skipulagi þess. Upplýsinga-
flæði frá stjórnendum fyrirtækisins
er ófullnægjandi og viðskiptaein-
ingar þess eru ekki nægilega skýrar
svo erfitt er að meta hvort þær skili
hagnaði eða tapi.
Kallar eftir betri yfirsýn
Kristján heldur áfram: „FL
Group hefur gagnrýnt American
Airlines vegna þess að upplýsinga-
gjöfin til hluthafa er ekki nægilega
skýr. American Airlines rekur marg-
ar viðskiptaeiningar á borð við vild-
arklúbba og það hefur reynst erfitt
fyrir fjárfesta að fá yfirsýn yfir stöðu
hverrar einingar, hvort hún skilar
tapi eða hagnaði. Við teljum að það
þurfi að upplýsa hluthafana betur
og við telj-
um að það séu umtalsverð verð-
mæti falin í þessum einingum sem
eru ekki gerð nægilega sýnileg eins
og staðan er nú.“ Kristján segir það
ekki á döfinni að FL Group selji bréf
sín í American Airlines. Hann seg-
ir jafnframt erfitt að spá fyrir um
hvort gengi bréfa í American Air-
lines muni hækka á næstunni. „Það
er ýmislegt sem bendir til þess að
bréfin gætu hækkað því rekstur fyr-
irtækisins er á margan hátt ágæt-
ur, en það er hins vegar útilokað að
spá fyrir um það. Við teljum að ná-
kvæmari upplýsingagjöf gæti orðið
til þess að markaðurinn fengi skýr-
ari mynd af rekstrinum og gæti þá
betur metið raunverulegt verðgildi
hans.“
AMericAn AirLines gengi á bréfum félagsins hefur lækkað
um 50 prósent frá því fL group keypti stóran hlut í því.
HAnnes sMárAson
fL group hefur hvatt
american airlines til þess
að snúa stöðunni við.
Miðað við núgildandi
gengi hefur fL group
tapað tugum milljarða
króna á fjárfestingu í
american airlines.
VALGeir Örn rAGnArsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is