Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Side 14
Föstudagur 12. október 200714 Fréttir DV
„Við byrjuðum að skipuleggja
þessa ferð hálfu ári áður en við
lögðum í hann,“ segir hinn 21 árs
gamli Arnar Ómarsson, sem hélt
í tveggja vikna ferð til Írans nú á
haustmánuðum ásamt tveimur fé-
lögum sínum, þeim Örlygi Hnefli
Örlygssyni og Benedikt Þorra Sig-
urjónssyni. 14. september stigu
þeir félagar um borð í flugvél sem
flutti þá frá Keflavík til London.
Þaðan flugu piltarnir í sex tíma
áður en þeir lentu á alþjóðaflug-
vellinum klukkan sex að morgni
15. september í Teheran. Þar áttu
þeir eftir að eyða ógleymanlegum
hálfum mánuði af ævi sinni.
Vinaleg þjóð
„Við vorum búnir að ákveða
hálfu ári áður en við héldum í ferð-
ina hvert við ætluðum að fara. Á
þessu hálfa ári lásum við okkur til
um sögu og menningu Írans. Eftir
því sem við lásum meira sáum við
hvað landið var allt öðruvísi en við
höfðum gert okkur í hugarlund.
Það eru margir sem halda að Íran-
ir séu hálfgerðir villimenn. Sann-
leikurinn er hins vegar sá að það
er rosaleg samheldni meðal íbúa
landsins og allir eru mjög hjálp-
samir. Eftir að hafa ferðast um
landið kom það á daginn að eini
neikvæði punkturinn virðist vera
ríkisstjórnin og forsetinn Mah-
moud Ahmadinejad.“
Kúgun af hálfu stjórnvalda
Aðspurður af hverju Íran varð
fyrir valinu af löndum heimsins
segir Arnar að ástæðan hafi meðal
annars verið sú að þar liggur elsta
menningararfleifð mannkyns-
ins. „Sagan á bak við fólkið í land-
inu er mjög heillandi og við sáum
þarna nokkur þúsund ára gömul
mannvirki sem okkur fannst heill-
andi. Við fórum þangað þó fyrst
og fremst til að upplifa menning-
una og mannlífið en ekki bygg-
ingarnar og arkitektúrinn,“ segir
Arnar en hann starfar sem ljós-
myndari og umbrotsmaður fyrir
DV. Á ferð sinni um Íran tók hann
um þrjú þúsund ljósmyndir en að
hans sögn hefði hann vel getað
tekið fleiri myndir.
Arnar segir að á ferð sinni um
landið hafi hann ekki rætt við einn
mann sem studdi forsetann Ahm-
adinejad. „Það eru mjög marg-
ir andsnúnir honum og vilja að
hann og klerkastjórnin hverfi frá
völdum. Það er æðsti draumur
margra að Bandaríkjamenn ráð-
ist inn í landið sem fyrst til að ein-
hver möguleiki væri á að losna við
klerkastjórnina. Mér fannst það
ansi skuggalegt en það sem fólki
mislíkar er kúgunin sem stjórn-
völd beita fólkið í landinu.“
Sem dæmi um þá kúgun sem
ríkir í landinu má nefna að engir
skemmtistaðir eru leyfðir í landinu
og ekkert áfengi. Skemmtistöðum
var skipt út fyrir moskur og þær
eru í öllum hverfum. Hvers konar
afþreying er af skornum skammti
og kvikmyndahús sýna aðeins lít-
ið brot af þeirri kvikmyndaflóru
sem Vesturlandabúar eru mataðir
á. Gervihnattadiskar eru einnig á
bannlista hjá stjórnvöldum. „Þetta
er það sem fólk þolir ekki, það er
að geta ekki verið það sjálft.“
Fólk kemst ekki burt
Í Teheran kynntust strákarnir 42
ára leigubílstjóra að nafni Ramin
sem fylgdi þeim alla leiðina. Arn-
ar segir að hann hafi reynst þeim
ómetanlegur því hann keyrði þá
vítt og breitt um landið. Arnar segir
að andúð Amars á landinu sé mik-
il en á síðustu tuttugu árum hef-
ur hann gert ítrekaðar tilraunir til
að komast frá Íran. „Honum hefur
alltaf verið hent aftur til landsins.
Það eru margir sem vilja fara frá
landinu en mjög fáir sem komast
í burtu. Fólk þarf að vera mjög vel
menntað eða vel statt fjárhagslega
en konur eru í miklum meirihluta
þeirra sem fara í háskóla. Fólkið
hefur engin völd til að breyta þessu
því kosningarnar skipta engu máli
að sögn innfæddra. Það eina sem
breytist eru kjör hinna ríku.“
Strákarnir ferðuðust vítt og
breitt um landið og frá Teheran
fóru þeir til borgarinnar Esfahan
Íranar vilja innrás
Þeir Arnar Ómarsson, Örlygur Hnefill Örlygsson og
Benedikt Þorri Sigurjónsson héldu á dögunum í
ógleymanlega ferð til Írans en ferðin stóð yfir í hálfan
mánuð. Þeir komust að því að fólk kýs frekar að fara í
kynskiptaaðgerðir en að vera samkynhneigt. Margir
grátbiðja um að Bandaríkjamenn geri innrás í landið
og vilja losna við forsetann Mahmoud Ahmadinejad.
Það sem kom einna mest á óvart var hve vinaleg og
umburðarlynd íranska þjóðin er.
Einar þór sigurðsson
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
„Sannleikurinn er hins
vegar sá að það er rosa-
leg samheldni meðal íbúa
landsins og allir eru mjög
hjálpsamir.“
Staðreyndir
um Íran
Stærð: 1.648.145 ferkílómetrar
Höfðuborg: teheran
Íbúar: 65,4 milljónir
Fæðingartíðni: 16,57 á hverja þúsund íbúa
Dánartíðni: 5,65 á hverja þúsund íbúa
Hagvöxtur: 4,6% árið 2006
„Það er æðsti draumur
margra að Bandaríkja-
menn komi inn í landið
sem fyrst.“
Mótorhjól Mikil mótorhjóla-
menning er í Íran og oft sést til
heilla fjölskyldna á einu hjóli.