Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Side 16
föstudagur 12. október 200716 Helgarblað DV
Fyrirsætur
Kynferðisleg skírskotun í tískuljós-
myndun hefur alltaf verið í gangi en
misjafnt er hvað tíðarandinn þolir í
þeim efnum. Fyrirsætur ársins 2007
virðast flestar vera á róandi lyfjum en
krafan um lágmarksþyngd verður
sífellt meira áberandi. Britney Spears
fann ekki upp þann stíl að flagga feg-
urstu pörtunum og fyrirsætur frá
árinu 1975 myndu sóma sér vel í aug-
lýsingum frá Dressmann.
fyrr og ú
Hipp og kúl
„ullarfatnaður var
aðalgræjan á
tískusýningum á
þessum árum, kringum
1977. umhverfið,
flottasti bíllinn, skapar
samsömum við það
sem hipp og kúl er. Mér
finnst eins og módelin
séu óvenju eðlileg, eins
og venjulegt fólk.“
Á StílStíg
Árið 1985. „Hér er
annað dæmi um fræga
fyrirsætu, Jerry Hall
sem var gift Mick
Jagger í rolling stones.
Leiðir módela og
poppstjarna liggja oft
saman, sem er kannski
ekkert skrýtið því þetta
er allt í sömu partíun-
um. Þetta módel er á
stílstíg (runway). Þar
eru módel yfirleitt
hávaxnari en þau sem
birtast í ljósmyndatök-
um í setti.“
EktA íSlENSkt MÓDEl
„Þessi kynþokkafulli maður minnir á upphaf
módelsamtaka hér á landi þegar
Módelsamtökin 79 voru stofnuð.“
1970: HÁlfgirt koNA
„kynferðislegar stellingar hafa greinilega verið lengi í gangi.
Ég veit ekki hvað femínistar myndu segja um að konan sé
hálfgirt – ábyggilega ekki hrifnir. sexúal skírskotun er alltaf á
einhvern hátt í gangi í tískuljósmyndun en misjafnt hvað
tíðarandinn þolir í þeim efnum.“
koNur MEð klútA
„Hér erum við í kringum 1971. Þessi sýnir að
britney spears var ekki ein um það að flagga
líkamspörtum. Hér kemur fram konan sem
frjáls kynvera eftir kynfrelsisbaráttu
hippaáranna.“
DrESSMANN-
AuglýSiNg
frÁ 1975
„Hér er eins og Heiðar
snyrtir sé mættur í öllu
sínu veldi. Þó má segja
að ef hann væri ekki í
svona skrýtnum fötum
myndi hann sóma sér
vel í dag í
dressmannauglýsingu.“
BílAAuglýSiNg vorið 2007
„Hérna er hlutverkunum snúið við. Módelið er orðið
aukahlutur við bílinn sem er verið að selja. engin spurning að
markhópurinn sem á að fanga er karlmenn. dressið er í
tíðarandanum, „porno style“, en er ekkert óvenjulegra en það
að það er notað á skemmtistöðunum í dag.“