Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Blaðsíða 24
HIN HLIÐIN
Líður iLLa innan
um frægt fóLk
n Nafn og kyn?
„Guðmundur Jónsson, karlmenni.“
n Atvinna?
„Tónlistarmaður.“
n Hjúskaparstaða?
„‚Ólofaður.“
n Fjöldi barna?
„Engin, á hins vegar einn frábæran fósturson.“
n Áttu gæludýr?
„Nei.“
n Ef þú værir bíll, hvaða bíltegund vildir þú þá vera og
hvers vegna?
„Þetta er skrítin spurning! En ef ég væri gítar myndi
ég vilja vera Fender. Hann er einfaldur en einstakur,
fellur vel að líkamanum og bræðir ætíð hin köldustu
hjörtu.“
n Hefur þú komist í kast við lögin?
„Jú, mig minnir einhvern tímann á unglingsárum
mínum fyrir óspektir á almannafæri. Þá var maður
svo blautur á bak við eyrun.“
n Borðar þú þorramat?
„Já, flest nema hákarl og súrsaðan hval.“
n Hefur þú farið í megrun?
„Ekki kannski megrun, en maður reynir að hugsa um
heilsuna og mataræðið.“
n Grætur þú yfir minningargreinum um ókunnuga?
„Nei.“
n Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já, þegar ég var í menntaskóla, þá var alltaf verið að
agnúast út í eitthvað. Einhvern tímann fórum við úr
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti niður í bæ til að
heimta mötuneyti í skólann, eða eitthvað því um
líkt.“
n Lestu blogg?
„Ekki lengur, hef bara ekki tíma fyrir enn eitt rausið.“
n Trúir þú á framhaldslíf?
„Já, algjörlega. Við erum bara hér í stuttu stoppi.“
n Hver er uppáhaldshljómsveitin þín?
„U2, síðan ég heyrði New Year’s Day með Eika Hauks
og félögum, verslunamannahelgina í Þjórsárdal
sumarið1984.“
n Kanntu dónabrandara?
„Nei, er ekki mikið fyrir brandara.“
n Kanntu þjóðsönginn?
„Ekki textann, en ég gæti raulað lagið ef ég þyrfti að
bjarga lífi mínu. Stæði mig kannski betur með
þjóðsönginn hans Magnúsar Þórs Sigmundssonar.
Ísland er land þitt.“
n Kanntu trúarjátninguna?
„Nei, ég gleymdi henni skömmu eftir fermingu.“
n Spilar þú á hljóðfæri?
„Já, gítar, piano og sög.“
n Styður þú ríkisstjórnina?
„Hún er skárri á pappírunum en sú síðasta, sem er nú
ekki erfitt.“
n Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Að láta drauma sína rætast.“
n Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og
af hverju?
„Engan. Mér líður ekki vel innan um frægt fólk. Ég er
rétt farinn að venjast Bubba Morthens.“
n Hefur þú eytt peningum í vitleysu – þá hvaða?
„Hef ég? Það yrði langur og ljótur listi ef ég þyrfti að
telja allt upp. Bara bílakaup mín í gegnum tíðina hafa
kostað mig offjár og ómældan hausverk. Hæfileikar
mínir liggja ekki í viðskiptum.“
n Heldur þú með einhverju íþróttafélagi?
„Ég er nú ekki heltekinn af íþróttabakteríunni en
Manchester United og KR hafa hugnast mér í gegnum
tíðina.“
n Hefur þú ort ljóð?
„Ekki ljóð, en slatta af lagatextum og verður sú iðja
skemmtilegri með hverju árinu.“
n Eru fatafellur að þínu mati listamenn?
„Alveg eins og margt annað sem rúmast í þeim kima,
þetta er allt spurning um hugarfar.“
n Eru briddsspilarar að þínu mati íþróttamenn?
„Algjörlega, eins og skákmenn og golfarar til dæmis.“
n Af hverju stafar mannkyninu mest hætta?
„Sjálfu sér.“
n Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Ég veit það ekki. En núverandi ástand er ekki að
virka, er það? Allt sem er bannað verður hættulegt
og sexí hjá ungu fólki. Við þurfum að læra að treysta
okkur sjálfum.“
n Stundar þú íþróttir?
„Ég held mér í horfinu í ræktinni.“
n Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Já, ég hef gert það. Maður fær stundum nýja vinkla
á sjálfan sig.“
Umræða DV
LR HENNING VIRKAR!!
7 kg farin á 8 vikum 30 kg farin á 16 vikum