Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Page 37
að halda áfram á þessari braut verð ég víst að
virða það við hann.
Vinna Audda er eflaust krefjandi og tímafrek.
Hefur hann tíma til að sinna fjölskyldunni? „Já,
já, en ég mætti alveg gera meira af því. En við
hittumst reglulega og tökum spil,“ segir Auddi
en að taka spil er eitt af áhugamálum hans. „Svo
er ég forfallinn bíófíkill og Manchester-maður.“
Af undarlegum atvikum
Þeir sem njóta vinsælda yngri kynslóðarinn-
ar eru oft sagðir í ábyrgðarhlutverki. Þeir eru fyr-
irmynd. Oft komu upp deilur í kringum þáttinn
70 mínútur. Krakkar öpuðu upp það sem strák-
arnir gerðu, foreldrum oft til mikillar mæðu.
„En svo var líka oft kvartað yfir því að þátturinn
væri sýndur of seint. Það er alltaf hægt að kvarta
yfir einhverju. Ég lenti til dæmis í skondnu at-
viki fyrir stuttu, talandi um fyrirmyndir. Það
var föstudagur, ég fór í Ríkið og keypti bjór. Þá
kom ungur strákur upp að mér og bað um eigin-
handaráritun. Ég gaf honum hana að sjálfsögðu.
Þá kom mamma hans upp að mér. Leit í augun
á mér hvöss á svip og sagði: Góða fyrirmyndin!
Ég spurði á móti: Bíddu, átt þú þá að vera með
strákinn í Ríkinu? Konan strunsaði þá í burtu.
Það koma alltaf upp svona undarleg atvik inn á
milli,“ segir Auddi sem á eflaust eftir að nýta sér
þetta atvik í handritsskrif sín einhvern daginn.
Leggur lokahönd á Tekinn
Þessa dagana vinnur Auddi hörðum hönd-
um að því að klára síðustu syrpuna af Tekinn.
„Það er búið að gera alla hrekkina. En við erum
svona að vinna í því þessa dagana að taka upp
það sem á eftir að taka upp í stúdíóinu og það
eru svona ýmsir smáhlutir sem eru eftir. Það eru
margir spennandi þættir fram undan. Marg-
ir hrekkir sem heppnuðust virkilega vel. Inga
Lind sjónvarpskona var tekin og verður sá þátt-
ur sýndur eftir tvær vikur. Við stilltum upp svona
Hollywood-paparazzi-sirkus þar sem blaða-
maður og ljósmyndari eltu hana á röndum og
hún varð alveg brjáluð.“
Hefur þú eignast einhverja óvini á þessu
brölti? „Nei, það held ég ekki. Ég þekki flesta
sem hafa verið teknir. Ekki þannig að ég bjóði
þeim öllum í afmælið mitt eða eitthvað slíkt.
Bara svona hæ og bæ. Allt þetta fólk segir enn-
þá hæ og bæ við mig svo ég held að það sé bara
allt í góðu. Ég las reyndar í einhverju blaðinu um
daginn pistil þar sem viðkomandi lýsti því yfir
að Tekinn væri ekki lengur fjölskylduskemmtun
því ég hefði meitt Þorgrím Þráinsson. Sá hinn
sami veit greinilega ekki að við Toggi erum góðir
vinir. Hann er hraustur maður og gat alveg tek-
ið þessu. Ég hefði líka aldrei gert þetta við neinn
annan en hann.“
Búinn með kvótann í bili
Þegar síðustu þáttaröð af Tekinn lauk voru
gefnar út yfirlýsingar þess eðlis að ekki stæði
til að framleiða fleiri þætti. Annað kom á dag-
inn. Stöð 2 keypti réttinn af Sirkus og ráðist var
í gerð tvöfalt fleiri þátta. Hverju breytti það?
„Við fengum talsvert meira fjármagn til þess
að gera þættina og fyrir vikið eru þeir auðvit-
að betri. Eins eru fleiri sem koma að þáttunum
sem auðveldar svo margt. En nú stendur ekki
til að gera fleiri þætti, hvort sem fólk trúir því
eða ekki. Við sögðum þetta líka síðast, ég veit
það, en það var með vilja gert svo að fólk yrði
ekki vart um sig. Þetta krefst auðvitað ákveð-
ins leynimakks. En ef ég á að segja alveg satt,
þá stendur ekki til að gera fleiri þætti í bráð. Þó
það sé tiltölulega auðvelt að verða þekkt andlit
á Íslandi held ég að við séum búin með kvót-
ann í bili.“
Endist ekki að eilífu
Í spjallinu við Audda kemur hann nokkrum
sinnum inn á háskólanám. Það er eins og hon-
um finnist hann eiga það eftir. „Hefði ég ekki
fengið vinnu í sjónvarpi á sínum tíma hefði ég
eflaust farið í félagsfræði. Nú þegar ég er kom-
inn með svona mikla reynslu af fjölmiðlum væri
ég líka til í að fara í fjölmiðlafræði. En ég hélt
alltaf að þetta skóladæmi væri bara bóla sem
mundi springa. En þetta virðist ætla að halda
sér svo ætli ég fari ekki í skóla einn daginn. Fólk
fer orðið í skóla á öllum aldri svo það er ekkert til
að skammast sín fyrir. Eins og er finnst mér samt
allt of gaman í vinnunni til þess að ég tími að
hætta en ég geri mér samt grein fyrir því að þetta
endist ekki að eilífu. Ég væri líka til að prófa að
búa í útlöndum án foreldra minna.“
Nýr þáttur í farvatninu
Auddi er þekktur fyrir flest annað en að sitja
auðum höndum. Nýr sjónvarpsþáttur er í far-
vatninu. „Ég, Sveppi, Sigurjón Kjartans og fleiri
handritshöfundar erum að leggja drög að nýj-
um leiknum sjónvarpsþáttum. Við Sveppi höf-
um ekkert skrifað saman frá því í Svínasúpunni
svo við erum mjög spenntir fyrir að hefja sam-
starf á ný. Við erum ekki komnir langt í þessu
ferli, erum svona að vinna að þessu, svo það
borgar sig að segja sem minnst,“ segir Auddi að
lokum.
DV Helgarblað föstudagur 12. OKtÓBEr 2007 37
„Ég var alltaf að angra Simma á djamminu og spurði hann:
Jæja, hvenær fæ ég að leika í falinni myndavél hjá ykkur?“
Kann ekki að skipta
um dekk á bíl auddi
segist hafa fljótt áttað sig
á því að handlaginn væri
hann ekki. Hann vissi
hins vegar að hann átti
fullt erindi í sjónvarp.