Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Síða 43
Hilmar Jónasson Matgæðingurinn
DV Helgarblað Föstudagur 12. október 2007 43
„Þessi réttur slær alltaf í gegn,“
segir Hilmar Jónasson, matgæðing-
ur vikunnar, en hann gefur lesendum
uppskrift að mangó chutney-kjúkl-
ingarétti sem hann segist mixa mjög
oft. „Það var frænka konunnar sem
laumaði þessari uppskrift að okkur
fyrir mörgum árum. Þetta alveg stein-
liggur.“
Hilmar svarar neitandi þegar hann
er spurður hvort hann sjái yfirleitt um
eldamennskuna á heimilinu. „Það get
ég ekki sagt, en ég sé alfarið um grillið.
Og ég er alveg mjög liðtækur í eldhús-
inu en það væri frekja að segja að ég
sjái alfarið um það,“ segir Hilmar og
bætir við að þá styðjist hann stundum
við hinar ýmsu uppskriftir.
Sweet Mango Chutney kjúklingur
8 stk. kjúklingabitar eða 6-8 bringur
1 peli rjómi
½ krukka sweet Mango Chutney
1 msk. karrý
season all-krydd
1-2 stk. kjúklingakraftsteningar
Aðferð
Kjúklingabitarnir kryddaðir mjög
vel með Seson All og settir í ofn-
skúffu með örlitlu vatni, ca. 1-2 sm,
og kjúklingakraftsteningum.
Þegar bitarnir eru klárir er soðinu
hellt í pott og rjóma, karrý og Sweet
Mango Chutney bætt út í.
Smakkað til með karrýi og Season
All.
Kjúklingabitarnir eru síðan settir í
nýtt eldfast mót og sósunni hellt yfir
og klárað í ofni í 7-10 mínútur.
Meðlæti
Hrísgrjón, hvítlauksbrauð og
ferskt salat.
Kjúklingaréttur
sem steinliggur
„Ég skora næst á Finnboga
Kristinsson, stórvin minn og
núverandi fjargranna. Hann
er mikill matgæðingur; ég er
bara kettlingur við hliðina á
honum.“
Cabernet Sauvignon
í Bandaríkjunum
Cabernet sauvignon er al-gengasta rauðvínsþrúga veraldar. upprunann má rekja til bordeaux en þar hefur hún verið ræktuð
frá 18. öld. Hún er uppistaðan
í flestum fínustu rauðvín-
um heims, meðal annars
langflestum bordeaux-
vínum. Þau eru gjarnan
blönduð öðrum þrúgu-
tegundum, eins og Mer-
lot og Cabernet Franc,
jafnvel Verdot eða Mal-
bec. Á Ítalíu er sangiov-
ese stundum blandað
við Cabernet og í Ástral-
íu shiraz.
Í Cabernet-vínum má oft greina fjóluilm, sól-ber, sedrusvið og krydd. Í Cabernet-vínum frá nýja heiminum, eins og kali-
forníu og Ástralíu, má að auki
oft greina súkkulaði, sultuð
ber, eik, pipar og jörð. Ýmis
rauð ber eru algeng, sólber og
kirsuber. Þykkt hýðið á Cabernet-
berjunum gefur mikið og gott
tannín sem gerir það að verkum
að þessi vín eldast einstaklega vel.
betri tegundir geta þroskast og
elst í áratug og fínustu vínin
er hægt að drekka öldum
saman. Caberne-vín eru
gjarnan látin liggja í eik-
artunnum sem gefa vín-
inu bragð og mýkja
tannínið.
Cabernet sauvign-on er ræktað á öllum
helstu vínræktar-
svæðum veraldar.
Þrúgan virðist þrífast
alls staðar, hvort sem
raki og hiti er mikill eða lítill.
Þrúgan þroskast þó seint og
er því síður ræktuð á norð-
lægari og kaldari slóðum.
PálMi jónASSon
vínsérfræðingur DV
J. Lohr Seven Oaks Paso Robles 2004
Jerry Lohr hóf ferilinn á 7. áratugnum en fyrirtækið
hefur vaxið og dafnað vel á síðustu árum. seven oaks
er frá Paso robles-svæðinu í kaliforníu. rúbínrautt með
angan af pipar, kirsuberjum og niðursoðnum rauðróf-
um. Frekar sætt vín með sætum þroskuðum plómum,
sveskjum, vanillu og súkkulaði. Þykkt,
lyktar- og bragðmikið vín með hæfilegu
tanníni. 1.790 krónur.
Beringer Stone Cellars California
Cabernet Sauvignon 2004
beringer-vínhúsið var stofnað 1876 af bræðrunum
Jacob og Frederick beringer. Þeir fluttu frá Mainz í
Þýskalandi og fundu í Napa Valley kjöraðstæður til
víngerðar. stone Cellar-línan er nefnd í höfuðið á
fyrsta víngerðarhúsi beringer-bræðra. 40% af
Cabernet-þrúgunum eru látin í eikartunnur og
eikarbragðið því ekki yfirþyrmandi. Plómur í nefi
með þroskuðum sólberjum, hráu kjöti, pipar og
nettri vanillu. Áberandi plómur og
sveskjur í munni. gott vín fyrir þetta
verð. 1.290 krónur.
Deilicato Cabernet Sauvignon
California 2005
delicato Family Vineyards hefur verið fjöl-
skyldufyrirtæki í þrjár kynslóðir, eða rúmlega
80 ár. Það sérhæfir sig í að framleiða hvers-
dagsvín á hagstæðu verði. sterk kirsuberjalykt
einkennir þetta vín með mikilli eikarvanillu og
dálitlu kryddi. bragðið það sama. kirsuber, eik
og einnig má greina sultaðar sveskjur. Fulldýrt
fyrir einfalda eikaða kirsuberja-
saft. 1.310 krónur.
Einkunn í vínglösum:
IIIII Stórkostlegt
IIII Mjög gott
III Gott
II Sæmilegt
I Slakt
Meistarinn