Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Page 49
DV Helgarblað Föstudagur 12. október 2007 49
Tónlistarmaðurinn Curver Thoroddsen mun á næstu dögum
fremja gjörning í Listasafni Íslands. Gjörningurinn stendur yfir
í rúma viku en þar mun Curver selja alls konar drasl sem hann
hefur sankað að sér.
LISTIN AÐ BJÓÐA
DRASL TIL SÖLU
„Ég er að fara að losa mig við hell-
ing af dóti sem hefur safnast í kring-
um mig undanfarin ár. Þetta verður
svona ekta kompusala.“ Þetta segir
tónlistarmaðurinn Curver, sem mun
framkvæma gjörning í Listasafni Ís-
lands næstu vikuna. Sýningin verð-
ur opnuð á laugardaginn og stendur
í rúma viku og er hluti af Sequence-
myndlistarhátíðinni sem hefst um
helgina. „Þetta er eiginlega hvers-
dagslegur gjörningur. Hann samein-
ar listina og raunverulegar aðstæð-
ur. Ég er fluttur til útlanda og þarf
að losa mig við dót. Með því að setja
þetta inn í listasafnið skapast meiri
stemning í kringum þetta og þetta
verður um leið að listgjörningi,“ seg-
ir Curver.
Skoda til sölu
Curver verður með alls kyns dót
til sölu. „Þarna verður allur skal-
inn; geisladiskar, vínylplötur, bæk-
ur og föt, svo dæmi séu tekin. Ég
ætla að selja gamla trommusett-
ið mitt, rafmagnsgítarmagnara, bil-
aða skellinöðru og Skodann minn,
sem er reyndar í topplagi. Aðalmál-
ið er að koma þessu frá mér. Koma
þessu í hendur einhverra sem kunna
að nota hlutina, kannski einhverra
handlaginna sem geta séð notagild-
ið í þessum hlutum sem þarfnast
sumir hverjir viðhalds,“ segir Curver
en bætir við að það verði sérstaklega
erfitt að kveðja trommusettið. „Ég er
búinn að eiga settið mjög lengi og
hef alltaf ætlað að gera það upp. Ég
hef aldrei fundið mér tíma til þess og
ég vona að trommusettið geti nýst
nýjum verðandi eiganda vel.“
Í beinni á Rás 2
Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem
tónlistarmaðurinn geðþekki fremur
gjörning af þessu tagi. „Áður tók ég
íbúðina mína í gegn og sýndi í Lista-
safninu. Það var mjög gaman. Mér
finnst eitthvað heillandi við það að
sýna fólki raunverulegar aðstæður
fólks; sameina listina og hversdags-
lífið.“ Hlustendur Rásar 2 geta fylgst
með framvindu mála í útvarpinu um
helgina. „Rás 2 ætlar að fylgjast með
þessu hjá mér og vonandi verður fólk
duglegt að koma. Ég held að þarna
geti skapast góð stemning og þetta
verður virkilega gaman, held ég,“
segir Curver en hann mun selja eigur
sínar á mjög hóflegu verði. „Ég verð
þarna alla vikuna með posavélina og
góða skapið að vopni.“
Tímamót
Hann segir sýninguna marka
ákveðin tímamót í lífi sínu. „Þessi
gjörningur mun hjálpa mér við að
kveðja þessa gömlu hluti sem ég hef
haft í kringum mig undanfarin ár. Ég
hef verið að þvælast í vinnustofum
og stúdíóum og því hefur alls konar
drasl safnast upp hjá mér. Þetta verð-
ur því ákveðin tiltekt í mínu lífi, sem
er mjög þroskandi. Ég tími aldrei að
henda neinu og held alltaf að ég hafi
tíma til að nota hlutina seinna, lík-
lega eins og margir aðrir,“ segir Curv-
er en fyrir mánuði flutti hann til New
York þar sem hann mun vinna sér
inn meistaragráðu í myndlist. „Þegar
það er búið verð ég meistari í mynd-
list,“ segir Curver glaður í bragði að
lokum.
Curver Thoroddsen Ætlar
meðal annars að selja bílinn
sinn.