Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Blaðsíða 53
Tr
yg
g
va
g
a
ta
Tr
yg
g
va
g
a
ta
föstudagur 12. október 2007 53 Helgarblað DV
Föstudagur Laugardagur
Sveitt á Prikinu
Í kvöld tekur danski trúbadorinn
Martin Hoyebye lagið á Prikinu upp á
gamla mátann. Þegar Martin er svo
búinn að dæla tónum í fólkið tekur
enginn annar en dj Árni sveins við,
með massífar melódíur svífandi
minninga. ekki missa af þessu, því þá
fer allt í klessu.
Gísli Galdur
á Prikinu
Þú veist hvað þeir segja, ef
kerfið fer ekki í rautt er partíið
dautt. Þetta veit líka gísli
galdur sem stendur vaktina við
græjurnar á Prikinu á
laugardagskvöldið. ógurleg
stemning alveg hreint. Mættu!
Gillað á Barnum
Á barnum í kvöld verður heljarinnar
stemning en þar verður enginn annar
en gísli galdur, grilli gald, eibandi
Meibarinn á stálborðunum. grilli
Meib er aðalmaðurinn í þessum
bransa og fólkið getur ekki sleppt því
að dansa þegar hann ætlar djamm-
kallinu að ansa. dettu í gang!
Skakkamanage á Organ
skakkamanage spilar á organ í kvöld en þar
verður þeirra eigin friðarsúla afhjúpuð. Ný
lög verða keyrð alveg lengst upp í... og svo
verður nýtt 17. júní-lag frumflutt. Þú vilt ekki
missa af þessu, sérstaklega þar sem það er
frítt inn.
Paparnir ásamt Á
móti sól á Gauknum
gaukurinn víkur hvergi frá stönginni í
kvöld. Þar mæta Paparnir ásamt
glettnum félögum úr Á móti sól. Nóg
verður um ljúfa tóna, svo það er um að
gera að taka skíðastígvélin af
löppunum og skella sér í dansskóna.
Löggan á Hverfis
suðurnesjarefurinn atli
skemmtanalögga sér um
helgina á Hverfisbarnum. allir
leiðindapúkar verða
handteknir af löggunni og
hent í partískapið. Ú, jea.
Dirty South á Broadway
Heitasti remixari í bransanum í dag. uppalinn
í bretlandi, fluttist til Ástralíu á unglingsaldri
og hefur ekki hætt að detta í gang síðan. Nei,
það sem þið heyrðuð er rétt, dirty south
þeytir skífum á broadway í kvöld. glimrandi
danstónlist sem ætti að geta glatt alla.
Fjör á Vegó
Í kvöld spilar á Vegamótum
plötusnúður er kennir sig við fönk
górillunnar, öfgakennda og lítið
útbreidda plötusnúðastefnu
ættaða úr frumskógum kongó. dj
gorilla funk er agalegur nagli og
hikar ekki við að þeyta feitum bassa
í allar áttir með þeim afleiðingum
að fólk dansar og glansar.
Motion Boys á Organ
Hljómsveitin Motion boys þenur
túbuna á organ í kvöld. einnig lætur
Johnny sexual sjá sig ásamt Herði
bragasyni. ekkert nema gúmmulaði.
seinna um kvöldið dettur í gang dj Laz-
er, sem ætlar að gera hið ógeranlega;
snoða mann á meðan hann spilar reel
2 reel featuring the mad stuntman.
Illaður á Vegó
Illaður dan sem er þekktur undir
nafninu danni deluxe hefur tekið
upp nafnið danni deluxxx því það
er nú einu sinni mun illaðra. ó, já,
það verður illuð stemning á
Vegamótum á laugardaginn.
Dj Stef á
Hvebbanum
Það er meistari gunni „með
hann stóran“ stef sem sér um
laugardagskvöldið á
Hverfisbarnum. Hann hatar
ekki að matreiða dansi dansi
ofan í sætu stelpurnar á
Hverfis.
Bræðrabylta á Qbar
dj bræðurnir kalli og Maggi felix verða á
græjunum á Q-inu í kvöld. bræðurnir hafa
löngum verið þekktir fyrir að henda
saman feitustu tónunum í bland við
þéttasta taktinn. kíktu niður eftir og sjáðu
hvað málið snýst um.
Símon Fönix á Oliver
Það er dansljónið og partískelfirinn sjálfur
dj símon sem verður á
oliver á laugardaginn. símon Límonaði
er svakalegur nagli sem snúið hefur
skífum á öllum betri knæpum heimsins.
ekki missa af þessu, annars kemur
djammpúkinn og sækir þig.
Casanova 13
dj Hjalti Casanova leikur
ljúft á skemmtistaðnum
7-9-13 á laugardags-
kvöldið. taumlaus gleði
þar og allt í gangi, eða
við skulum vona það,
sjö, níu, þrettán.