Fréttatíminn - 04.04.2014, Síða 2
20%afsláttur
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli
vandlega fyrir notkun.
Málþing um einhverfu
Íslendingar ætla að veiða 154 langreyðar í ár. Langreyður
er á alþjóðlegum válista yfir dýr í útrýmingarhættu. Obama
Bandaríkjaforseti telur veiðarnar ólöglegar og ætlar að beita
bandaríska stjórnkerfinu til þess að þrýsta á Íslendinga að
hætta hvalveiðum.
Þ egar ég flutti á 18. hæðina sagði nágranni minn mér fljótt að það væri ekki óalgengt að fólk tæki
sjóveikitöflur þegar virkilega illa viðraði.
Mér fannst það frekar skondið og þóttist
fær í flestan „sjó“,“ segir Björk Eiðsdótt-
ir, annar ritstjóri MAN magazine, sem
er til húsa í turninum við Höfðatorg. „Ég
get nú ekki sagt að ég hafi orðið alvöru
sjóveik en maður fann fyrir vagginu. Í
versta veðrinu í vetur passaði maður sig
á að horfa ekki mikið á loftljósin því það
er ávísun á nettan svima og ég man eftir
einum degi þegar ég hélt bara aðeins í
skrifborðið með vinstri á meðan ég pikk-
aði á lyklaborið með hægri – frekar sein-
legt en vel gerlegt,“ segir Björk og tekur
fram að á slíkum dögum hafi verið heilla-
vænlegast að klára hratt úr kaffiboll-
anum. Þrátt fyrir þetta er útsýnið af 18.
hæð einstakt. „Útsýnið er það magnað-
asta sem ég hef séð. Þó manni sé aðeins
ruggað,“ segir hún en MAN magazine
er reyndar flutt neðar í turninn þannig
að Björk þarf að gera sér ferð upp til að
njóta útsýnisins.
Albert Ómar Guðbrandsson, umsjón-
armaður fasteigna á Höfðatorgi, kannast
við að hafa heyrt af því að starfsfólk á
efri hæðum turnsins upplifi sumt hvert
sjóveiki þegar illa viðrar. „Ég hef heyrt
þetta en ég hef samt verið staddur uppi
á 20. hæð og ekki orðið var við neitt,
en auðvitað vaggar svona hús eitthvað
pínulítið.“ Albert var kallaður „hetja
dagsins“ þann 2. nóvember 2012 þegar
hann stóð vaktina við Höfðatorg í óveðri
sem þá geisaði og aðstoðaði veðurbarða
vegfarendur sem hreinlega fuku. „Það
var versta veður sem hefur komið síðan
ég byrjaði hér. Þá voru háskólamenn
með mæli efst í turninum og ég fékk þær
upplýsingar að þá hafi turninn sveiflast
um 3 sentimetra, það er 1,5 sentimetra
í hvora átt. Sá mælir var í um 72 metra
hæð,“ segir hann. Albert bendir á að
útveggirnir séu úr gleri sem er gert til
að svigna og þegar þrýstingurinn er
sem mestur breytist loftþrýstingurinn
inni. „Þetta er allt eðlilegt. Á sumum efri
hæðunum eru líka hangandi loftljós sem
sveiflast eins og róla og eykst sveiflan
eftir því sem vindurinn stendur lengur,“
segir hann og telur að það geti aukið á að
fólk upplifi sjóveiki. „Eflaust er líka mis-
jafnt hvernig fólk upplifir svona lagað,“
segir Albert.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Hvalveiðar Íslendingar fá engan skilning á Hvalveiðum sÍnum Hjá viðskiptaaðilum erlendis
Þrýstingur á að sniðganga íslenska framleiðslu eykst
Hvalveiðar Íslendinga mæta engum
skilningi hjá neytendum og viðskipta-
vinum íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í
Þýskalandi, segir dr. Peter Dill, forstjóri
fisksölufyrirtækisins Deutsche See í Bre-
merhaven, í samtali við Fréttatímann.
„Það er í eindreginni mótsögn við þá
ímynd sem Ísland hefur í Þýskalandi að
landið sé enn tengt hvalveiðum,“ segir
hann. „Bæði viðskiptavinir okkar og neyt-
endur almennt í Þýskalandi eru algjörlega
á móti þessu og hafa alls engan skilning
á afstöðu Íslendinga til hvalveiða. Þótt
Íslendingar kunni að geta fært þau rök
fyrir afstöðu sinni að hvalveiðarnar séu
sjálfbærar þegar litið er á stofnstærð lang-
reyðar og hrefnu þá mætir það sjónarmið
engum skilningi hér í Þýskalandi. Það er
einnig mjög erfitt að leggja mat á sann-
leiksgildi slíkra staðhæfinga utan frá.“
„Það er nokkuð greinileg hreyfing
í þá átt – meðal almennings og á sam-
félagsmiðlum – að sniðganga eigi fram-
leiðsluvörur Íslendinga,“ segir hann líka.
Peter Dill telur einnig að geti skaðað til-
raunir sem nú eru í gangi til þess að bæta
ímynd íslenskra sjávarafurða: „Ísland
er um þessar mundir að móta og kynna
nýtt vörumerki og lógó fyrir íslenskar
sjávarafurðir undir heitinu ‘Icelandic Res-
ponsible Fisheries’ (IRF),“ segir hann.
„Það er alveg augljóst að trúverðugleika
þess starfs er teflt í hættu með því að jafn-
framt séu í gangi stöðugar umræður um
hvalamálin.“
Peter Dill segist sannfærður um að
Ísland þurfi með tímanum að breyta
afstöðu sinni og hætta hvalveiðum. Hug-
myndir manna og gildi í samfélaginu séu
að breytast. „Það þarf ekki að taka það
fram að allur efnahagslegur ávinningur
eða hagnaður af hvalveiðum mun hverfa,
ef hann er ekki nú þegar að engu orðinn,“
segir Peter Dill.
Sjá fréttaskýringu á bls. 28-31. -pg
arkitektúr turninn á Höfðatorgi sveiflast Í roki
Á sumum
efri hæðun-
um eru líka
hangandi
loftljós sem
sveiflast
eins og
róla.
Sjóveiki í turninum
á Höfðatorgi
Sjóveiki hefur gert vart við sig hjá starfsfólki á efstu hæðum turnsins við Höfðatorg þegar hvessir
og dæmi eru um að fólk hafi tekið sjóveikitöflur þegar verst viðrar. Umsjónarmaður fasteigna við
Höfðatorg segir eðlilegt að turninn vaggi eilítið í vonskuveðri en samkvæmt mælingum sveiflaðist
turninn um 3 cm þegar verst lét.
Björk Eiðsdóttir, annar
ritstjóri MAN magazine,
segist í verstu vindhvið-
unum hafa þurft að
halda í skrifborðið
með annarri
hendinni og
pikka á lykla-
borðið með
hinni.
Turninn er um
72 metrar á
hæð og þegar
verst viðrar
sveiflast efsti
hluti hans um
3 cm í hviðum.
Ljósmynd/Hari
Stuðningur við ríkis-
stjórnina minnkar
Um 37% landsmanna segjast nú styðja ríkis-
stjórnina, samkvæmt niðurstöðum nýjasta
þjóðarpúls Gallups. Stuðningsmennirnir eru
nú fimm prósentum færri en í síðasta mánuði.
Rúm 24% segjast mundu kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn en 13% Framsóknarflokkinn. Helstu
breytingar milli mánaða eru þær að fylgi
Framsóknar minnkar um 2% en fylgi Bjartrar
framtíðar eykst að sama skapi. Rúm 18%
segjast mundu kjósa Bjarta framtíð, tæp 17%
styðja Samfylkinguna. Fylgi VG mælist rúm
12% en rúm 9% styðja Pírata.
Kennarar gagnrýna
kosningaauglýsingu
Halldórs
Kennarasamband Íslands sakar Halldór
Halldórsson, borgarstjóraefni Sjálfstæð-
isflokksins, um gífuryrði, sleggjudóma
og tvískinnung. Samþykkt var harðorð
ályktun á þingi Kennarasambandsins í
gær í tilefni af auglýsingu um skólamál
sem Halldór og Sjálfstæðisflokkurinn í
Reykjavík birtu í Fréttablaðinu í gær:
„Í auglýsingunni er staðhæft að
skólakerfið hafi brugðist börnunum
okkar. Bætt er við að skólakerfið hjakki
í sama farinu. Þessum gífuryrðum og
sleggjudómum mótmælir þing KÍ harð-
lega,“ segir þar.
Kennarar segja innihald auglýsingar-
innar í fullkomnu ósamræmi við orð
Halldórs þegar hann ávarpaði þing KÍ á
þriðjudag.
„Þar sagðist hann vera talsmaður
samstarfs og sátta í skóla- og mennta-
málum. Slíkt ósamræmi milli þess sem
Halldór segir milliliðalaust við kennara
á þingi þeirra og þess sem hann segir
almenningi í auglýsingunni er óskiljan-
legt,“ segja kennarar og lýsa furðu sinni
á staðhæfingunum í auglýsingunni.
Einhverfusamtökin og
Borgarleikhúsið standa
fyrir málþingi um ein-
hverfu á Stóra sviðinu á
laugardag. Málþingið er
haldið í tilefni af alþjóð-
legum degi einhverfu,
sem er 2. apríl, og í
tengslum við sýninguna Furðulegt
háttalag hunds um nótt sem fjallar um
einstakan dreng.
Fjórir valinkunnir fyrirlesarar flytja
erindi: Dr. Evald Sæmundsen, sviðsstjóri
rannsókna á Greiningar- og ráðgjafastöð
ríkisins, Jarþrúður Þórhallsdóttir, fötl-
unarfræðingur og höfundur bókarinnar
„Önnur skynjun - ólík veröld“, Laufey I.
Gunnarsdóttir, þroska-
þjálfi og einhverfuráð-
gjafi og Ingibjörg Elsa
Björnsdóttir, doktors-
nemi í þýðingafræði.
Pallborðsumræður verða
að erindum loknum
þar sem fyrirlesarar og
einstaklingar á einhverfurófi sitja fyrir
svörum. Málþingið er öllum opið.
Málþingsgestir eru hvattir til að tryggja
sér miða á Furðulegt háttalag hunds
um nótt þetta laugardagskvöld en hluti
af ágóða þeirrar sýningar rennur til
Einhverfusamtakanna. Efnt verður til
umræðna með aðstandendum sýningar
að henni lokinni, um klukkan 22. - eh
Bjarni vill hækka bónusa
bankamanna
Nýtt lagafrumvarp sem Bjarn Benediktsson
fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi
gerir ráð fyrir að hægt verði að fjórfalda bón-
usa til starfsmanna í fjármálafyrirtækjum frá
því sem nú er. Viðskiptablaðið segir frá þessu.
Verði frumvarpið að lögum geta fjármálafyrir-
tækin veitt starfsmönnum sínum kaupauka
sem jafngilda allt að 100% af árslaunum, séu
ákveðin skilyrði uppfyllt. Ef hlutfall kaup-
aukans á að vera hærra en 25% af árslaunum
þarf hluthafafundur að samþykkja það með að
minnsta kosti tveimur þriðju hlutum atkvæða.
2 fréttir Helgin 4.-6. apríl 2014