Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.04.2014, Page 69

Fréttatíminn - 04.04.2014, Page 69
Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is Hako sópar og sópvélar – á vortilboði Hako Profi-Flipper Handhægur og góður sópur Afköst: 2.300 m2 á klst. Hako Hamster 500E Rafdrifin og afkastamikil sópvél Afköst: 2.400 m2 á klst. Hako Jonas 800E Rafdrifn og öflug sópvél Afköst: 6.600 m2 á klst. Hafið samband við sölumenn eða þjónustuver RV sem veita nánari upplýsingar. útgáfa tekur á efninu út frá gaman- sömu sjónarhorni fréttamannsins Ali og hefur hlotið mikið lof í heima- landinu. Ekkert kvikmyndaáhuga- fólk ætti svo að láta Bollywood- gerðina af Rómeó og Júlíu fram hjá sér fara þar sem eitt frægasta par sögunnar dansar sig ástríðufullt í gegnum fjölskylduátök umvafið sterkum litum, sól og sumri. Þetta er svokölluð „masala mynd“ en þær eiga það sameiginlegt að blanda saman öllum kvikmyndaformötum í eina heild. Áhorfendur geta því búist við gleði, sorg, spennu, hryll- ingi, dansi og drama, öllu í sömu myndinni. Hátíðin styrkir ekkjur og börn á Indlandi „Ég mæli sérstaklega með „Ensku- náminu“,“ segir Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir, ein skipuleggj- enda hátíðarinnar. „Hún er ekta ljúf konumynd um konu sem er al- gjör snillingur í að gera Laddoo, en það er rosalega góður indverskur eftirréttur. En hún er ekkert metin að verðleikum fyrir að kunna það, vegna þess að hún kann ekki ensku og getur ekki almennilega tjáð sig. Svo kemur í ljós hvernig það fer. Við ætlum að reyna að bjóða upp á Laddoo í opnuninni en það er mikil áskorun því það er svo erfitt að mat- reiða það,“ segir Sveinbjörg. Allur ágóðinn af kvikmyndahá- tíðinni mun renna beint til upp- byggingarstarfs Vina Indlands sem styrkja þrjú barnaheimili, í Pasum Kudil, Salem og Erode, auk þess að styrkja þar fræðslustöðvar með því að borga hluta af launum kenn- aranna. „Vinir Indlands hófu auk þess samstarf á síðasta ári við hóp af fátækum ekkjum í Dindingul á Indlandi. Þessar konur hafa misst fyrirvinnu sína og eiga því erfitt með að sjá sér farborða og fá ekki vinnu,“ segir Sveinbjörg. „Sjálf- boðaliðar hafa tekið þær að sér og veitt þeim húsaskjól þar sem þær framleiða kerti sér til framfærslu. Vinir Indlands og Múltí kúltí eru svo að selja þessi kerti hér á Íslandi og þau verða til sölu á hátíðinni.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is menning 69 Helgin 4.-6. apríl 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.