Fréttatíminn - 04.04.2014, Síða 69
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Hako sópar og sópvélar
– á vortilboði
Hako Profi-Flipper
Handhægur og góður sópur
Afköst: 2.300 m2 á klst.
Hako Hamster 500E
Rafdrifin og afkastamikil sópvél
Afköst: 2.400 m2 á klst.
Hako Jonas 800E
Rafdrifn og öflug sópvél
Afköst: 6.600 m2 á klst.
Hafið samband við sölumenn eða þjónustuver RV sem veita nánari upplýsingar.
útgáfa tekur á efninu út frá gaman-
sömu sjónarhorni fréttamannsins
Ali og hefur hlotið mikið lof í heima-
landinu. Ekkert kvikmyndaáhuga-
fólk ætti svo að láta Bollywood-
gerðina af Rómeó og Júlíu fram hjá
sér fara þar sem eitt frægasta par
sögunnar dansar sig ástríðufullt í
gegnum fjölskylduátök umvafið
sterkum litum, sól og sumri. Þetta
er svokölluð „masala mynd“ en þær
eiga það sameiginlegt að blanda
saman öllum kvikmyndaformötum
í eina heild. Áhorfendur geta því
búist við gleði, sorg, spennu, hryll-
ingi, dansi og drama, öllu í sömu
myndinni.
Hátíðin styrkir ekkjur og börn
á Indlandi
„Ég mæli sérstaklega með „Ensku-
náminu“,“ segir Sveinbjörg Rósa
Sumarliðadóttir, ein skipuleggj-
enda hátíðarinnar. „Hún er ekta
ljúf konumynd um konu sem er al-
gjör snillingur í að gera Laddoo, en
það er rosalega góður indverskur
eftirréttur. En hún er ekkert metin
að verðleikum fyrir að kunna það,
vegna þess að hún kann ekki ensku
og getur ekki almennilega tjáð sig.
Svo kemur í ljós hvernig það fer.
Við ætlum að reyna að bjóða upp á
Laddoo í opnuninni en það er mikil
áskorun því það er svo erfitt að mat-
reiða það,“ segir Sveinbjörg.
Allur ágóðinn af kvikmyndahá-
tíðinni mun renna beint til upp-
byggingarstarfs Vina Indlands sem
styrkja þrjú barnaheimili, í Pasum
Kudil, Salem og Erode, auk þess
að styrkja þar fræðslustöðvar með
því að borga hluta af launum kenn-
aranna. „Vinir Indlands hófu auk
þess samstarf á síðasta ári við hóp
af fátækum ekkjum í Dindingul á
Indlandi. Þessar konur hafa misst
fyrirvinnu sína og eiga því erfitt
með að sjá sér farborða og fá ekki
vinnu,“ segir Sveinbjörg. „Sjálf-
boðaliðar hafa tekið þær að sér og
veitt þeim húsaskjól þar sem þær
framleiða kerti sér til framfærslu.
Vinir Indlands og Múltí kúltí eru
svo að selja þessi kerti hér á Íslandi
og þau verða til sölu á hátíðinni.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
menning 69 Helgin 4.-6. apríl 2014