Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Qupperneq 12
106
sér stað, svo ör hefur þróunin verið. Laxveiði
hefur aukizt jafnt og þétt og meðferð og nýting
silungsveiði batnað og verðmæti veiðinnar í heild
vaxið verulega.
Tvöföldun á laxveiði
árum.
Um silungsveiði er minna hægt að segja, vegna
þess að skýrslusöfnun um þá veiði hefur víða
verið áfátt, 'enda nýting hennar oft tilviljunai'-
kennd. Framleiðslugeta stöðuvatna er afar mis-
munandi vegna legu þeirra, vatnsdýpis og annara
aðstæðna. Áætlað hefur verið, að árleg silungs-
veiði hér á landi nemi 250 til 300 tonnum, en
mestur hluti þeirrar veiði fæst í net.
Verðmæti veiðinnar
Sem fyrr segir, hefur verðmæti veiðinnar auk-
izt m.a. vegna hækkaðra veiðileiga. Alkunna er,
hve stangaveiði hefur mikið aðdráttarafl fyrir
fólk á öllum aldri og úr öllum atvinnugreinum
þjóðfélagsins. Er gildi hennar mikið sem hin
bezta heilsubót, ekki sízt þeim, sem streita þjáir.
Það er þess vegna skiljanlegt, að þeim fjölgi stöð-
ugt, er sækja sér andlega og líkamlega hressingu
í veiðiskapinn. Þessi þróun kemur heim við
reynslu annarra þjóða, en ótrúleg aukning hefur
víða erlendis orðið á þessu sviði. Erlendir stanga-
veiðimenn hafa sótt hingað til veiða í æ ríkari
mæli með hverju ári og borga hátt verð fyrir
veiðidagana, enda er aðstaða hér til veiða á laxi
með því bezta, sem þekkist.
Þátttakendur á ráðstefnu sambandsins um sveitarstjórn í strjálbýli
skoða eldisker í Laxeldisstöð ríkisins í Kollafírði. Lengst til vinstri
er Sigurður Sigurðsson, oddviti Skilmannahrepps, sem er formaður
Landssambands veiðifélaga; hjá honum stendur Jón Þór Jónasson,
oddviti Stafhoitstungnahrepps, og nokkru fjær sér á oddvitana Egil
Benediktsson, í Bæjarhreppi, Jóhannes Eiriksson í Hrafnagilshreppi
og Hrein Ketilsson í Svalbarðsstrandarhreppi.
Aukning á laxveiði á fimmtán ára tímabili
(fimm ára meðaltöl) hefur verið sem hér segir:
Árin 1955—’60 veiddust árlega samtals 23 þúsund
laxar, árin 1961—’65 voru laxarnir 37 þúsund
talsins, og árin 1966—70 komu á land um 40 þús-
und laxar árlega. Síðustu tvö árin liefur árleg
veiði numið; 1970 56 þúsund laxar og 1971, sem
var metár, komu á land tæplega 60 þúsund laxar,
en 70% veiðinnar fékkst á stöng. Hlutur stangar-
innar í veiðinni hefur farið vaxandi á síðari
Árni ísaksson, fiskifræðingur, segir frá. Við hlíð hans standa talið
frá vinstri: Ársæll Hannesson, oddviti í Grafningshreppi, og Har-
aldur Einarsson, oddvíti Villingaholtshrepps, og hinum megin Jón
Guðmundsson, oddviti Hofshrepps í Skagafjarðarsýslu.
Eldisþrær í eldishúsinu í Kollafjarðarstöðinni.
SVEITARSTJÓRNARMÁL