Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Blaðsíða 16
velclar leiðina að því marki að gera arðsemi fyrr-
greindra aðferða að veruleika. H'eppilegast er því
að styðja og styrkja betur en nú er gert allt það,
sem lífvænlegt er þegar fyrir hendi hér á landi
í fiskrækt og fiskeldi.
Athugun á fiskeldisaðstöðu
Á vegum Veiðimálastofnunar hefur verið gerð
sérstök frumathugun á rúmlega 100 stöðum hér
á landi gagnvart aðstöðu til fiskeldis. Athuganir
þessar voru gerðar á Norðurlandi árið 1969 og
1970 og á Suðurlandi 1971. Athuganir sumarið
1969 og 1970 náðu til tæplega 40 staða á Norður-
landi, og sumarið 1971 voru athugaðir um 60
staðir í 11 hreppum í Árnes- og Rangárvallasýsl-
um. Mun þessu starfi væntanlega verða haldið
áfram á sumri komanda í Rangárvalla- og V.-
Skaftafellssýslu. Síðan verða aðrir landshlutar
teknir fyrir eftir því, sem aðstæður leyfa.
Stuðningur sveitarstjórna
við veiðimálin
Sveitarstjórnir geta með ýmsu móti stuðlað
bæði beint og óbeint að bættum hag veiðimála,
er treystir búsetu í strjálbýlinu. Þetta getur m.a.
gerzt með því, að þær hvetji til og styðji stofnun
veiðifélaga og taki framkvæmdir á sviði veiðimála
inn í landslilutaáætlanir, svo sem fiskeldisstöðvar,
veiðimannahús og fleira. Þá er hægt að greiða
fyrir bættri aðstöðu við móttöku ferðamanna, sem
sækja til stangaveiða. í því sambandi kemur ýmis-
legt til greina, er hvetur til samvinnu með ýmsum
aðilum í héruðunum um þessi mál.
110
SVEITARSTJÓRNARMÁL