Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Blaðsíða 34

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Blaðsíða 34
fram fór aðalmat fast'eigna um 1940, og er það síðasta heildarmatið, sem hér hefur verið gert, að undanskyldu því, sem nú liggur frammi. Árið 1955 voru liins vegar sett lög um sam- ræmingu á mati fasteigna. Samkvæmt þ'eim lög- um var gerð endurskoðun á fasteignamatinu frá 1940 með tilliti til þeirra verðbieytinga, sem átt höfðu sér stað á því tímabili, og lagfæring var gerð vegna nýrra íramkvæmda. Af þessu leiðir, að það fasteignamat, sem við búum við í dag, er að stofni til aðalmatið frá 1940 með þeirri endur- skoðun, sem framkvæmd var á því á árunum 1955—1957, ásamt þeim millimötum, sem síðan hafa átt sér stað vegna nýrra framkvæmda, en verðmætisniðurstöður þeirra mata eru byggðar á þeim verðstuðlum, sem ákveðnir voru árið 1967. Það aðalmat fasteigna, sem nú hefur verið unnið og lagt fram, 'er l’ramkvæmt samkvæmt lög- um nr. 28 frá 29. apríl 1963 og reglugerð nr. 301 frá 1969 og reglugerðarbreytingu nr. 211 frá 1970. f þeim lögum er kveðið svo á, að allar fast- eignir á landinu skuli skrá og m'eta til peninga- verðs, nema þær séu sérstaklega undanþegnar mati samkvæmt lögunum. Þá eru einnig skýr ákvæði um, að land og lóðir skuli meta sér og liús og önnur mannvirki sér. Niðurstaða matsins á að miðast við það gang- verð, sem líklegt er, að viðkomandi fasteign myndi liafa í kaupum og sölum á frjálsum og óþvinguðum markaði, og skal miða við stað- greiðsluverð, samkvæmt reglugerðarákvæði. Þetta aðalmat fasteigna er framkvæmt af fast- eignamatsnefndum, sem skipaðar eru ein í Reykjavík og ein í hverjum kaupstað og hverri sýslu. Hér er um jjriggja manna nefndir að ræða á hverjum stað. Nefndir þessar, eða starfsmenn þeirra, annast alla skráningu, upplýsingasöfnun og matsákvarðanir undir yfirstjórn þriggja manna yfirfasteignamatsnefndar, en hlutverk liennar er að hafa á hendi skipulagningu verks- ins og endurskoða og samræma matsniðurstöður milli hinna einstöku nefnda, ef ástæða er til. Hún sér og um útgáfu fasteignamatsbóka, eftir að matið liefur verið lagt fram á hverjum stað og leiðréttingar hafa verið gerðar og kærur úrskurð- aðar. Skráning Markmið skráningar er margþætt. Skráningin er safn upplýsinga um staðreyndir. Allar upplýs- ingar varðandi hverja fasteign flokkast eftir eðli þeirra og mikilvægi. Grundvöllur fyrir skráningu fasteigna er land eða liver sá afmarkaður reitur á yfirborði lands- ins, Sem hefur sérgreindan eigna- eða afnotarétt. Lögin frá 1963 kveða svo á, að við þetta mat skuli hafizt handa um að koma upp sem nákvæmastri skráningu fasteigna í landinu, „matrikel". Þá er átt við skráningu hvers sérgreinds lands eftir landfræðilegri legu þ'ess, ásamt þeim rnann- virkjum, sem á hverju landi eða lóð hafa ver- ið gerð. Grundvöllur slíkrar skráningar byggist á ná- kvæmri kortlagningu landsins. Því fer liins vegar víðs fjarri, að til sé það nákvæm landmæling og kortagerð, að þetta verk sé framkvæmanlegt að fullu, eins og nú er. Þéttbýlisstaðirnir, einkanlega þó þeir stærstu, vinna hins vegar markvisst að því að 'eignast full- komna mælingu og kort, mæliblöð af þeim löndum og lóðum, sem innan lögsögu þeirra liggja, og sér í lagi því landi, sem skipulagt hefur verið til bygginga. Hér er um mjög aðkallandi verkefni að ræða og ekki sízt vegna þess, að í allt of mörgum tilfellum eru mörk milli fasteigna, landmörk, ekki ljós eða afdráttarlaus. Kemur þar livorttveggja til, að ekki h'efur í fyrstu verið gengið nægilega frá landmælingum og landmörk- um eða þau gjarnan breytzt. Oft hefur breyting á orðið vegna skipulags, en samningar eða aðrar eigna- eða afnotaheimildir hafa ekki tekið breyt- ingum til samræmis við það. Hins vegar 'eru hin sýnilegu viðmiðunartákn um landamerki oft og einatt horfin, og kennileiti vilja gjarnan glatast eða gleymast. Þessu verður því aðeins kippt í fullkomið lag, að örugg landmæling og kortlagn- ing sé til, sem tengd sé einu og sama hnitkerfi fyr- ir landið í heild. Varðandi skráningu lóða og landa og hvers konar mannvirkjagerðar 'er stefnt að staðgreini- skráningu (matrikel) í landinu. Varðandi upplýs- SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.