Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Blaðsíða 50

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Blaðsíða 50
Tveir læknar sitja á Hvammstanga Vel hefur gengið að halda lækn- uni á Hvammstanga. Hér eru starf- andi tveir læknar og hafa samhliða héraðslæknisstörfum umsjón með sjúkrahúsinu og elliheimilinu, sem rekin eru sameiginlega af sýslunni. Nauðsyn hafnarbóta Hvammstangi hefur aldrei verið útvegsbær. Kauptúnið er fyrst og fremst þjónustumiðstöð Vestur- Húnavatnssýslu, sem telur nær láOO íbúa. Aðdrættir á þungavöru og útflutningur afurða fer þó allur fram sjóleiðina um Hvammstanga. í fyrrasumar kom hingað dýpkun- arskipið Grettir og dýpkaði höfn- ina, en brýn nauðsyn er á frekari endurbótum með dælingu og leng- ingu á bryggju. Einnig vantar varnargarð. Islenzku skipin geta þó lagzt hér að, en aðstöðu þeirra Jrarf að bæta. Saumastofa í vor var hafin rekstur sauma- stofu á Hvammstanga. Er hún til lnisa í kjallara félagsheimilisins. Saumaðar eru skinnkápur fyrir Bandaríkjamarkað á vegum Álafoss. Hörgull er J)ó á konum til starfa, fremur en hitt. Einnig virðist al- mennt séð vanta verkafólk til starfa, karla og konur. Tvö sláturhús Á Hvammstanga eru tvö slátur- liús, annað rekið af Kaupfélagi Vestur-Húuvetninga, hitt af Verzl- un Sigurðar Pálmasonar h.f. Sam- tals mun slátrað á hverju hausti um 36 þúsund fjár. Samþykkt að ráða sveitarstjóra Hreppsnefndin hefur nýlega sam- þykkt að ráða sér sveitarstjóra til þess að létta af oddvita mestu vinnunni í sambandi við stjórnun hreppsins og framkvæmdir. Sam- Jjykkt um sveitarstjóra liefur verið sett og staðfest í Stjórnarráðinu, og fyrir dyrum stendur að auglýsa starfið laust. Rækjuvinnsla Nýlega liefur verið stofnað til rækjuvinnslu á Hvammstanga. Hef- ur verið myndað félag í hlutfélags- formi, Meleyri h.f., og standa að Jjví fyrirtæki og einstaklingar á Hvammstanga svo og nokkrir Hnífsdælingar og ísfirðingar. FRÁ STJÓRN SAMBANDSINS Ráðstefna um tæknimál sveitarfélaga í nóvember Ákveðið er, að næsta ráðstefna sambandsins fjalli um tæknimál 144 sveitarfélaga með sérstöku tilliti til SVEITAR STJ Ó RNARMÁL gatnagerðar og holræsa. Gert er ráð fyrir, að ráðstefnan verði hald- in í Reykjavík um miðjan nóvem- ber. Ráðstefnu Jjessari er fyrst og fremst ætlað að miðla sveitarstjórn- armönnum og starfsmönnum sveit- arfélaga í kauptúnum og minni kaupstöðum upplýsingum um und- irbúning og gerð mannvirkja á vegum sveitarfélaga, einkum að Jjví er snertir gatnagerð og holræsi. Gert er ráð fyrir, að á ráðstefn- unni verði fjallað unt mælingar, Vinnslan verður í tengslum við verzlun Sigurðar Pálmasonar h.f., og er ætlunin að nýta rækjumiðin, sem fundizt hafa klukkutíma sigl- ingu héðan á Húnaflóa. Tveir fiskibátar eru skráðir á Hvamrns- tanga, en fólk lítur björtum aug- um til rækjuntiðanna í sambandi við atvinnutækifæri komandi ára. Níu íbúðarhús í smíðum Á seinasta sumri var byrjað hér á byggingu níu fbúða, þrjú íbúðar- hús eru að verða fokheld, og all- mikill liugur er í fólki að koma sér fyrir hér. Við unglingaskólann hefur um skeið verið rekin heirna- vist fyrir aðkomunemendur, og Jjykir það gefast vel. Félagsheimil- ið á Hvammstanga er í sameign Hvammstangahrepps og Kirkju- hvammshrepps, sem Hvammstanga- hreppur klýfur í tvennt landfræði- lega. Hvammstangahreppi var skipt úr Kirkjuhvammshreppi 1938. Þá taldi sá fyrr nefndi uxn 300 íbúa, en Kirkjuhvammshreppur um 250. Nú eru íbúar Hvammstangahrepps 366, en Kirkjuhvammshrepps 167. Það mundi létta hreppsfélaginu átakið, ef fleiri íbúar stæðu undir ráðn- ingu sveitarstjóra, enda gæti hann vel Jjjónað stæiTa byggðarlagi held- ur en Hvammstangahreppi einum. kort, skipulag, hönnun og útboð verka. Áformað er að heimsækja sveitarfélag, sem á mikil verkefni framundan í Jxessum efnum og lialda umræðufund á staðnum um viðfangsefnið. Haldir verða fræðslufundir um gatna- og holræsagerð, þar sem meðal annars verður skýrt frá reynslu ýrnissa sveitarfélaga af notk- un lxinna ýmsu tegunda slitlaga á götur. Lagðar verða fram upplýs- ingar um kostnað við gatnagerð frá ýmsum sveitarfélögum.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.