Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Blaðsíða 13
Fiskræktarstarfsemi
Möguleikar til aukinnar veiði hér á landi eru
mjög miklir, e£ rétt er á spilum haldið, eins og
reynslan sýnir ljóslega. En þakka ber hinn góða
árangur m.a. því ágæta og merka starfi, sem unn-
ið hefur verið á vettvangi fiskræktar og fiskeldis,
sérstakl'ega síðasta áratug. Fjölþætt fiskræktar-
starfsemi hefur farið fram með sleppingu á fiski
í ár og stöðuvötn, fiskvegagerð og öðrum umbót-
um, svo sem stíflugerð til vatnsmiðlunar. f árnar
hefur verið sleppt um 300 þúsund gönguseiðum
af laxi síðustu árin.
Um 15 aðilar starfrækja nú klak- og eldisstöðv-
ar víðs vegar um land, en tíu þeirra 'eru með fisk-
eldi. Hröð þróun hefur orðið í fiskeldinu og á
Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði þar drjúgan hlut
að máli, auk þess sem önnur starfsemi á vegum
félagshópa og einstaklinga hefur lagt lóð sitt á
vogarskálina. Að fiskhaldi hefur verið unnið í
Lárósi á Snæf'ellsnesi, sem vakið hefur mikla og
verðskuldaða athygli, enda skilað góðum árangri.
Laxeldisstöðin í Kollafirði
Starfsemi Laxeldisstöðvar ríkisins í Kollafirði
er ein grein á meiði veiðimála, en veiðimálastjóri
er framkvæmdastjóri stöðvarinnar. Hún er til-
raunastöð, sem þegar hefur skilað stórmerkum
árangri í sambandi við fiskeldið sjálft og hagnýt-
ingu eldisseiða, sérstaklega gönguseiða af laxi,
jafnframt tilraunum með íslenzkt fiskfóður, sem
SVEITARSTJÓRNARMÁL