Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Page 15
mála, sbr. samþykktir ferðamálaráðstefna á veg-
um Ferðamálaráðs. G'era má ráð fyrir verulegri
aukningu í stangaveiðina í framtíðinni, en sums
staðar erlendis er ætlað, að aukning rnuni nema
urn helmingi í lok þessa áratugs og a.m.k. 100%
við næstu aldamót. Hér eru því á ferðinni mikil
verðmæti og möguleikar. Það er þess vegna brýnt
hagsmunamál allra, er veiðimál varða, að nýting
veiðinnar verði sem bezt og unnið verði skipu-
lega og ötullega að því að fjölga fiski í ám og
vötnum og bæta aðstöðu alla og gefa þar með
fleirum kost á að sækja sér afslöppun og hress-
ingu í veiðiskapinn.
Óhætt mun að fullyrða, að auðvelt sé að tvö-
falda laxveiði hér á landi á næstu 10 árum frá
því, sem nú er. Ræður þar mestu um framleiðsla
eldisstöðva á gönguseiðum, auk fiskvegagerðar,
er opnar ný ræktunarsvæði. Eru þá ótaldir þeir
miklu möguleikar, sem bjóðast til að taka lax til
slátrunar, sem hefur verið sleppt úr eldisstöðvum
sem gönguseiði og látin ganga inn í þær aftur
eftir dvölina í sjónum. Þar koma niðurstöður til-
rauna í Kollafjarðarstöðinni að miklu gagni.
Um silungseldi sem búgrein við sveitabæi hefur
mikið verið rætt undanfarin ái’, og gætir mikillar
bjartsýni hjá ýmsum í því efni. Einnig hefur
mikið Verið talað um fiskrækt í sjávarlónum og
fjörðum og jafnvel verið ráðgert að setja stíflur
yfir firði hér á landi í þessu skyni. Öll eru Joessi
mál á byrjunarstigi. Óleyst eru ýmis vandamál,
er snerta silungseldi sem búgrein og fiskhald í
fjörðum og lónum. Stöðugt er unnið af þeim aðil-
um, sem nú starfa að þessum málum, að því að
leysa sum þessara vandamála, en lausn þeirra auð-
SVEITARSTJÓRNARMÁL