Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Síða 25
BJÖRN ÁRNASON,
bæjarverkfræðingur:
SORPHIRÐA
Útdráttur úr skýrslu sorphirðunefndar
Eitt þeirra viðfangselna, sem verulega vefst
fyrir sveitarstjórnum um allt land, og raunar um
allan heim, er geymsla og öll meðferð sorps í
þéttbýli.
Stjórn Sambands íslenzkra sveitarfélaga hafði
liaft nokkrar áhyggjur af lausn þessara mála hér-
lendis og fól því á árinu 1969 þriggja manna
nefnd að fjalla sérstaklega um þessi mál. í nefnd-
ina völdust þrír verkfræðingar, þ. e. Björn Árna-
son, bæjarverkfræðingur, formaður; Björgvin Sæ-
mundsson, bæjarstjóri, og Hilmar Sigurðsson,
hreppsverkfræðingur í Njarðvíkurhreppi.
Um upplýsingar var allvíða leitað fanga. Skrif-
stofa sambandsins liafði aflað verulegra upplýs-
inga innanlands og utan. Því til viðbótar aflaði
nefndin nýrra upplýsinga, aðallega frá Norður-
löndum.
í samráði við framkvæmdastjóra sambandsins
réði nefndin sér ráðunauta til aðstoðar, annars
vegar Benedikt Gunnarsson, tæknifræðing, sem
gerði tímaathuganir og samanburð á mismunandi
sorpheimtuaðferðum, og hins vegar dr. Kjartan
Jóhannsson, rekstrarfræðing, sem undir umsjá
nefndarinnar sá um úrvinnslu, útreikninga og
samningu skýrslu hennar, ásamt starfsmanni sín-
um, Helga M. Bergs, viðskiptafræðingi.
Þá ber þess að geta, að skrifstofa sambandsins,
og þá ekki sízt Unnar Stefánsson, viðskiptafræð-
ingur, hafa aðstoðað nefndina á margan hátt.
Efni skýrslunnar
Skýrsla nefndarinnar er nú í prentun og kem-
ur út á næstunni. Er skýrslan nreð fylgiskjölum
á annað hundrað blaðsíður, og mun hún verða
prentuð í 1000 eintökum, sem dreift verður á
vegum sambandsins.
Hér á eftir mun skýrslan verða kynnt lauslega
lesendum Sveitarstjórnarmála. Geta Jreir, sem
áhuga hafa á að kynna sér hana nánar og ekki
hafa fengið hana, aflað sér sjálfrar skýrslunnar
frá skrifstofu sambandsins.
Höfuðkaflar eru:
1. Inngangur
119
SVEITARSTJÓRNARMÁL