Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Blaðsíða 41
FRA FJORÐUNGS-
SAMBAIMDI
VESTFIRÐINGA
Fjórðungsþing Vestfirðinga árið
1971 var haldið dagana 4. og 5.
september í IOGT-húsinu á ísa-
firði. Formaður Fjórðungssam-
bandsins, Gunnlaugur Finnsson,
setti þingið og flutti skýrslu um
starfsemi sambandsins á liðnu
starfsári.
Björgvin Sighvatsson, bæjarfull-
trúi á ísafirði, var kosinn forseti
þingsins, Guðmundur Magnússon,
hreppsnefndarfulltrúi í Bolungar-
vík, varaforseti, en Asgeir Svan-
bergsson, oddviti Reykjarfjarðar-
lirepps, og Pétur Bjarnason, odd-
viti Suðurfjarðarhrepps, ritarar.
A þinginu flutti ávarp Hannibal
Valdimarsson, félagsmálaráðherra,
en liann var meðal gesta þingsins
ásamt flestum alþingismönnum
Vestfjarðakjördæmis, Sturlu Jóns-
syni, heiðursfélaga sambandsins, og
nokkrum fleirum.
Fundinn sátu 32 fulltrúar frá 19
sveitarfélögum af 33 sveitarfélög-
um í Vestfjarðakjördæmi. Af þeim
eiga 28 aðild að sambandinu, en
5 sveitarfélög, þar af 4 í Stranda-
sýslu, hafa ekki gerzt aðilar, m. a.
vegna athugunar á því, hvort þau
muni frekar eiga hagsmunalega
samstöðu með Fjórðungssambandi
Norðlendinga.
Framsöguerindi
á fundinum
Á þinginu voru flutt nokkur
framsöguerindi, og voru flytjendur
þeirra eins og hér greinir:
Menntunaraðstaða
á Vestfjörðum
Hjörtur Hjálmarsson, fv. skóla-
stjóri á Flateyri, hafði á fundinum
framsögu um menntunaraðstöðu á
Vestfjörðum, en hann hefur um
skeið atliugað fyrir sambandið
ástand fræðslumála í fjórðungnum.
Gunnlaugur Finnsson,
lormaSur sambandsins.
Staða og hlutverk
landshlutasamtaka
Magnús E. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri, er fundinn sat af
hálfu Sambands íslenzkra sveitar-
félaga, flutti framsöguerindi um
stöðu og lilutverk landshlutasam-
taka og gerði grein fyrir þeim liug-
myndum, sem uppi eru um fram-
tíðarverkefni samtakanna.
Tillögur um nýskipan
heilbrigðismála
Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri
i heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu, flutti framsögu um
heilbrigðismál og kynnti tillögur
þær, sem ráðherraskipuð nefnd hef-
ur nýlega látið frá sér fara um nýtt
skipulag heilbrigðisþjónustu í land-
inu.
Gatnagerð úr varanlegu efni
Ólafur Erlingsson, verkfræðingur
á Isafirði, gerði grein fyrir niður-
stöðum könnunar, sem liann hefur
gert að tilhlutan Fjórðungssam-
bandsins á gerð varanlegra gatna
í 7 kauptúnahreppum fjórðungsins.
Varanlegar götur á þessum stöðum
eru samanlegt 1 krn á lengd. Miðað
við lagningu olíumalar myndu
nauðsynlegar framkvæmdir við
gatnagerð á þessum stöðum kosta
samtals 47 millj. kr.
Samræming
hafnarreglugerða
Jón Baldvinsson, sveitarstjóri á
Patreksfirði, gerði grein fyrir til-
SVEITARSTJ Ó RNARMÁL
135