Sveitarstjórnarmál - 01.06.1972, Page 48
StaSa og hlutverk
landshlutasamtaka
sveitarfélaga og tekjustofnar
þeim til handa
Aðalfundurinn telur nauðsyn-
legt, að á yfirstandandi Alþingi
verði gerð sú bráðabirgðabreyting,
að landshlutasamtök sveitarfélaga
fái á næsta ári framlög úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga. Við endur-
skoðun laga um tekjustofna sveit-
arfélaga verði lögbundnir óháðir
tekjustofnar fyrir landshlutasam-
tökin.
Fundurinn telur nauðsynlegt, að
hraðað verði setningu löggjafar um
stöðu og lilutverk landshlutasam-
taka sveitarfélaga.
Heilbrigðismál
Aðalfundurinn telur rétt, að í
sambandi við væntanlega nýskipan
heilbrigðismála verði gert ráð fyrir
heilsugæzlustöð í Búðardal og að
jtar starfi tveir læknar.
Ennfremur leggur fundurinn
áherzlu á, að við fullnaðarmótun
frumvarps um skipun lieilbrigðis-
mála á landinu verði haft fullt
samráð við landssamtök sveitarfé-
laga og landshlutasamtök.
Heilbrigðisfulltrúi
Aðalfundurinn samþykkir að
beina því til samtakanna að kanna
fjárhagslegan grundvöll fyrir ráðn-
ingu heilbrigðisfulltrúa í Vestur-
landskjördæmi með þvf að leita til
allra sveitarstjórna í kjördæminu
og leita samninga við Heilbrigðis-
eftirlit ríkisins og sölusamtök fisk-
iðnaðarins um kostnaðarþátttöku.
Jafnframt verði kannað, hvort
ntögulegt sé að tengja þetta starf
við störf embættismanna, sem þeg-
ar eru starfandi í kjördæminu.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Raforkumál
Aðalfundurinn lýsir fullum
stuðningi við Andakílsárvirkjun
varðandi kaup á Hvalfjarðarlínu
og beinir þeirri áskorun til yfir-
stjórnar raforkumálanna í landinu,
að gengið verði frá málinu hið
fyrsta.
Jafnframt samþykkir fundurinn
að láta fara fram athugun á hag-
kvæmustu lausn raforkumála í
Vesturlandskjördæmi í heild. Felur
fundurinn stjórn samtakanna að
skipa nefnd til að framkvæma þessa
athugun og leggja fyrir næsta aðal-
fund.
Verði í Jteirri athugun leitazt við
að finna leiðir til lækkunar á verði
raforku á orkusölusvæði Rafmagns-
veitna ríkisins í kjördæminu.
Innheimta gjalda
af innleggjendum
hjá fyrirtækjum
Þar sem nú eru í endurskoðun
lög um tekjustofna sveitarfélaga,
beinir aðalfundur SSVK því til
nefndar þeirrar, sem vinnur að
endurskoðun nefndra laga, að
ákvæði um innheimtu útsvara og
annarra gjalda verði tekin til at-
hugunar með það fyrir augum að
tryggja innheimturétt sveitarfélaga
hjá framleiðslu- og siilufyrirtækj-
um.
Aðalfundir
á ýmsum stöðum
Aðalfundurinn samþykkti að lok-
um að beina Jjví til stjórnar sam-
takanna, að aðalfundirnir verði
haldnir á hinum ýmsu stöðum í
kjördæminu.
Stjórnarkjör
í aðalstjórn samtakanna árið
1971—1972 voru kosnir:
Gylfi ísaksson, bæjarstjóri, Akra-
nesi; Sigurður Sigurðsson, oddviti,
Skilmannahreppi; Húnbogi Þor-
steinsson, sveitarstjóri, Borgarnesi:
Alexander Stefánsson, oddviti,
Olafsvík; Haraldtir Arnason, odd-
viti, Búðardal.
í varastjórn voru kosnir:
Valdimar Indriðason, bæjarfull-
trúi, Akranesi, Bergþór Guðmunds-
son, oddviti, Leirár-Melahr.; Þórð-
ur Kristjánsson, oddviti, Norðurár-
dalshreppi; Ágúst Bjartmarz, odd-
viti, Stykkishólmi, og Gísli Þor-
steinsson, oddviti, Miklaholtshr.
Endurskoðendur voru kosnir Jón
Þór Jónasson, oddviti, Stafholts-
tungnahreppi og Árni Emilsson,
sveitarstjóri, Grundarfirði, og til
vara Gísli Þórðarson, oddviti, Kol-
beinsstaðahreppi, og Skúli Alex-
andersson, oddviti, Hellissandi.