Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Page 4

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Page 4
HÆGT MIÐAR Það verður naumast talið, að menn hafi haft stórar andvökur af sveitarstjórnarmálum í kosn- ingabaráttunni fyrir alþingiskosningarnar. Kannski hafa menn fengið nóg í sveitarstjórnarkosningunum, þótt vissulega væri þeim ekki lokið í maí? Að vísu var dustað rykið af gömlu frösunum, svona fyrir siðasakir . . leggur áherzlu á, að sjálf- stæði sveitarfélaganna verði eflt, þeim fengin i hendur aukin verkefni og auknir tekjustofnar til að standa undir þeim, sköpuð verði skýr skipting verk- efna og tekjustofna milli ríkis og sveitarfélaga." Það hefur enginn hrokkið upp af blundi við að heyra þennan boðskap. Þess var vænzt, að skipun verkaskiptingarnefnd- arinnar 1976 yrði til þess að þoka þessu nauðsynja- máli áfram, og allt fram á þetta ár leit svo út sem það mundi takast. Þ. e. a. s.: með vorinu lægju fyrir a. m. k. ákveðnar hugmyndir um, hvernig skipa mætti þeim málefnum, sem nefndin skyldi fjalla um. En undanfarna mánuði hefurekki verið haldinn fundur í nefndinni, þrátt fyrir munnleg og skrifleg tilmæli, bæði stjórnar sambandsins og fulltrúa þess í nefnd- inni. Nefndin gekk að mestu frá áfangaskýrslu um fyrsta þátt málsins, verkaskiptinguna, um miðjan febrúar, þótt ekki væri vélritun lokið fyrr en í apríl. Þá lá og fyrir ýmislegt um hina tvo þættina, tekju- stofnamálin og stjórnsýsluna, m. a. umdæmaskipt- inguna. En síðan ekki söguna meir. Það liggur i augum uppi, að verkið er aðeins hálfunnið, því að þessir þrír þættir, verkaskiptingin, tekjuskiptingin og stjórnsýslan, verða ekki greindir sundur, þar sem þeir hafa megináhrif hver á annan og fyrsti hlutinn verður að skoðast i ljósi þessa, og má því ekki teljast endanlegur. En þeir hafa sem sagt ekki verið ræddir í nefndinni, svo að heitið geti, þótt sitthvað liggi fyrir. Það eru stjórn sambandsins mikil vonbrigði, að tíminn undanfarið hefur ekki verið notaður sem 106 skyldi til að þoka þessu máli áfram. Það voru vissu- lega möguleikar á því að ganga svo frá, að unnt yrði að leggja málið í heild fyrir landsþing, að vísu með ýmsum fyrirvörum, en landsþingið virðist einmitt vera liinn rétti aðili til að fjalla um það. Þess verður að vænta, að málið verði nú tekið fastari tökum og verkið leitt til lykta hið allra fyrsta, þannig að hægt verði að meta hugmyndirnar í heild. Nú hefur þófið um verkaskiptingu staðið í 10 ár samfleytt. Að vísu má ekki vanmeta það, sem áunnizt hefur, því að það er töluvert, ef á heildina er litið. íslenzk stjórnmál hafa, a. m. k. undanfarna ára- tugi, snúizt fyrst og fremst um það, hvernig eigi að komast út úr aðsteðjandi efnahagsvanda, sem virðist jafnan hvolfast yfir. Þetta er mjög skiljanlegt, en það er þó hæpið að einskorða sig við morgundaginn. Menn verða að horfa til framtíðarinnar, og sjálfsagt má rekja ýmsa þætti hinna aðsteðjandi vandamála til þess, að það hefur ekki verið gert sem skyldi. Og það mega menn vita, að skynsamleg skipun sveitar- stjórnarmála er ekki lítill þáttur í því, að efnahags- mál þjóðarinnar komist í sæmilegt horf. Núverandi glundroði býður ekki aðeins upp á óskynsamlega fjárfestingu, heldur kallar á hana; hann kallar á óþarfa skriffinsku með öllu, sem henni fylgir, tví- verknað og timasóun í fánýta hluti. Því verður naumast trúað, að eftir þessar kosn- ingar verði enn látið sitja við frasana gömlu, öll fallegu, en útslitnu orðin um sveitarfélögin og sögu þeirra gagnmerka, aukið sjálfstæði og valddreifingu og þessar gömlu lummur. Samband íslenzkra sveitarfélaga verður áreiðan- lega hér eftir sem hingað til reiðubúið til undir- hyggjulauss samstarfs við þá aðila, sem við stjórn landsins taka, hverjir, sem þeir verða, þannig að koma megi á sæmilegri skipun sveitarstjórnarmála, miðað við þarfir líðandi stundar og nánustu fram- tíðar. Endanleg lausn á því sviði er ekki til og mun aldrei verða til, sem betur fer. p p sveitarstjórnarmAl

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.