Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Blaðsíða 54
— Lítur þú svo á, að þetta samstarf sé upphaf að
sameiningu sveitarfélaganna?
„Um það vil ég ekkert fullyrða. Ég held, að í
framtiðinni geti verið athugandi fyrir þessi sveitar-
félög að ráða sér sameiginlegan starfsmann. Störf
oddvitanna, a.m.k. í hinum stærri hreppum eru að
verða alltof umsvifamikil til þess að unnt sé að sinna
þeim i hálfgerðri aukavinnu svo í lagi sé. Málin
þróast væntanlega í þann farveg, sem heppilegastur
þykir, þegar þar að kemur.“ __ ,,
SAMVINNA BÓKASAFNA RÆDD Á
5. LANDSFUNDI BÓKAVARÐA
6. - 7. SEPTEMBER 1978
156
Fimmti landsfundur bókavarða
verður haldinn að Hótel Sögu dagana
6.—7. september næstkomandi.
Fundarefni verður samvinna bókasafna,
og verður fjallað um ýmsa þætti þess
efnis, að meginhluta þó á því sviði, er
varðar skipti almenningsbókasafna
innbyrðis og tengsl þeirra við aðrar
gerðir safna. Dagskrá hefur ekki verið
endanlega ákveðin, en fullvíst er, að
eftirfarandi mál verða til meðferðar:
Þjónustumiðstöð fyrir bókasöfn, er
stofnuð var fyrir skömmu. Vonir
standa til þess, að stofnun þessi verði
með tímanum þjónustumiðstöð af
líku tagi og tíðkast erlendis, t.d. ann-
ars staðar á Norðurlöndum, þar sem
unnt er að fá á einum stað flest það, er
þarf til reksturs bókasafna, búnað,
gögn öll, sérfræðilega aðstoð og ráð-
leggingar. Stuðla slíkar stofnanir
hvarvetna að samræmdum starfs-
háttum bókasafna og hagkvæmni í
rekstri þeirra. Fyrsta verkefni Þjón-
ustumiðstöðvar fyrir bókasöfn verður
að halda áfram því verki, er Bóka-
varðafélag Islands og Félag bóka-
safnsfræðinga hafa staðið að undan-
farin ár, þ.e. gerð spjaldskrárspjalda
fyrir íslenzkar bækur frá árunum
1944—1973. Verður það verk ís-
lenzkum almenningsbókasöfnum til
hinna mestu hagsbóta, þegar lokið
verður, en því miðar nú vel áfram,
eftir því sem fé er fyrir hendi. Sam-
band íslenzkra sveitarfélaga hefur
styrkt verk þetta rausnarlega og
samþykkt að veita til þess framlag allt
að 3.000.000.00 kr., og einnig hefur
Vísindasjóður veitt því fjárstuðning.
Þjónustumiðstöðin verður kynnt og
rædd. Einnig verður sýning á hlutum
og efni, er hún á að geta útvegað
bókasöfnum, og sýndar verða kvik-
myndir, er kynna starfsemi slíkra
stofnana hjá nágrannaþjóðunum.
Annað meginefni, sem til umræðu
verður, er þjónusta miðsafns í hverju
bókasafnsumdœmi. 1 lögum um al-
menningsbókasöfn, sem samþykkt
voru á Alþingi 14. maí, er kveðið svo
á, að landinu skuli skipt í bókasafns-
umdæmi, og í reglugerð um almenn-
ingsbókasöfn frá 7. marz s.l. eru þau
ákveðin og einnig aðsetur miðsafns í
hverju þeirra. Miðsöfnum er ætlað að
inna margvíslega þjónustu af hendi
við einstaklinga og stofnanir í um-
dæmi sínu; einnig skulu þau vera
upplýsinga- og gagnamiðstöðvar, þar
sem haldið sé til haga því efni, er
varðar umdæmið, sem í hlut á. Síðast,
en ekki sízt, skulu miðsöfn veita
hreppssöfnum, skólasöfnum og stofn-
anasöfnum í umdæmunum aðstoð og
þjónustu og efla samvinnu þeirra.
Það er álit bókavarða, að leggja beri
áherzlu á slíka samvinnu og samstýr-
ingu í hendi miðsafns. Ef rétt er að
þessu staðið, hlýtur það að bæta nýt-
ingu á mannafla og fjármunum þeim,
er varið er til bókasafnsþjónustu og
bæta gæði hennar um leið. Sú hefur
og orðið raunin á erlendis við líkar
aðstæður. Fjallað verður ítarlega um
þetta mál á fundinum, bæði með fyr-
irlestrum og i umræðuhópum.
Enn fremur verða fluttir fyrirlestr-
ar um afmarkaðri efni, er varða sam-
vinnu bókasafna. Fjallað verður um
hljóðbókaþjónustu við sjónskerta og blinda.
Samkvæmt reglugerð skal eitt mið-
safn á landinu hafa þessa þjónustu á
hendi í samvinnu við Blindrafélagið,
og hefur Borgarbókasafn Reykjavík-
ur gert það frá upphafi. Það hefur
komið í ljós, að þörf fyrir þjónustu af
þessu tagi er geysimikil og raunar
meiri en hægt hefur verið að anna.
Má að vísu telja það sjálfsögð mann-
réttindi hinna sjónfötluðu, að þeir
fari ekki á mis við hið prentaða orð, er
alsjáandi fá notið. Það hefur einnig
sýnt sig, að þörfin er einnig til staðar
hjá öðrum hópum vanheilla þjóðfé-
lagsþegna.
Sem fyrr var getið, er það sam-
kvæmt reglugerð eitt aðalhlutverk
miðsafna að hlynna að frœðimennsku í
he'raði og varðveita heimildir um byggðar-
sögu. Þetta efni verður rætt á fundin-
um og þá einnig tengsl við Lands-
bókasafn Islands og Þjóðskjalasafn
Islands i þessu tilliti.
Af ofangreindu má sjá, að bóka-
verðir munu fjalla um ýmis efni, er
áhugaverð eru fyrir sveitarstjórnar-
menn, og er þeim eindregið boðið að
sitja landsfundinn að loknu lands-
þingi Sambands íslenzkra sveitarfé-
'aga- Helgi Magnússon, bókavörður.
SVEITARSTJÓRNARMÁL