Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Blaðsíða 20

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Blaðsíða 20
lína í „maskanum“ á að geta flutt nægilegt afl fyrir þá álagspunkta, sem línan er tengd við, og hið full- komna „maskakerfi" er þannig, að þótt snjóflóð eða ising grandi einum legg, „maskans“ á aðeins að verða stutt blikk á kerfinu. Þetta felur í sér, að þörf á varaafli vegna aðal- flutningskerfisins er að heita má óþarft, því allir leggir kerfisins eru í raun til vara fyrir hina, en ég vil taka skýrt fram, að þar með er ekki sagt, aðþörf á varaafli hverfi. Varaaflsþörf er skilgreind á mismunandi vegu, og einnig í mismunandi vægi fyrir hina einstöku kerfishluta. Óhætt mun að staðhæfa, að með uppbyggingu flutningskerfisins í maskakerfi, — byggingu orkuvers eða orkuvera, sem sæi um grunnaflsþörf og með tengingu landshlutans við Norðurland myndi vara- aflsþörf vera hverfandi, ef þá nokkur. Þau meginatriði, sem ég vil að lokum benda á, eru þessi. 1. Orkuvinnsla: 1.1 Hefja þarf nú þegar virkjunarframkvæmdir, sem miði að þvi, að virkjanir á Austurlandi geti sinnt grunnaflsþörf á árinu 1981. 1.2 Stefnumörkun S.S.A 1974 felur í sér, að virkj- un í Fljótsdal sé forgangsverkefni. Hugsanleg virkjun þar er 3X50 Mw Fljóts- dalsvirkjun með 50 Mw fyrsta áfanga. 1.3 Grunnaflsþörf 1981 áætlast um 50 Mw, miðað við, að hitunarmarkmiði sé náð. Dísilvinnslukostnaður árið 1978 áætlast rúm- lega 500 millj. króna. 1.4 Með tilkomu línu frá Norðurlandi sem grunnorkukosts, þarf varaafl á Austurlandi að vera minnst 80% af grunnaflsþörf á hverjum tíma og 30 Mw aukning fram til ársins 1981. Fjárfesting í vara- afli um 2.15 milljarðar króna. 2. Orkuflutningskerfið. 2.1 Vopnafjörð þarf að tengja við samveitusvæðið á þessu ári, 1978. 2.2 Bakkafjörð þarf að tengja við Þórshöfn á þessu ári, 1978. 2.3 Oliukostnaður á Vopna- og Bakkafirði verður um 52 millj. kr. árið 1978. 2.4 Hornafjarðarsvæðið þarf að tengjast við sam- veitusvæðið ekki seinna en á árinu 1979. 2.5 Endurbyggja þarf línukerfið Grímsá — Egils- staðir — Eskifjörður — Reyðarfjörður fyrir árið 1980. Fyrsti áfangi þeirrar línulagnar yrði Egils- staðir — Eskifjörður. 2.6 Áætluð fjármagnsþörf í greindar fram- kvæmdir er 4.0 milljarðar króna með aðveitustöðvum. 2.7 Bæjarkerfin þurfa 600 milljónir fram til ársins 1981. 2.8 Sveitaveitur þurfa um 100 milljónir til ársins 1981. Skipulag raforkumála A árum 1970— 1972 fóru fram miklar umræður um skipulagsmál raforkuiðnaðarins. M.a. var hald- inn fundur um málið á vettvangi Sambands íslenzkra sveitarfélaga. Næstu daga fyrir þá ráð- stefnu efndu starfsmenn RARIK til mikils fundar um þessi mál. Jafnframt liafði málið verið stöðugt á dagskrá á fundum hjá Sambandi íslenzkra rafveitna. Grund- vallaratriðið í þessum umræðum er, hvort ríkið eða sveitarfélögin eigi að veita raforkuiðnaði lands- manna forsjá. Meirihlutaálit á vettvangi S.Í.R. er, að afskipti ríkisins séu óheppileg. Helztu rök voru þau, að komið hafi í ljós með rekstri RARIK og skipulagi rekstrar þess fyrirtækis, að næsta lítið aðhald sé unnt að veita þar eð notendur séu ekki tilkallaðir til að- haldsgjafar og ábyrgðar á lýðræðislegan hátt, en það aðhald sé aftur á móti í sveitarfélagakerfinu. Á öllum þessum fundum, þar sem verið hafa full- trúar austfirzkra sveitarfélaga, hefur afstaða þeirra verið önnur en meirihlutans, og hefur hér verið um einstæðu að ræða, miðað við aðra landshluta. Hugsanlegt er, að þeirri afstöðu ráði að einhverju leyti sú sérstaða, að aðeins Reyðarfjarðarhreppur rekur eigin rafveitu hér á Austurlandi. I framhaldi af þessari umræðu flutti Magnús Kjartansson, þáverandi orkumálaráðherra, tillögu til þingsályktunar um skipulagsbreytingar, sem fólu í sér aukna þátttöku sveitarfélaga í orku- vinnslunni með stofnun landshlutafyrirtækja. SVEITARSTJORNARMAL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.