Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Blaðsíða 29

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Blaðsíða 29
Sýnishorn a( framleiðsluvörum Kötlu hf. í Vík í Mýrdal, en þær hafa m. a. verið kápur og peysur úr ull fyrir Bandaríkjamarkað. Á myndinni eru, talið frá vlnstri: Katrín Einarsdóttir, Ástríður Einarsdóttir, Jóna Kjerúlf og Sigurjón Rútsson, prjónamaður, allt starfsfólk Kötlu hf. brotið að sjá flesta daga allan ársins hring fjölda fiskiskipa að veiðum allt að því upp undir kálgarða Víkurbúa, án þess þeir fái ýtt bátkænu úr vör. Hafnargerð á suðurströnd landsins er ekki til um- ræðu hér, en það gefur auga leið, hvílík bylting það yrði í atvinnulífi þessa litla þorps, þótt ekki kæmi nema sumarhöfn nálægt Vík. Vitað er, að höfn á þessu svæði verður mjög dýr og að aðrar fram- kvæmdir verða að hafa forgang að sinni. En þjóðinni fjölgar. Og það er sannfæring mín, að í náinni framtíð muni m.a. stóriðja til útflutnings réttlæta, að lagt verði í þann kostnað, sem samfara yrði hafnargerð í námunda við Vík. Til þess að renna stoðum undir arðsemi hafnarinnar og ef vera kynni, að hinn aldagamli draumur Skaftfellinga um höfn mætti rætast, hafa menn leyft sér að gæla við hug- myndina um álverksmiðju, þótt flestir vildu í hjarta sínu vera án slíks fyrirtækis. En úrvinnsla og út- flutningur íslenzkra jarðefna getur líka komið til. Nýgerðar rannsóknir hafa leitt í ljós, að sterkar líkur eru á, að slíkt geti verið á næstu grösum, einmitt á Mýrdalssvæðinu, og er því fylgzt mjög vel með öllum þeim möguleikum. Geysilegt áfall Um neikvæða hlið atvinnumálanna hjá okkur er það að segja, að um n.k. áramó,t verður lögð niður starfsemi Loranstöðvarinnar á Reynisfjalli. Allir starfsmennirnir þar, tíu að tölu, hafa fengið í hendur uppsagnarbréf án þess nokkuð sé boðið í staðinn. Þar sem hér er um að ræða stofnun á vegum hins opin- bera, teljum við heimamenn, að ríkisstjórninni beri siðferðileg skylda til að hlaupa undir bagga og beina einhverri annarri starfsemi til okkar í staðinn. Ekki bólar á neinu slíku enn. Atvinnulega er þetta geysi- legt áfall fyrir staðinn, ef ekkert verður við gert. í Vík eru um 400 íbúar. Með þessum starfsmönnum Loranstöðvarinnar munu hverfa af staðnum milli 50—60 manns. Það er svipað og milli 10—12 þúsund manns flyttust í skyndingu frá Reykjavík. Hætt er við, að einhver ræki þá upp ramakvein. En sem sagt, enn hefur ekki orðið vart neinna úrræða eða já- kvæðra viðbragða háttvirtra stjórnarherra eða annarra opinberra aðila til aðstoðar í þessu alvarlega máli. Hér tel ég vera um sláandi dæmi að ræða varð- andi mismunun af opinberri hálfu milli landsvæða. Þegar atvinnuleysi verður í einhverju sjávarþorpi, þá er rokið til og keyptur togari og ástandinu þar með bjargað. Hvílík lyftistöng fyrir þorp eins og Vík, Hvolsvöll, Hellu, Blönduós eða önnur álíka, ef svipuðu fjármagni yrði beint þangað til iðnaðar- uppbyggingar. Sæmilegur skuttogari ku kosta ca. einn milljarð í dag. Ætli nefndir staðir sættu sig ekki við eitthvað minna, ef þeir væru svo lánsamir að eiga þess kost? 131 Sláandi dæmi um misrétti sveitarstjórnarmAl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.