Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Blaðsíða 51
Mörk hreppanna hafa hér verið dregln Inn á landabréf: 1) Skorradalshreppur, 2) Andakílshreppur, 3) Lundarreyk|adals-
hreppur, 4) Reykholtsdalshreppur og 5) Hálsahreppur.
— Hvernig er þessu samstarfi háttað?
„Við höfum, frá því að samtökin voru stofnuð,
haldið fjölmarga sameiginlega oddvitafundi og tvo
fundi með öllum hreppsnefndarmönnum á svæðinu,
enda er það eitt af markmiðum samstarfsins að auka
kynni sveitarstjórnarmannanna innbyrðis."
— Hvernig eru samgöngur innan svæðisins?
„Yfirleitt eru samgöngur sæmilegar innan þess.
Þó er það eitt af höfuðmálum samtakanna um þessar
mundir að vinna að bættum samgöngum. Sérstak-
lega má í því sambandi nefna veginn yfir Geldinga-
draga og Hestháls, því að sú leið til Reykjavíkur er
30 kílómetrum styttri en leiðin fyrir Hafnarfjall. Auk
þess er veðursæld mikil á þeirri leið, en oft illfært
hina leiðina. Einnig teljum við, að viðhald vega hafi
verið of lítið á síðari árum.“
— Liggja samgönguleiðir innan svæðisins að
sameiginlegum kjarna?
„I raun og veru er það ekki, eins og er. Segja má,
að þrír til fjórir byggðarkjarnar séu á þessu svæði.
Þeir eru Hvanneyri í Andakílshreppi, Reykholt og
Kleppjárnsreykir í Reykholtsdalshreppi, og nú á
síðustu árum er að rísa upp byggðarkjarni að Bæ í
Bæjarsveit, en svo er kallaður efri hluti Andakíls-
hrepps.“
— Hvert sækja íbúar svæðisins verzlun?
„Fyrst og fremst í Borgarnes. Því miður verður
það að segjast eins og er, að menn sækja i auknum
mæli verzlun til Reykjavíkur nú á síðari árum.“
— Færir Borgarfjarðarbrúin nýja ykkur nær
Borgarnesi?
„Nei, það gerir hún ekki, nema neðstu bæi Anda-
kílshrepps. Ég sé ekki, að brúin hafi nokkra hagnýta
þýðingu fyrir þessa hreppa.“
— Eigjið þið ekki aðild að ýmsum stofnunum í
Borgarnesi?
,Jú, allir hrepparnir eiga aðild að dvalarheimili
aldraðra í Borgarnesi, heilsugæzlustöðinni þar og að
héraðsbókasafninu.“
— Er ekki læknissetur að Kleppjárnsreykjum?
, Jú, læknissetur hefur verið á Kleppjárnsreykjum
— og er þar enn, en nú er útlit fyrir, að héraðs-
læknirinn, sem þar er, flytjist í Borgarnes. Þessi
samtök telja, að það væri stórt skref aftur á bak, ef til
153
SVEITARSTJÓRNARMÁL