Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Side 26
128
sem í höfuðborginni búa eða í næsta nágrenni
hennar.
Þetta er, að mínum dómi, kjarni málsins og sýnir,
hversu þjóðfélagið er í raun samofin heild, þar sem
hver þátturinn styður annan og er forsenda hins. Það
er því út í hött, sem stundum er haldið fram, að
byggðastefnan margumtalaða sé andstæð stærstu
þéttbýlisstöðunum. Þetta er mesti misskilningur.
Hitt er svo annað mál, að mikið vantar enn á, að
aðstaða og kjör ibúanna í þéttbýli og strjálbýli séu
jöfn. Meðan svo er, verður að teljast sjálfsagt og
eðlilegt, að framlög hins opinbera og öll fyrirgreiðsla
verði hlutfallslega meiri til uppbyggingar strjál-
býlisins.
Uppbygging seinasta áratugs
Oft verður vart nokkurs misskilnings í umræðum
manna um uppbyggingu. Margur telur hana fyrst
og fremst fólgna í byggingu íbúðarhúsa og húsnæðis
fyrir hinar og þessar opinberar stofnanir. Sjálf
undirstaðan vill oft gleymast, þ.e.a.s. hin atvinnu-
lega uppbygging, sem að sjálfsögðu hlýtur svo að
vera forsenda fyrir eðlilegri þróun á ýmsum öðrum
sviðum. En nú hin síðari árin virðast augu manna
almennt vera að opnast fyrir því, að stuðla beri að
heilbrigðri atvinnuuppbyggingu á landinu öllu, og i
því sambandi hefur réttilega verið lögð áherzla á
mikilvægi islenzks iðnaðar.
Til iðnaðarins hefur verið stofnað með ýmsum
Fyrir 5 árum hófst samstarf
Kaupfélags Árnesinga, Kaupfélags
Rangæinga og Kaupfélags
Skaftfellinga um sameiginleg
innkaup, framleiðslueftirllt og
sölukerfi undir merkinu 3K. Reynslan
af samvinnu í þessu formi er mjög
góð og mikil verkefni framundan.
Þannig gæti fleira fólk fengið atvinnu
við trésmíði, ef fjármagn væri til
staðar til að reisa nýtt iðnaðarhús, tll
viðbótar við þetta 1200 m2 húsnæði,
að sögn Matthíasar Gíslasonar,
kaupfélagsstjóra Kaupfélags
Skaftfelllnga.
hætti. Venjulegast hafa einstaklingar eða félög
forystu um nýjan iðnað og framleiðslu, en stöku
sinnum eru það sveitarfélög eða stjórnvöldin í
landinu. Viðhorf stjórnvalda til þessara mála skipta
líka miklu, þótt um beina forystu sé ekki að ræða. Og
enginn efi er á því, að störf stjórnmálamanna geta
haft úrslitaþýðingu um framvindu iðnþróunar og á
það bæði við um ríkisstjórnir og þingmenn,
byggðarstjóra og byggðarfulltrúa.
Ekki þurfum við að hverfa nema tæpan áratug
aftur í tímann til að gera okkur ljóst, að stórátak
hefur verið gert í þessum efnum víða um landið.
Fyrir þann tíma ríkti víða algjör kyrrstaða, at-
vinnuleysi var tilfinnanlegt á ýmsum stöðum, og fólk
hvarf í stórum stíl úr strjálbýli til þéttbýlis. Nú hafa
orðið stórfelld umskipti og eru þau ekki síður til
ávinnings fyrir þéttbýlið en strjálbýlið.
En betur má ef duga skal. Enn sitja ýmsir staðir á
landinu við lakara borðið. Er þar ýmislegt, sem
veldur annað en það, að þar sitji tómir aumingjar.
Þrenns konar aðstaða byggðaþróunar
Þegar hugað er að þróun iðnaðar á Isla.ndi und-
anfarna áratugi, virðist mega skipta landinu i þrjú
svæði varðandi mismunandi aukningu i þessum
efnum.
Skiptingin hugsast þannig:
1. Höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni.
SVEITARSTJÓRNARMÁL