Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Side 45

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Side 45
TÆKNIMENN RÆÐA UM OLÍUBUNDIN SLITLÖG Samtök tæknimanna sveitarfélaga, SATS, héldu fund á Hótel Loft- leiðum hinn 25. nóvember síðast- liðinn, þar sem fjallað var sérstaklega um oliubundin slitlög, þ. e. malbik og olíumöl. Fundinn sátu 30 tæknimenn sveitarfélaga víða að af landinu. Tilgangur fundarins var einkum sá að gefa tæknimönnum sveitar- félaga tækifæri til að bera saman bækur sínar um reynslu af olíumöl og malbiki í hinum ýmsu landshlutum og að skiptast á skoðunum við full- trúa Vegagerðar ríkisins, Rann- sóknarstofnunar byggingariðnaðar- ins og Reykjavíkurborgar um þessi mál. I fundarbyrjun var gerð grein fyrir þróun gatnagerðar með olíubundn- um slitlögum á nokkrum stöðum eða í tilteknum landshlutum: Hallgrímur Axelsson, bæjarverk- fræðingur á Isafirði, sagði frá ástandi þessara mála á Isafirði og á Vest- fjörðum, Vlðar Aðalsteinsson, tæknifræðingur, sagði frá gatnagerð í Vestmanna- eyjum og endurbyggingu gatna- kerfisins þar að loknu gosi, Vilhjálmur Grímsson, bæjartækni- fræðingur, sagði frá gatnagerð i Keflavík, Þórarinn Magnússon, fv. bæjarverk- fræðingur i Neskaupstað, sagði frá gatnagerð á Austurlandi á síðustu árum og Ólafur Gunnarsson, bæjarverkfræð- ingur í Kópavogi, sagði frá gatnagerð þar. Jón Rögnvaldsson, verkfræðingur, skýrði frá reynslu Vegagerðar ríkisins af ýmsum tilraunaköflum, sem lagðir hafa verið til þess að reyna ýmsar efnistegundir og blöndunarhlutföll við gerð slitlagsefna. Stefán Hermannsson, yfirverkfr. hjá Reykjavíkurborg, ræddi m. a. um mismunandi eiginleika ýmissa gerða malbiks og þróun i notkun þessara efna annars staðar á Norðurlöndum. Asbjörn Jóhannesson, verkfr. hjá Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins, flutti erindi um rann- sóknir á olíumöl, malbiki og þeim efnum, sem til þeirrar framleiðslu eru notuð. 1 fundarlok var þátttakendum boðið að líta á malbikunarstöð Rcykjavíkurborgar og rannsóknarað- stöðu R. b. á þessum efnum. Æskilegt væri að gera því efni og þeim upplýsingum, sem fram komu á fundinum ítarleg skil. Stjórn SATS hefur hug á að taka saman og fjöl- falda þau erindi, sem þarna voru flutt og hafa þau tiltæk þeim, sem áhuga hafa á þessum málum. Því er ekki talin ástæða til að tíunda einstök atriði hér — enda málið langt, ef út í það yrði farið. Tvö atriði langar mig þó til að geta um hér af öllu því, sem á góma bar — en það er i fyrsta lagi, hve almennt það virðist vera að leggja talsverða vinnu í að skilgreina hina ýmsu þætti, sem tilheyra gatnagerðinni, t. d. legu og form götunnar, fjölda niðurfalla, þykkt burðarlags o. þ. h., en lítið eða ekkert sagt um gerð og uppbyggingu slitlagsins. 1 annan stað virðist sem þörf sé á að aulía bæði forrannsóknir og fram- leiðslueftirlit með þessum efnum og nauðsynlegt, að eftirlitskerfið sé tvö- falt, þ. e. bæði eigið eftirlit framleið- anda og annars rannsóknaraðila, svo að unnt sé að bera hliðstæðar niður- stöður saman. Lítils háttar mistök hér geta haft víðtækar afleiðingar — eins og dæmin sanna. Sérstakur gestur stjórnarinnar á þessum fundi var Unnar Stefánsson, ritstjóri Sveitarstjórnarmála. I fundarlok ávarpaði Unnar fundar- menn og kom hann á framfæri áhyggjum umferðaryfirvalda vegna tiðra slysa I umferðinni í seinni tíð. Bað ritstjórinn viðstadda að hugleiða það mál og hugsanlega leggja fram hugmyndir, sem gætu bætt ástandið í þessum efnum. Stjórn félagsins hefur nú til athugunar að gera þessum málaflokki skil á næsta fundi félags- ins. Vilhjálmur Grímsson, bæjartæknifræðingur, Keflavík. SVEITARSTJÓRNARMAL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.