Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Blaðsíða 30
TÆKNIMÁL
Guöbjartur Á. Ólafsson
tæknifræ&ingur Blönduóshrepps
Mi&lunargeymir vatnsveitu
Blönduóss
Stærsta framkvæmd Blönduós-
hrepps á árinu 1986 er bygging
miðlunargeymis, en með tilkomu
hans verður ráðin bót á þvi
ófremdarástandi, sem ætíð
skapast í neyzluvatnsmálum
staðarins í sláturtíðinni og vex ár
frá ári með vaxandi vatnsþörf
rækjuvinnslunnar.
Árið 1979 var ráðizt i virkjun
Laugahvammslinda, en þær eru
undir Breiðavaðsnúpnum niður
við bakka Blöndu. Tvær djúpdælur
dæla vatninu upp á Breiðavaðs-
núpinn í u.þ.b. 40 m yfir upptök
lindarinnar, og til þessa dags
hefur verið notazt við tengihús þar
sem vatnsgeymi, en kjallari þess
tekur 38 m3.
Líklegt er, að á árinu 1983 hafi
vatnsyfirborð lindarinnar verið
þvingað uppfyrir það, sem náttúr-
legt er, þannig að til varð önnur
lind í um 50 m fjarlægð frá þeirri
upprunalegu, og var þá gert nýtt
vatnsból til bráðabirgða við nýju
uppsprettuna, og er vatni þaðan
dælt til aðaldæluhúss við hið hálf-
þornaða ból.
Nýtanlegt vatn er því aðeins
30-32 l/sek, þótt lindin sjálf gefi
líklega 50-55 l/sek, væri hún full-
beizluð. Sex stærstu vatnsnot-
endurnir, rækjuvinnslan, mjólkur-
stöð, sláturhús, frystihús, Héraðs-
hælið og brauðgerðin, geta farið
upp í 32.000 m3/mánuði, sem
getur orsakað allt að 50 l/sek
notkunartopp.
Við slíkar aðstæður dregur að-
veituæðin loft, sem bæði veldur
rennslistregðu og þrýstingsfalli.
Við þetta var ekki hægt að búa, þar
sem mikil verðmæti eru í húfi, og
Midlunargeymirinn i smiðum. Á myndinni eru greinarhöfundur og hönnuöur geymisins, GuðbjarturÁ. Ólafsson, til
vinstri, en Gestur Þórarinsson, vatnsveitustjóri og verkstjóri, til hægri.
244 SVEITARSTJÓRNARMÁL