Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Blaðsíða 27
SAMTALIÐ
Hjalteyri á sildarárunum. Bátaraó landa sumariö 1958, bædi vid söltunarbryggjuna og löndunarkrana síldarverksmiöjunnar.
Gunnar Ragnarsson tók myndina.
— Hver annast fiskvinnslu á staðnum?
,,Kaupfélag Eyfirðinga setti á stofn fiskmóttöku í
húsnæði, sem hreppurinn átti á staðnum, og keypti
allan fisk, sem landað var. Einnigvar fluttur fiskur frá
Dalvík og verkaður í skreið og salt. Starfsemin jókst
smám saman, og á síðastliðnum árum hafa unnið þar
10-30 manns að staðaldri. Unglingar hafa fengið þar
vinnu yfir sumarið, og nú er þar orðin aðalskreiðar-
framleiðsla Kaupfélags Eyfirðinga svo og
skreiðargeymsla. Er þangað flutt skreið til geymslu
bæði frá Hrísey og Grímsey. Geymslurými í
verksmiðjuhúsunum er 48 þúsund rúmmetrar, svo
þau henta vel til þeirra hluta."
- Hefur hreppurinn mikið umleikis á Hjalteyri?
„Hreppurinn hefur lagt fjármagn bæði sitt eigið og
lánsfé í nýja vatnsveitu, sem lögð var á staðinn á sl.
ári. Hún er um 4 km á lengd. öll hús á Hjalteyri voru
tengd við hana svo og fjögur sveitabýli. Hún kostaði
um 2,2 millj. króna. Á sl. sumri var lagður nýr vegur
frá Ólafsfjarðarvegi til Hjalteyrar, um 3,5 km langur,
og í sumar hefur verið lagt á hann bundið slitlag.
Bætir þetta hvoru tveggja aðstöðu fólksins á staðnum
og auðveldar einnig fiskflutninga frá Dalvík til
vinnslu á Hjalteyri.”
— Hvernig er hafnaraðstaðan á Hjalteyri?
,,Að undanförnu hefur verið unnið að því að fá
byggðan sjóvarnargarð utan á eyrina, og á hann að
verja eyrina og vitana, sem á henni eru, skemmdum,
því að sjór hefur brotið land upp að tveimur
vitum, sem þar eru. Er annar flugradíóviti, sem er
aðflugsviti á Akureyrarflugvöll. Unnið var að þessu
verki á sl. sumri fyrir 700 þúsund krónur, og mun
verkið vera um það bil hálfnað.
Pá var á sl. sumri byggður frystiklefi með nýjum
frystivélum. Hann byggðu fjórireinstaklingar, oger
þar bæði geymd beita og frystur fiskur, pakkaður og
seldur.
Frá Hjalteyri eru gerðar út um tuttugu trillur, þetta
frá tveggja til sex tonn að stærð. Eru þær flestar í eigu
heimamanna, en nokkrar í eigu Akureyringa, sem
gera þær út á sumrin."
- Er grunnskóli á Hjalteyri?
„Grunnskóli Arnarneshrepps stendur rétt ofan við
SVEITARSTJÓRNARMÁL 241