Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Blaðsíða 35
FRÆÐSLU MÁL
færakosturinn er mjög fjölbreyttur,
og svo dæmi sé tekiö, þá á skólinn
um 20 garðsláttuvélar.
Flokksstjórar: Eins og áöur seg-
ir, stjórna þeir hver sínum vinnu-
flokki.
Reynt hefur veriö aö hafa yfir-
byggingu í starfsmannahaldi eins
litla og frekast er kostur, og hefur
þaö gengið vel, enda sést, aö aö-
eins þrír menn stjórna 15 flokks-
stjórum og um 140 unglingum.
Vinnutími unglinganna er,:eins
og áöur segir, 7 klst. á dag. Ekki er
tekinn kaffitími, og þessum 35
mín., sem ætlaö er í kaffitíma, er
safnaö saman og hætt fyrr á föstu-
dögum, þannig að þá er aðeins
unnið fram aö hádegi.
Verkkennsla í vinnuskólanum er
mjög mikil nauðsyn og eins aö
kynna unglingum skyldur í sam-
bandi viö mætingu og almenna
hegöun á vinnustaö. Þessivinnaer
fyrstu sporin á vinnumarkaðinum
hjá flestum, og því getur hún haft
Standsetning lóða og opinna svæða er meðal vinsælli verkelna Vinnuskólans.
Greinarhöfundur tók myndina.
mjög mótandi áhrif á störf þeirra í
framtíðinni. Gott og öflugt félags-
starf hefur mikið aö segja og er al-
ger forsenda fyrir þvl, aö ungling-
unum líki vistin í vinnuskólanum
vel. Þeim fjármunum, sem settir
eru í félagsstarf, er mjög vel varið,
og þeir eru fljótir aö skila sér til
baka í bættum vinnuanda og vinnu-
brögöum.
Aðalfundur PÁLMA
Æskulýös- og íþróttafull-
trúar ræöa styrkveitingar
til félaga
Æskulýös- og íþróttafulltrúar
sveitarfélaga hafa komið formlega
saman einu sinni á ári að minnsta
kosti síðustu þrjú árin, þarsem
rædd hafa verið ýmis mál, sem
snerta störf og stofnanir, sem
þessir menn veita forstööu. í fyrra
voru á ísafirði stofnuö formleg
samtök þessara aðila, og hlutu þau
nafnið PÁLMI.
Aðalfundur Pálma var í ár
haldinn á Akureyri dagana 8.-11.
maí sl. Jafnframt þvi aö koma til
aðalfundar er ekki síður ætlunin,
aö menn dveljist saman, kynnistog
beri saman störf sín og annarra og
ÆSKULVÐSMÁL
læri þannig hver af öörum, og eins
að kynna sér, hvernig lífið gengur
fyrir sig í því sveitarfélagi, sem
aðalfundurinn er haldinn, og loks,
hvaö bærinn hefur aö bjóða.
Aöalmál fundarins á Akureyri var
„Styrkveitingar sveitarstjórna til
hinna frjálsu félaga og reglur þar aö
lútandi". Eftir miklar umræður
komust fundarmenn ekki aö sam-
eiginlegri niöurstööu um, hvernig
bezt væri aö haga styrkveitingum
til frjálsra félagasamtaka, enda er
úthlutun þeirra mjög misjöfn á milli
sveitarfélaga. Sú hugmynd kom
upp á fundinum aö efnatil vinnu-
fundar á hausti komanda í sam-
vinnu viö æskulýðsráð ríkisins, þar
sem reyntyröiaö móta reglur, sem
flest sveitarfélög ættu aö geta haft
til hliðsjónar við úthlutun styrkja
þessara. Þaö mál er nú í athugun.
Allur undirbúningur fundarins
var i höndum Hermanns Sig-
tryggssonar, æskulýðs- og íþrótta-
fulltrúa á Akureyri, og konu hans,
en þau nutu leiösagnarfráfarandi
formanns Pálma, Björns Helga-
sonará ísafirði. Þaöerskemmstfrá
því að segja, að allar móttökur og
undirbúningur þessa Akureyrar-
fundar var eins og bezt verður á
kosið, og verður erfitt aö bæta þar
um betur. Eins voru allar móttökur
á vegum Akureyrarbæjar sérstak-
lega góöar.
í lok fundarins var ákveöiö, aö
næsti aöalfundur yrði á Akranesi
næsta vor, og var Elías Þór Sig-
urðsson, æskulýðsfulltrúi á Akra-
nesi, kosinn formaður Pálma, og
Hermann Sigtryggsson, æsku-
lýös- og íþróttafulltrúi á Akureyri,
varaformaöur.
Elis Þór Sigurösson,
æskulýðsfulltrúi á Akranesi
SVEITARSTJÓRNARMÁL 249