Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Blaðsíða 48
VMISLEGT
Vetrarfundur SÍR og SÍH
12. og 13. nóvember
Vetrarfundur orkuveitusam-
bandanna, Sambands íslenzkra
hitaveitna (SÍH) og Sambands ís-
lenzkra rafveitna (SÍR), veröur
haldinn á Hótel Sögu í Reykjavík
dagana 12. og 13. nóvember. A
sameiginlegum fundi veröur rætt
um áhrif skattlagningar og niöur-
greiöslna annars vegar frá sjónar-
hóli hitaveitna og hins vegar frá
sjónarhóli rafveitna. Aöalfram-
söguerindi flytur Jónas Elíasson,
prófessor, en síðan tala þeir Ing-
ólfur Hrólfsson, hitaveitustjóri
Hitaveitu Akraness og Borgar-
fjarðar, og Jón Örn Arnarson,
veitustjóri á Selfossi. Þá flytur Mats
Nilsson, framleiöslustjóri Sydkraft
í Svíþjóö, erindi um markaösstjórn,
og að því loknu veröa pallborös-
umræður um spurninguna: Á
markaössókn erindi viö okkur?
Fyrir hádegiö síðari daginn ræða
rafveitumenn um eftirlit meö raf-
orkuvirkjum og hitaveitumenn um
kælingu í dreifikerfi, Jarðboranir
hf. og dælulager. Eftir hádegið
ræöa rafveitumenn um tæknileg
tengiskilyrði, reglugeröarmál, það,
sem efst er á baugi í nokkrum
raforkufyrirtækjum, og um málefni
raforkufyrirtækja. ’Á meðan ræöa
hitaveitumenn um norræna tær-
ingarverkefnið, áhrif jaröskjálfta á
jarðhitakerfið og jarðhitavinnslu og
um málefni hitaveitna almennt.
Orkuveitusamböndin á
Skólavöröustíg 6b
Orkuveitusamböndin, Samband
íslenzkra hitaveitna og Samband
íslenzkra rafveitna, hafa flutt starf-
semi sína úr Hafnarhúsinu viö
Tryggvagötu í nýtt húsnæöi aö
Skólavöröustíg 6b, þar sem áður
stóð svokölluð Breiöfiröingabúö
gegnt iönaöarmannahúsinu viö
Hallveigarstíg. Samböndin hafa
skrifstofur sínar á 2. hæö hins nýja
húss. Þau hafa fengiö nýtt síma-
númer, sem er 621250. Heimilis-
fang þeirra er, eins og áöur segir,
Skólavöröustígur 6b, 101 Reykja-
vík, og loks nýtt póstfang, sem er
Pósthólf 963 121 REYKJAVÍK.
Eins og fram kemur í grein
Hallgríms Dalberg, ráöuneytis-
stjóra í félagsmálaráðuneytinu,
framar í þessu tölublaði, fluttist
félagsmálaráöuneytið hinn 23.
september í húsnæði það á 4.
hæð í Hafnarhúsinu, sem orku-
veitusamböndin áöur höföu til um-
ráöa. Símanúmer ráöuneytisins er
eftir sem áður númer Stjórnar-
ráösins eöa 25000.
Kosningavísa
í hreppi nokkrum var óhlutbund-
in kosning, þ.e. persónuleg, í
fyrsta skipti í mjög langan tíma.
Kvöldiö fyrir kosningar varö þess
vart, aö gengið var í hús í þéttbýli
sveitarinnar og þar dreift miöa,
sem fjölfaldaður hafði veriö meö
tölvutækni, en á miðanum voru
nokkur nöfn, sem litið var á sem
tillögur um væntanlega hrepps-
nefndarfulltrúa. Eigi mun aögeröin
hafa orðið árangurslaus. Eftir
kosningarnar var kveðið:
Tölvuvæding er vist til bóta
og veröug til þess aó gefa svar,
er hlaupa menn upp til handa og fóta
í heilaþvott fyrir kosningar.
Vistun fatlaóra
af völdum slysa
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur skipað nefnd til
þess aö gera úttekt á vanda þeirra
öryrkja, sem eiga sakir andlegrar
og líkamlegrarfötlunaraf völdum
slysa og sjúkdóma öröugt um
vistun á þeim stofnunum, sem fyrir
eru, og aö gera tillögur til úrbóta
þannig, aö reynt veröi aö leysa
máliö sem næst heimabyggö.
í nefnd þessari eru Ingimar
Sigurðsson, deildarlögfr. í
heilbrigöis- og tryggingamála-
ráöuneytinu, sem er formaður
nefndarinnar; Ingibjörg
Magnúsdóttir, deildarstjóri í sama
ráðuneyti, sem er ritari
nefndarinnar; Björn Önundarson,
tryggingayfirlæknir; Haukur
Þórðarson, yfirlæknir á Reykja-
lundi, og Ásgeir Ellertsson, yfir-
læknir á handlækningadeild
Borgarspítalans.
Heilsugæzlustöðin Borgarnesi
óskar að ráða framkvæmdastjóra
frá og meö 1. janúar nk., eöa eftir nánara samkomulagi.
Um er aö ræöa hálfa stöðu.
Nánari upplýsingar veitir formaöur stjórnar
Heilsugæzlustöðvarinnar, EyjólfurT. Geirsson, í síma
95-7224.
Umsóknarfrestur ertil 10. nóv. 1986.
Heilsugæzlustöðin Borgarnesi.
262 SVEITARSTJÓRNARMÁL