Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Blaðsíða 49
YMISLEGT
Endurskoðun fram-
færslulaganna
Eins og frá var skýrt í síðasta
tölublaði, hefur félagsmálaráð-
herra skipað nefnd til þess að
endurskoða framfærslulög nr. 80/
1947 ásamt síðari breytingum.
( nefndinni eru Þorgerður
Benediktsdóttir, deildarlögfræð-
ingur í félagsmálaráðuneytinu,
sem er formaður, Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir, formaður starfs-
mannafélagsins Sóknar, Gunnar
Jóhann Birgisson, lögfræðingur,
Rannveig Guðmundsdóttir, forseti
bæjarstjórnar Kópavogsbæjar,
Kristján Benediktsson, fyrrv.
borgarfulltrúi, Sveinn Ragnars-
son, félagsmálastjóri, Reykja-
víkurborg, og Ingibjörg Rafnar, fv.
borgarfulltrúi, eins og skýrt var frá
í síðasta tbl. Gylfi Kristinsson,
deildarstjóri í félagsmálaráðuneyt-
inu, er ritari nefndarinnar.
Endurskoðun laga um
hollustuhætti og heil-
brigðiseftirlit
Nefnd, sem nú endurskoðar lög
um hollustuhætti og heilbrigðis-
eftirlit nr. 109/1984, er ætlað að
Ijúka störfum fyrir næstu áramót.
Nefndin fer þess á leit, áð sveitar-
stjórnir láti sér í té álit á fram-
kvæmd laganna og geri tillögur um
breytingar á þeim að fenginni
reynslu, telji þær breytinga þörf.
Slíkar tillögur og ábendingar ber
að senda ritara nefndarinnar, Þór-
halli Halldórssyni, forstöðumanni,
Hollustuvernd ríkisins, Síðumúla
13 i Reykjavík.
Varaformaður sam-
bandsins
Á fyrsta fundi sínum hinn 12.
september kaus stjórn sambands-
ins Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
stjóra á Seltjarnarnesi, varafor-
mann sambandsins til næstu fjög-
urra ára.
• •
Hjálparkqlltækið:
ffiitii LIF
Ómissandi örygaistæki fyrir aldraða, fatlaða, hjartasjúklinga og aðra
sem geta skynailega þurft á hjálp að halda.
Þegar jafnvel stutt leið að síma getur reynst ofviða, er mikið öryggi
í þráðlausa tækinu sem boriðerum hálsinn.
Aðeins þarf að þrýsta á tækið til að gera aðvart í öryggismiðstöð
VARA, þar sem strax eru gerðar ráðstafanir til hjálpar.
Einsog sönnum lífverði sæmirgetur hann einnig gertaðvartum eld ogreyk.
[ flestum tilfellum greiða almannatryggingar
meirihluta kaupverðs en tækið
fæst einnig leigt til
lengri eða
skemmri
tíma.
Halla Halldórs-
dóttir, hjúkrunar-
fræðingur VARA
veitir allar nánari
upplýsingar og
aðstoð. Hún er
einnig tilbúin að
heimsækja þá sem
vilja kynnast„LITLA
LÍFVERÐINUM".
Halla er í síma
91-29399.
SERHÆFÐ
ÖRYGGISÞJÓNUSTA
STOFNSETT 1969
Þóroddsstöðum v/Skógarhlíð
Pósthólf 1101 121 Reykjavík
o 91-29399
Símaþjónusta allan sólarhringinn
islensk öryggisþjónusta með alþjóðleg sambönd
SVEITARSTJÓRNARMÁL 263