Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Page 38

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Page 38
SAMEINING SVEITARFÉI AGA Klofningshreppur lagdur til Fellsstrandarhrepps íbúatöluna þá, flytjast 3 íbúar til Skarðshrepps og 20 til Klofnings- hrepps, sem er eftir sameininguna með 96 ibúa, en Skarðshreppur með 52 íbúa. Klofningshreppur í Dalasýslu var hinn 1. september sl. lagður til Fellsstrandarhrepps i sömu sýslu að undanskildum tveimur jörðum, Ballará og Melum, sem lagðar voru til Skarðshrepps. Frá og með sama tíma féllu niður umboð þeirra hreppsnefndarmanna, sem kjörnir voru í hreppsnefnd Klofningshrepps í kosningunum 14. júní. Hinn 8. nóvember nk. verða kosnar hreppsnefndir í hin- um stækkuðu Fellsstrandar- og Skarðshreppum. Félagsmálaráðuneytið auglýsti þessa skiptingu Klofningshrepps milli tveggja grannhreppa hinn 30. júlí sl. Var þar ákveðið, að Fells- strandarhreppur og Skarðshrepp- ur skyldu taka við eignum og skuldum, réttindum og skyldum Klofningshrepps í hlutfalli við þann fjölda íbúa, sem til þeirra fluttist. Verði ágreiningur um þau skipti, skuli úr honum skorið af þriggja manna gerðardómi. Yrði hann skipaður einum fulltrúa hvorrar hreppsnefndar og odda- manni, sem félagsmálaráðherra skipar. Skjöl og bókhaldsgögn Klofningshrepps skyldu afhendast Fellsstrandarhreppi til varðveizlu. Hinn 1. desember 1985 voru í Fellsstrandarhreppi 76 íbúar, í Klofningshreppi 23 íbúar og í Skarðshreppi 49 íbúar. Miðað við Þetta er fyrsta sameining sveitarfélaga, sem fram fer sam- kvæmt nýju sveitarstjórnarlögun- um, sem kveða svo á, að lág- marksíbúatala sveitarfélags sé 50 íbúar. ,,Þad eru allirsáttir við þetta ísveitinni, að ég bezt veit,"sagði Erna Einarsdóttir, hreppstjóri i Ktofningshreppi, sem nú hefur verið iagöur niður, istuttu samtali við Sveitarstjórnarmál, en hún erönnurfrá vinstriámyndinni hérað ofan. Dalablaðiðbirti myndina affjölskyldu, ,,sem skipti um hrepp án þess að fiytja", eins og aðrar fjölskyldur i hreppnum. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Björgvin Axel Björgvinsson, Erna Einarsdóttir, hreppstjóri, íris Björg og Barbara Úsk Guðbjartsdætur og aftan við hana Guðbjartur Aðalsteinn Björgvinsson, bóndiá Sveinsstöðum og hreppsnefnd- armaður i Klofningshreppi. Ljósm. Ragnar Ingi Aóalsteinsson. Hrófbergshreppur og Hólmavíkurhreppur sameinast Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út tilkynningu um samein- ingu Hrófbergshrepps og Hólma- víkurhrepps í Strandasýslu frá næstu áramótum. „Hreppsnefnd Hrófbergshrepps hafði fyrir sitt leyti samþykktsameininguna þeg- ar fyrir síðustu hreppsnefndar- kosningar, og hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps hefur einnig lýst sig fylgjandi sameiningu hreppanna", sagði Halldór Hall- dórsson á Hrófbergi, oddviti Hróf- bergshrepps, í samtali við tíma- ritið. „Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofustjóri í félagsmálaráðu- neytinu, kom á fund hreppsnefnd- ar okkar fyrir skömmu, þar sem ýmis framkvæmdaratriði voru rædd, og ég veit ekki til þess, að nokkuð geti aftrað því, að úr sam- einingu hreppanna verði um ára- mótin", sagði Halldór. [ Hrófbergshreppi voru hinn 1. desember sl. 23 ibúar, en í Hólmavíkurhreppi 428 íbúar. íbúa- tala hins sameinaða hrepps væri því 451, miðað við 1. desember 1985. 252 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.