Sveitarstjórnarmál - 01.03.1999, Qupperneq 42
MENNINGARMAL
Munu hetjur ríða um héraðið
þitt í sumar?
Armann Guðmundsson, formaður Leikfélagsins Sýnir
Leikfélagið Sýnir (leikfélag áhugaleikara
sem taka ekki mark á fjarlœgð) hyggst í
sumarfara i leikferð um landið og sýna nýtt
leikrit eftir Böðvar Guðmundsson. Þetta
verður útisýning sem fjallar um kristnitSku
i Eyjafirði um árið 1000 og verður hún
frumsýnd í Kjarnaskógi á kristnitökuhátíð í
Eyjafirði 25. júli nk.
Árið 1997 hóf Bandalag íslenskra leik-
félaga (BÍL) starfsemi leiklistarskóla fyrir
áhugaleikara. Skólinn starfaði rúma viku í
júní og fór kennsla fram í Húsabakkaskóla í Svarfaðar-
dal. Sóttu hann tæplega 40 áhugaleikarar víðs vegar af
landinu og gafst áhugaleikurum þama kærkomið tæki-
færi til að kynnast og vinna með fólki úr öðrum leik-
félögum. Varð þvílík sköpunarsprenging í hópnum að
strax og fólk var komið heim var farið að leita leiða til
að hópurinn gæti áfram unnið saman að leiklist. Menn
settu ekki fyrir sig að hópurinn kom frá öllum lands-
hornum, töldu það aðeins tæknilegt vandamál sem leysa
rnætti með góðri skipulagningu. Niðurstaðan varð sú að
stofnað var leikfélag sem spannaði landið allt og hlaut
nafnið Leikfélagið Sýnir. Markmið félagsins var að setja
upp leiksýningar senr sýndar yrðu sem víðast um landið.
Þar sem flestir félagsmenn leikfélagsins voru bundnir
yfir sýningum síns heimaleikfélags þá urn veturinn var
ákveðið að byija smátt og látið nægja að setja upp tvo
frumsamda einþáttunga á einþáttungahátíð BIL í Stykk-
ishólmi í maí. Þessir einþáttungar voru síðan leiknir aft-
ur ásamt fjórum öðrum á Dalvík síðastliðið sumar með-
an á öðru ári leiklistarskólans stóð. Strax síðastliðið
haust hófst svo undirbúningur fyrir fyrstu leiksýningu
félagsins í fullri lengd.
Leikfélagið Sýnir er hæfdeg blanda af efnilegu og
reyndu leikhúsfólki. 1 því er fólk sem fengist hefur við
flesta þætti leiklistar, allt frá hvísli til leikstjómar, og
stefnir leikfélagið að því að vera sjálfbært (svo notað sé
það tískuorð) urn sem flest. Upphaflega stóð því til að
þrír félagsmanna skrifúðu fámennt og meðfærilegt leik-
rit sem einfalt og þægilegt væri að setja upp í hvaða
samkomuhúsi sem væri. Þá kom að máli
við stjórn félagsins séra Hannes Örn
Blandon og fór þess á leit, fyrir hönd
kristnitökunefndar Eyjafjarðarprófasts-
dæmis, að Leikfélagið Sýnir tæki að sér að
setja upp leikrit sem Böðvar Guðmundsson
væri með í smíðum og fjallaði um kristni-
töku í Eyjafirði um árið 1000. Þrátt fyrir að
lágmark 25 leikara þyrfti í sýninguna, þetta
væri útisýning þar sem flest íslensku hús-
dýrin væm skrifuð inn í handritið og fyrir-
sjáanlegt að verkefnið æti meira og minna
upp allt sumarfrí þátttakenda, var þetta svo einstakt og
ævintýralegt verkefni að innan viku hafði tilboðinu verið
svarað játandi. Leikritið er hæfileg blanda af gamni og
alvöru og er þar allt að finna sem prýðir góða Islendinga-
sögu, forboðna ást, afbrýði, ódæðisverk, hefndarþorsta
og sáttfýsi. Þarf enginn sem þekkir til verka Böðvars að
efast um að vel er farið með efhið.
I samningnum sem Leikfélagið Sýnir og kristnitöku-
nefnd Eyjafjarðarprófastsdæmis gerðu með sér fólst að
nefndin greiddi höfúndi fyrir verkið en leikfélagið tók að
sér að sýna það og fékk í staðinn sýningarrétt að ákveðið
mörgum sýningum en enga beina greiðslu. Og þá var
bara að vinda sér í að skipuleggja og fjármagna dæmið
því það segir sig sjálft að svona ferðalag útheimtir gífúr-
legt skipulag og kostar dágóðan skilding. Það er ljóst að
leikfélagið kemur til með að reiða sig talsvert á styrki
þvi ætlunin er að stilla aðgangseyri í hóf (en stefnt er að
því að miðaverð á sýninguna verði kr. 999 fyrir áhorf-
endur 16-66 ára eða ein króna á hvert kristið ár. Að-
gangur verður ókeypis fyrir ellilífeyrisþega og böm. Um
þessar mundir stendur yfir leit að heppilegum sýningar-
stöðum (sýningarnar verða alls níu á tímabilinu 25.
júlí-2. ágúst) og eitt af því sem ræður miklu um val á
þeim er áhugi viðkomandi sveitarfélags eða annarra
aðila innan þess á að fá sýninguna til sín. Ef slíkur áhugi
er fyrir hendi er tilvalið að hafa samband við greinarhöf-
und og fá frekari upplýsingar en það er hægt að gera í
heimasíma 551—4880, vinnusíma 568-2550 eða í net-
fanginu: concepts@mmedia.is
36