Sveitarstjórnarmál - 01.03.1999, Side 67
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
stjóma á starfssvæðinu. Svömn var
almennt góð og kynnti hann helstu
niðurstöður lokaskýrslu um könnun-
ina. Almennt var afstaða til Skóla-
þj ónustunnar j ákvæð.
Starfshópurinn lagði til að Skóla-
þjónusta Eyþings yrði rekin með
sama hætti tvö ár til viðbótar eða
fram til ársins 2000. í lok þess tíma-
bils yrði þjónustan metin að nýju,
þá sérstaklega með tilliti til úrbóta í
þeim þáttum sem þóttu veikastir í
fyrirliggjandi úttekt. Þá yrðu einnig
metin áhrif hugsanlegrar sameining-
ar sveitarfélaga á skipulag þjónust-
unnar.
Að lokinni kynningu Elsu og
Braga urðu miklar og liflegar um-
ræður um niðurstöður starfshópsins
og lokaskýrslu háskólans. Við upp-
haf umræðnanna mælti Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar,
fyrir tillögu sex fulltrúa Akureyrar á
fundinum um að hætta starfsemi
Skólaþjónustunnar frá og með 1.
ágúst 1999. Fyrir fundinum lá jafh-
framt bréf ffá bæjarstjóm Akureyrar
þar sem skýrt var ffá áformum bæj-
arstjómar að draga sig út úr rekstri
Skólaþjónustunnar. Að lokinni um-
fjöllun í neffid sem starfaði á fund-
inum um málefni Skólaþjónustunn-
ar og eftir miklar umræður var eftir-
farandi tillaga samþykkt:
„Með tilliti til þeirrar ákvörðunar
bæjarstjórnar Akureyrar að hefja
undirbúning flutnings verkefna
þeirra sem Skólaþjónusta Eyþings
sinnir fýrir gmnnskólana á Akureyri
yfir til Akureyrarbæjar frá og með
september 1999 (sbr. bréf Akureyr-
arbæjar til stjórnar Eyþings 10.
ágúst 1998) samþykkir aðalfundur
Eyþings, haldinn á Húsavík dagana
3. og 4. september 1998, að frá og
með 1. ágúst 1999 verði starfsemi
Skólaþjónustu Eyþings hætt og að
hvert sveitarfélag taki við þeim
verkefnum sem henni eru ætluð
samkvæmt stofnsamningi. Fram til
þess tíma verði þjónustan rekin með
óbreyttum hætti og tíminn notaður í
hverju sveitarfélagi til þess að
skipuleggja og undirbúa það þjón-
ustuform sem við á að taka þannig
að ekki verði rof í þjónustunni.
Samþykkir aðalfundurinn að fela
stjóm Eyþings að gera tillögur um
hvernig farið verði með eignir
Skólaþjónustunnar og gögn sem
trúnaður liggur á og ekki er unnt að
skipta milli rekstraraðila. Oskað
verði tilnefningar frá skólastjórum
og kennumm til þátttöku í þessari
vinnu. Skulu tillögur stjómar sendar
sveitarstjómum til kynningar fyrir
15. janúar 1999.“
Málefni fatlaðra
Valgerður Magnúsdóttir, formað-
ur landshlutanefndar um yfirfærslu
Ásta Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri og formaður skólaráðs, flytur skýrslu um
starfsemi Skólaþjónustu Eyþings. Við borðið sitja, talið frá vinstri, Sigbjörn Gunnars-
son, sveitarstjóri Skútustaðahrepps, Kristján Ásgeirsson, forseti bæjarstjórnar Húsa-
víkur, Sigfríður Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, og Guðmundur Nielsson,
bæjarritari á Húsavík, sem var ritari á fundinum. Myndirnar á fundinum tók Sigurður
Pétur Björnsson á Húsavík.